Skip to main content
4. júlí 2024

Inntelligent Instruments hlýtur tvenn evrópsk verðlaun

Inntelligent Instruments hlýtur tvenn evrópsk verðlaun - á vefsíðu Háskóla Íslands

Tilkynnt hefur verið að verkefnið Intelligent Instruments hljóti tvenn verðlaun sem bæði verða veitt á Ars Electronica hátíðinni í Linz í september.

Önnur verðlaunin, Citizen Science Award, veitir Evrópusambandið rannsóknarverkefnum fyrir samfélagsleg og stjórnmálaleg áhrif til aukinnar þróunar í átt að fjölmenningarlegu og sjálfbæru samfélagi í Evrópu án aðgreiningar. Í niðurstöðu valnefndar verðlaunanna segir að Intelligent Instruments nýti tónlist til að rannsaka áhrif gervigreindar á sköpun og samfélag, það veki upp mikilvægar spurningar um afleiðingar gervigreindar í tengslum við siðfræði, tækniþróun og aðgengi að tækni. Í verkefninu sé unnið á þverfaglegan hátt þar sem innsýn tæknigreina og hugvísinda renna saman. Þá hafi aðstandendum verkefnisins tekist að virkja almenning í opnum vinnustofum og viðburðum á framúrskarandi hátt. Með þessu móti hafi tekist að hvetja til samtals og hafa áhrif á stefnumótun. Þannig hafi skapandi aðferðir verkefnisins auðgað evrópskt rannsóknasamfélag. Sjá nánar hér.

Hin verðlaunin sem rannsóknarverkefnið hlýtur eru Prix Ars Electronica verðlaun í riðlinum Gervigreind í listum. Prix Ars Electronica eru ein helstu og elstu alþjóðlegu verðlaunin í nýmiðlalistum (e. media arts) og er ætlað að hvetja til samspils lista, tækni og samfélags. Sjá nánar hér.

Þórhallur Magnússon, aðalrannsakandi Intelligent Instruments og rannsóknaprófessor við Heimspekistofnun Háskóla Íslands.

Verkefnið Intelligent Instruments hefur verið starfrækt við Hugvísindasvið Háskóla Íslands frá því í byrjun árs og nýtur veglegs styrks hjá Evrópska rannsóknarráðinu (ERC Consolidator Grant 2021-2026). Í verkefninu er rýnt í hlutverk gervigreindar í sköpun og þá sérstaklega í gegnum hljóðfæri í lifandi flutningi. Framlag verkefnisins er á sviði tölvutækni og hug- og félagsvísinda en það gengur út á að rannsaka hvernig fólk bregst við greind og atbeina í tækni almennt, þar sem tónlist og hljóðfæri eru notuð sem vettvangur og aðferðafræði rannsóknarinnar. 

Fulltrúar Intelligent Instruments kynna verkefnið á Vísindavöku.