Kynningarfundur nýnema á Félagsvísindasviði
Háskólabíó (stóri salur)
Félagsvísindasvið býður nýnemum í grunnnámi á kynningarfund, föstudaginn 16. ágúst kl. 13:00 í Stóra salnum í Háskólabíói. Við hvetjum nýnema til að mæta á kynninguna.
Dagskrá og aðgengilegar upplýsingar fyrir nýnema má finna á nýnemasíðu sviðsins.
(Nýnemasíða - kemur síðar)
Dagskrá.
- Ávarp Stefáns Hrafns Jónssonar, forseta Félagsvísindasviðs
- Kynning á Uglu – inntri vef HÍ
- Kynning á Þjónustu Nemendaráðgjafar HÍ
- Sviðsráð Félagsvísindasviðs
- Kynning á Nemenda- og kennsluþjónustu Félagsvísindasviðs
Í kjölfar sameiginlega fundarins er nemendum boðið á kynningarfundi með sínum deildum. Þar verða veittar gagnlegar upplýsingar um námið og félagslífið.
- Blaðamennska – Oddi stofa 202
- Félagsfræði – Oddi stofa 101
- Félagsráðgjöf – Háskólabíó – salur 2
- Hagfræði – Háskólatorg, stofa 103
- Lögfræði – Lögberg, stofa 101
- Mannfræði – Oddi stofa 106
- Stjórnmálafræði – Oddi stofa 201
- Viðskiptafræði
- Þjóðfræði – Oddi stofa 206
Kennsla hefst mánudaginn 19. ágúst. Nýnemadagar Háskóla Íslands hefjast 26. ágúst
Á nýnemavef Háskóla Íslands, vef Stúdentaráðs og á vef Hugvísindasviðs eru gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema um námið og skólann, þar á meðal stundaskrár. Eins er hægt að fá innsýn í starfið á facebooksíðum skólans og sviðsins og á Instagram síðum sviðs og skóla.
Ef einhverjar spurningar vakna um námið er hægt að hafa samband við starfsfólk á skrifstofu í síma 525 4500, senda okkur tölvupóst á netfangið nemfvs@hi.is eða koma við á Þjónustutorginu á 1. hæð í Gimli; það er opið virka daga frá kl. 09-15 virka daga.
Velkomin á Félagsvísindasvið Háskóla Íslands