Skip to main content
10. júní 2024

Varði doktorsritgerð um norræna hreyfingu sem barðist gegn grísku herforingjastjórninni

Varði doktorsritgerð um norræna hreyfingu sem barðist gegn grísku herforingjastjórninni - á vefsíðu Háskóla Íslands

Pontus Järvstad hefur varið doktorsritgerð í sagnfræði, Postwar Mnemonic Anti-Fascism: The Nordic Committees against the Greek Junta, 1967–1974, við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði Háskóla Íslands. Andmælendur við vörnina voru Hugo García, dósent við Óháða háskólann í Madrid, og Mogens Pelt, dósent við Kaupmannahafnarháskóla.

Ritgerðin var unnin undir leiðsögn Vals Ingimundarsonar, prófessors í sagnfræði við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd Ragnheiður Kristjánsdóttir, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, og Johan Lundin, prófessor við Háskólann í Malmö. Sverrir Jakobsson, forseti Deildar heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands 7. júní.

Um rannsóknina

Doktorsritgerðin fjallar um starf þverþjóðlegrar norrænnar félagshreyfingar sem barðist gegn herforingjastjórninni í Grikklandi 1967–1974. Greind er sú pólitíska barátta sem hún háði og fjallað um þær aðgerðir sem hún stóð fyrir. Megináherslan er lögð á andfasíska þætti í starfsemi hreyfingarinnar, sem hafði mun víðtækari áhrif en ráða má af fyrri rannsóknum á pólitískri andstöðu gegn herforingjastjórninni. Á öllum Norðurlöndunum voru stofnaðar nefndir til að berjast fyrir endurheimt lýðræðis í Grikklandi og var litið á aðgerðir þeirra sem framhald á sögulegri baráttu gegn fasisma. Með því að taka slíka afstöðu gengu norrænir stjórnmálamenn og aðgerðasinnar stundum gegn ráðandi hugmyndafræði kalda stríðsins. Í ritgerðinni er því haldið fram að minni hafi gegnt lykilhlutverki í að viðhalda andfasískum frásögnum og endurnýja þær. Í þeim skilningi er ritgerðin framlag til fræðilegra rannsókna á andfasisma þar sem áhersla er lögð á hlutverk sameiginlegs minnis og menningarminnis í starfi pólitískra hreyfinga.

Um doktorsefnið

Pontus Järvstad er með BA- og MA-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands þar sem hann hefur einkum fengist við stjórnmála,-félags- og hugmyndasögu.

Valur Ingimundarson, Sverrir Jakobsson, Mogens Pelt, Pontus Järvstad, Hugo García og Ólöf Garðarsdóttir.