Skip to main content

Norræn samvinna á átakatímum

Norræn samvinna á átakatímum - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
19. október 2022 14:15 til 15:45
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Auðarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Sauli Niinistö, forseti Finnlands, og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, fjalla um norræna samvinnu á átakatímum í Veröld 19. október næstkomandi. Að loknum þeirra erindum taka ráðherrar í ríkisstjórnum Íslands og Finnlands og fræðimenn við Háskóla Íslands þátt í pallborðsumræðum.

Innrás Rússlands í Úkraínu er árás á grundvöll alþjóðasamfélagsins og þess skipulags sem byggir á sameiginlegum reglum. Hún er brot á alþjóðalögum, gengur gegn friðhelgi landamæra og virðir mannréttindi að vettugi. Að baki árásarstríði Rússlands er óvirðing við frjálslynd lýðræðissjónarmið, marghliða samvinnu og endurspeglar um leið tilhneigingar til ógnarstjórnar sem einnig gætir víðar í heiminum.

Vestræn lýðræðisríki – í Evrópu, Norður-Ameríku og víðar – hafa brugðist við af festu. Eins og önnur Evrópuríki hafa Norðurlönd sameinast um stuðning við Úkraínu. Finnland og Svíþjóð hafa sótt um aðild að Atlantshafsbandalaginu. En það eru erfiðir tímar framundan og stríðið veldur kreppu á mörgum sviðum sem mun hafa ólík áhrif á Evrópulönd. Þau munu áfram þurfa að vera úrræðagóð og staðföst.

Hvert er hlutverk norrænnar samvinnu í þessu ástandi? Hvaða áhrif mun væntanleg aðild Finnlands og Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu hafa á svæðisbundna samvinnu? Norðurlöndin hafa náð talsverðum árangri í sáttamiðlun – munu þau hafa hlutverki að gegna á því sviði? Hvernig geta Norðurlönd haldið áfram að styðja Úkraínu? Og hvernig ber þeim að haga tengslum sínum við Rússland þegar fram líða stundir? Ættu Norðurlöndin að halda áfram að þróa Framtíðarsýn fyrir árið 2030 eða er það úthaldið sem nú gildir? Er svo komið að aðgerðir í loftslagsmálum, þarfar og mikilvægar sem þær eru, færast aftar í forgangsröðina? Þetta eru aðeins nokkrar þeirra spurninga sem norræn samvinna stendur frammi fyrir á þessum átakatímum.

Dagskrá:

  • Sauli Niinistö, forseti Finnlands.
  • Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.

Fundarstjóri: Auðunn Atlason, ráðgjafi forsætisráðherra í utanríkismálum. 

Pallborðsumræður:

  • Thomas Blomqvist, ráðherra norrænnar samvinnu og jafnréttis í finnsku ríkisstjórninni. 
  • Guðmundur Ingi Guðbrandsson, ráðherra norrænnar samvinnu og félags- og vinnumarkaðsmála.   
  • Jón Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands. 
  • Ann-Sofie Nielsen Gremaud, dósent við Háskóla Íslands. 

Umræðustjóri: Pia Hanson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.

 

Sauli Niinistö, forseti Finnlands, og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ræða norræna samvinnu á átakatímum í Veröld 19. október.

Norræn samvinna á átakatímum