Skip to main content

Aðgát skal höfð -  Sýning meistaranema HÍ og LHÍ í Listasafni Einars Jónssonar

Aðgát skal höfð -  Sýning meistaranema HÍ og LHÍ í Listasafni Einars Jónssonar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
31. mars 2022 17:00 til 19:00
Hvar 

Listasafn Einars Jónssonar

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fimmtudaginn 31. mars kl. 17 verður sýningin Aðgát skal höfð opnuð í Listasafni Einars Jónssonar. Sýningin er samstarf meistaranema í myndlist við Listaháskóla Íslands og meistaranema í námskeiði um sýningarstjórnun við Háskóla Íslands.

Safn Einars Jónssonar getur virkað eins og lokaður heimur fyrir mörgum, fullur af framandi táknmyndum og goðsögum, vísunum í hetjur, hefð og hugsjónir.

Á sýningunni, sem sett er upp innan um fastasýningu safnsins sem opnuð var fyrir hartnær einni öld, mætir samtíðin fortíðinni á nýjum forsendum. Við þessar krefjandi aðstæður leitast listamennirnir við að hefja samtal við „vofur“ safnsins, heim þess og rými með því að vekja athygli á því sem hefur nærveru í fjarveru sinni.

Vofur fortíðar birtast í ýmsum myndum í samtímanum og minna á þögguð samtöl eða gleymdar sögur sem ganga í endurnýjun lífdaga þegar viðfangsefni eru skoðuð með nýrri nálgun, líkt og listamennirnir gera hér. Sýningin skapar þannig vettvang fyrir ólíkar frásagnir, þar sem listamennirnir takast á við heim og hugmyndir Einars með því að brjóta upp og opna það sem er hulið.

Frítt er á safnið á meðan sýningu stendur.

Opnun verður 31. mars kl. 17-19 og sýningin mun standa yfir til 10. apríl.

Safnið er opið alla daga, nema mánudaga, kl. 12-17.

Viðburðir:
2. apríl kl. 14 - leiðsögn á ensku
3. apríl kl. 12:30 - leiðsögn í samvinnu við Hallgrímskirkju
7. apríl kl. 12:10 -  hádegisspjall með Hildi Bjarnadóttur, prófessor við myndlistardeild Listaháskóla Íslands, og ÖlmuDís Kristinsdóttur, safnstjóra Listasafns Einars Jónssonar
9. apríl kl. 14 - leiðsögn á íslensku

Meistaranemar við Listaháskóla Íslands
Adam Alva Fejfar
Alexis Brancaz
Andreas Hopfgarten
Deepa R. Iyengar
Íris María Leifsdóttir
Júlíanna Ósk Hafberg
Kristín Einarsdóttir
Megan Auður
Sarah Finkle
Thora Karlsdóttir

Meistaranemar við Háskóla Íslands
Dagbjört Drífa Thorlacius
Grétar Þór Sigurðsson
Helga Jóakimsdóttir
Hólmar Hólm
Marín Björt Valtýsdóttir
Odda Júlía Snorradóttir
Sigrún Sandra Ólafsdóttir
Sigurjón Árni Eyjólfsson

Fimmtudaginn 31. mars kl. 17 verður sýningin Aðgát skal höfð opnuð í Listasafni Einars Jónssonar. Sýningin er samstarf meistaranema í myndlist við Listaháskóla Íslands og meistaranema í námskeiði um sýningarstjórnun við Háskóla Íslands.

Aðgát skal höfð -  Sýning meistaranema HÍ og LHÍ í Listasafni Einars Jónssonar