Skip to main content

Gender-Based Violence, Justice, and Knowledge Production in the Nordic Region

Gender-Based Violence, Justice, and Knowledge Production in the Nordic Region - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
25. apríl 2023 13:30 til 16:30
Hvar 

Þjóðminjasafn Íslands

Nánar 
Aðgangur ókeypis

#MeToo-hreyfingin vakti umræður um kynbundna áreitni og kynbundið ofbeldi og sýndi fram á þörfina fyrir fleiri sjónarhorn þegar kemur að þessum málum eins og kemur fram í The Routledge Handbook of the Politics of the #MeToo Movement (2021, Routledge). Handbókin leiðir saman ólíkar raddir umhverfis heiminn og gefur bæði staðbundin yfirlit yfir stöðuna í málaflokknum sem og umfjöllun um almenn viðbrögð við hreyfingunni. Væntanleg bók sem nefnist Re-Imagining Sexual Harassment. Perspectives from the Nordic Region (2023, Bristol University Press) býður svo upp á nýjan skilning á kynbundinni áreitni með því að leiða saman rannsakendur, sérfræðinga og rithöfunda á Norðurlöndunum. Þar er spurningunni um hvernig lagarammar geti stuðlað að forvörnum velt upp og fjallað um ímynd Norðurlandanna sem velferðar- og jafnréttissamfélaga í samhengi við baráttuna gegn kynferðislegri áreitni.

RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum, Skrifstofa kynjarannsókna í Svíþjóð og NIKK (norrænar upplýsingar um kyn) standa fyrir málþingi sem ber titilinn Gender-Based Violence, Justice, and Knowledge Production in the Nordic Region og fer fram þann 25. apríl frá kl. 13.30 til 16.30 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins þar sem höfundar og ritstjórar sem standa að bókunum tveimur munu fjalla um meginefni þeirra, bæði í fyrirlestrum og umræðum.

Nánari upplýsingarnar um viðburðinn, þar á meðal dagskrá og skráningu, má finna á heimasíðu RIKK.