Afkastageta 14 ára knattspyrnudrengja á Íslandi og í Noregi
![Afkastageta 14 ára knattspyrnudrengja á Íslandi og í Noregi - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_loftslagsdagur_HI_190923_005.jpg?itok=JlTebCGh)
Stakkahlíð / Háteigsvegur
Skriða
Ráðstefna Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og Knattspyrnusambands Íslands föstudaginn 14. október 2022, kl. 12.00-14.30 í Skriðu, Stakkahlíð HÍ.
Fundinum verður einnig streymt í gegnum Zoom: https://eu01web.zoom.us/j/69830830019
Meeting ID: 698 3083 0019
Hefur líkamsþroski áhrif á afkastagetu og þjálfun ungmenna? Hversu mikilvægt er að taka tillit til líkamsþroska drengja og stúlkna í íþróttaþjálfun. Markmið ráðstefnunnar er að beina athygli að því hvernig íþróttaþjálfarar geta notað þessa þekkingu í sínu starfi. Við hvetjum öll þau sem koma að íþróttaþjálfun ungmenna á Íslandi að mæta.
Dagskrá
12.00 Opnunarávarp
Erlingur Jóhannsson, prófessor Háskóla Íslands.
12:05 - 12:50
Hilde S. Gundersen, associate professor. Department of Sport, Food and Natural Sciences, Western Norway University of Applied Sciences, Bergen, Norway.
Relationships between biological maturation and physical capacity in Norwegian male soccer players from 14 to 17 years.
Hilde og samstarfsfólk hafa staðið fyrir langtímarannsókn á stöðu líkamlegra þátta eins og beinbroska, hraða, stökkkrafts og þreki hjá knattspyrnudrengjum á aldrinum 14 til 17 ára. Mælingar hafa verið framkvæmdar á sex mánaða fresti.
Kaffihlé 12:50 – 13:05
13:05 - 13:35
Sigurður S. Benediktsson, aðjúnkt íþrótta- og heilsufræði HÍ.
Líffræðilegur þroski og afkastageta 14 ára knattspyrnudrengja á Íslandi og í Noregi. Niðurstöður M.S. meistararitgerðar í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Íslands.
13:40 – 14:00
Ólafur Kristjánsson yfirmaður knattspyrnumála hjá Breiðablik.
Hvernig geta þjálfarar á Íslandi nýtt þessar vísindaniðurstöður?
14:00 – 14:30
Pallborðsumræður.
Umræðustjóri: Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ.
Þátttakendur: Hilde S. Gundersen, Sigurður S. Benediktsson, Ólafur Kristjánsson og Sif Atladóttir, verkefnastjóri leikmannasamtaka Íslands, leikmaður Selfoss og fyrrverandi landsliðskona,