Skip to main content
19. júní 2024

HÍ hækkar á lista þeirra háskóla sem hafa mest samfélagsáhrif

HÍ hækkar á lista þeirra háskóla sem hafa mest samfélagsáhrif - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands er í 201.-300. sæti á lista tímaritsins Times Higher Education yfir þá háskóla sem hafa mest samfélagsleg og efnahagsleg áhrif út frá heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Nýr listi var birtur í síðustu viku og hækkar Háskólinn á milli ára en hann hefur nú hækkað á listanum þrjú ár í röð. 

Háskóli Íslands hefur verið á listanum, sem ber heitið Times Higher Education (THE) Impact Rankings, frá upphafi en hann var fyrst gefinn út 2019. Við mat á stöðu háskóla á listanum horfir THE til þess hvernig háskólar uppfylla tiltekna mælikvarða sem snerta samfélagsleg og efnahagsleg áhrif um allan heim og framlag til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna sem eru 17 talsins eins og kunnugt er. 

Hver háskóli fær einkunn fyrir frammistöðu sína í tengslum við hvert og eitt markmiðanna sem snerta margar af brýnustu áskorunum heimsbyggðarinnar í dag. Röðun háskólanna á listann byggist svo á frammistöðu þeirra á sviði þriggja heimsmarkmiða þar sem hver háskóli stendur sterkastur að vígi auk frammistöðu sem tengist markmiði 17, Samvinnu um markmiðin. 

Samkvæmt listanum nýja telst Háskóli Íslands standa fremst í heimsmarkmiðum sem snerta nýsköpun og uppbyggingu (markmið 9), ábyrga neyslu og framleiðslu (markmið 12) og heilsu og vellíðan (markmið 3 ) en á öllum þessum listum er hann í 101.-200. sæti. Þá er skólinn í sæti 301-400 þegar kemur að heimsmarkmiði 17 sem skilar honum samanlagt í 201.-300. sæti á listanum. Til samanburðar var skólinn í sæti 301-400 á Impact Ranking listanum í fyrra og 401.-600. sæti árið 2022. Alls voru ríflega 2.100 háskólar í 125 löndum metnir að þessu sinni. 

Impact Rankings listinn er ólíkur öðrum þekktum listum yfir fremstu háskóla heims að því leyti að þar er ekki bara horft til vísindastarfs, kennslu og áhrifa í alþjóðlegu vísindasamfélagi heldur áhrifa á nærsamfélag og alþjóðasamfélag. Fremstu skólarnir á þessum lista eru því ekki endilega þeir sömu og teljast bestir í rannsóknum og kennslu samkvæmt þekktum matslistum heldur þeir sem leggja mikla áherslu á að leggja sem mest af mörkum til lausnar samfélaga á helstu áskorunum heimsins. 

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og áhrif á nærsamfélag er meðal þess sem Háskóli Íslands leggur mikla áherslu á í stefnu sinni, HÍ26. Sjálfbærni og fjölbreytileiki eru enda ein af fjórum megináherslum stefnunnar. Þar er bæði horft til þess að Háskóli Íslands verði leiðandi á sviði sjálfbærni í krafti kennslu, rannsókna og þekkingarsköpunar og styðji þannig við samfélagið og að starfsemin sjálf verði sjálfbær og kolefnishlutlaus. Liður í þessu er árleg sjálfbærniskýrsla skólans sem komið hefur út í tvígang á vegum Sjálfbærnistofnunar HÍ. Hún veitir innsýn í þau fjölmörgu verkefni sem unnin eru í HÍ og tengjast heimsmarkmiðunum en þar er einnig að finna ábendingar um úrbætur sem hægt er að ráðast í innan skólans.

Þá vinnur Háskólinn einnig að sjálfbærnimálum á vettvangi hins evrópska Aurora-samstarfs en á nýafstöðnum fundi aðildarháskóla Aurora var sameiginleg áætlun um að draga úr kolefnisfótspori skólanna undirrituð

Heildarlistann Times Higher Education Impact Rankings er að finna á vefsíðu tímaritsins.
 

aðalbygging