Skip to main content

Nafnabreytingar

Nafnabreyting nemenda

Trans nemendur við Háskóla Íslands, sem ekki fá nafni sínu breytt hjá Þjóðskrá, geta óskað eftir nafnabreytingu innan skólans til samræmis við kynvitund þeirra.

Nemendur skulu snúa sér til Nemendaráðgjafar HÍ sem staðsett er á þriðju hæð í Háskólatorgi. Hægt er að bóka viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa hér. Einnig er hægt að bóka viðtal í síma 525 4315.