Framhaldsnám í þróunarfræðum er ætlað að veita nemendum fræðilega, hagnýta og aðferðafræðilega þekkingu til að takast á við viðfangsefni á sviði þróunarmála, jafnframt því að undirbúa þá undir rannsóknarvinnu. Þróunarfræði, MA, 120e Tveggja ára fræðilegt framhaldsnám í þróunarfræði við félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands. Námið er 120e og telst fullgilt MA-próf. Vægi lokaritgerðar er 40-60 einingar. Inntökuskilyrði eru BA-próf eða sambærilegt próf. Þróunarfræði, Diplómanám, 30e Eins árs fræðilegt framhaldsnám í þróunarfræði við félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands. Námið er 30e. Inntökuskilyrði eru BA-próf eða sambærilegt próf. Þróunarfræði, Doktorsnám 210e Doktorsnám við Félags- og mannvísindadeild er 180 eininga doktorsritgerð og 30 einingar í námskeiðum á fræðasviði doktorsverkefnis. Til viðbótar getur námsbraut gert kröfu um að doktorsnemandi taki allt að 60 ECTS í námskeiðum í samráði við leiðbeinanda sé talin þörf á að bæta við undirstöðuþekkingu hans í aðferðafræði rannsókna eða á fræðasviði doktorsnámsins. Þessum einingum skal að jafnaði lokið áður en rannsóknaráætlun fæst samþykkt. Bóknámshluta námsins má sinna jafnt í lesnámskeiðum sem almennum námskeiðum á framhaldsstigi. Nemendur sem hefja doktorsnám skulu hafa lokið meistaraprófi með fyrstu einkunn, eða sambærilegu prófi við viðurkenndan háskóla. Umsóknarfrestur um doktorsnám er tvisvar á ári, 15. apríl og 15. október en einu sinni á ári, 1. febrúar, fyrir erlenda umsækjendur. Umsókn skal skilað til nemendaskrár Háskóla Íslands á sérstöku rafrænu eyðublaði sem aðgengilegt er á vef skólans á umsóknartíma. Fylgiskjöl skal senda til Félags- og mannvísindadeildar á rafrænu formi. Frekari upplýsingar um doktorsnám fást á Félags- og mannvísindadeildar. Umsóknareyðublöð um styrki úr rannsóknarnámssjóði fást á skrifstofu Vísinda- og nýsköpunarsviðs, Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Doktorsnemi skal frá upphafi náms hafa leiðbeinanda. Leiðbeinandi skal vera fastráðinn kennari (prófessor, dósent eða lektor) við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands. Þeim sem áhuga hafa á að hefja doktorsnám í greininni er bent á að byrja á því að hafa samband við þann úr hópi fastra kennara námsbrautarinnar sem þeir telja vænlegastan leiðbeinanda með væntanlegu doktorsverkefni. Vakin er athygli á að námsbrautin getur ekki tekið við mörgum doktorsnemum og kennurum við námsbrautina er ekki skylt að hafa umsjón með doktorsritgerðum. facebooklinkedintwitter