Mikil gróska er í jafnréttisstarfi meðal stúdenta, nokkur hagsmunafélög hafa verið stofnuð sem standa vörð um réttindi stúdenta, og er þekking þeirra og reynsla ómetanleg í jafnréttisstarfi Háskólans. Á vegum Stúdentaráðs (SHÍ) starfa jafnréttisnefnd og alþjóðanefnd. Nánari upplýsingar um nefndirnar eru á vef Stúdentaráðs. Femínistafélag Háskóla Íslands Femínistafélagið er femínistafélag stúdenta og starfsfólks við Háskóla Íslands. Tilgangur félagsins er að upplýsa stúdenta og samfélagið um femínisma með því að fjalla um hann á fræðilegum grundvelli. Félagið er þverpólitískt og tengist engum öðrum félögum Háskólans. Femínistafélagið á Facebook Q – félag hinsegin stúdenta Félagið hefur það að markmiði að: Gefa hinsegin stúdentum (m.a. samkynhneigðum, tvíkynhneigðum og trans*) tækifæri til að hittast, veita þeim stuðning og auka samheldni þeirra. Vera sýnilegt afl innan Háskólans og í forsvari þegar málefni sam- og tvíkynhneigðra og trans* einstaklinga ber á góma. Beita sér í réttindabaráttu sam- og tvíkynhneigðra og trans fólks innan og utan háskóla. Stuðla að aukinni fræðslu, kennslu, umræðu og rannsóknum um málefnið innan sem flestra deilda Háskólans. Vefur Q - félag hinsegin stúdenta Q - félag hinsegin stúdenta á Facebook Netfang: queer@queer.is Ada - Hagsmunafélag kvenna í upplýsingatækni við HÍ Tilgangur Ada er að skapa vettvang til þess að styrkja stöðu kvenna sem stunda nám í upplýsingatækni við Háskóla Íslands. Ásamt því að vera öruggt umhverfi fyrir konur til þess að mynda tengsl, deila reynslu og styðja við bakið á hvor annarri. Ada vill fræða bæði tilvonandi nemendur og styðja við núverandi nemendur og stuðla að sýnileika kvenfyrirmynda innan upplýsingatæknigeirans. Vefur Ada - Hagsmunafélag kvenna í upplýsingatækni við HÍ Ada - Hagsmunafélag kvenna í upplýsingatækni við HÍ á Facebook Félag Asískra Háskólanema á Íslandi Félag Asískra Háskólanema á Íslandi á Facebook Landssamtök íslenskra stúdenta Landssamtök íslenskra stúdenta facebooklinkedintwitter