Sýning Háskóla Íslands um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki var opnuð með viðburði í Veröld í gær þar sem Silja Bára Ómarsdóttir rektor opnaði sýninguna og Teruko Yahata sagði frá reynslu sinni frá Hiroshima, en hún var átta ára þegar kjarnorkuárásarnar voru gerðar.
Anne Carson, sérfræðingur í klassískum fræðum, skáld og þýðandi, hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár. Carson hlaut Vigdísarverðlaunin 2023, verðlaun sem íslensk stjórnvöld, Háskóli Íslands og Vigdísarstofnun veita árlega.
Háskóli Íslands og Landspítali hafa undirritað samstarfssamning um að setja á stofn Miðstöð krabbameinsrannsókna sem samstarfsvettvang vísindamanna sem stunda slíkar rannsóknir hér á landi. Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, undirrituðu samninginn í Háskóla Íslands.
Halldór Geirsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, sem leiðir fræðslugöngu Háskóla Íslands og Ferðafélags barnanna um Búrfellsgjá sunnudaginn 11. október. Ferðafélag barnanna er angi innan Ferðafélags Íslands sem fagnar hundrað ára afmæli á næsta ári.
Háskóli Íslands og alþjóðlega stoðtækjafyrirtækið Össur hafa gert með sér rammasamning um samstarf að rannsóknar- og þróunarverkefnum tengdum þróun stoðtækja. Samningurinn var undirritaður í Háskóla Íslands miðvikudaginn 7. október.
ArcticKnows verður kynnt á Arctic Circle Assembly í Hörpu dagana 8.–10. október. Fulltrúar Háskóla Íslands á Hólum verða á staðnum og kynna verkefnið og framlag skólans til rannsókna og samstarfs á norðurslóðum.
Fasteignir Háskóla Íslands, Andrúm arkitektar og Ístak hafa hlotið Grænu skófluna, viðurkenningu Grænni byggðar, fyrir endurbætur og umbreytingu á Sögu með framúrskarandi vistvænum og sjálfbærum hætti.
Tveir meistaranemar við Fiskeldis- og fiskalíffræðideild HÍ á Hólum kynntu ný rannsóknaverkefni sín á föstudagsmálstofu deildarinnar í loks september. Rannsóknirnar fjalla annars vegar um þroskun og líkamsform hellableikju í hraunhellum Mývatns og hins vegar um áhrif birtuskilyrða á kísilþörungasamfélög í sömu einstöku vistkerfum.
Stór hópur starfsfólks og stúdenta Háskóla Íslands tekur þátt í Hringborði norðurslóða (Arctic Circle) sem fram fer í Hörpu dagana 8.-10. október.
Þórey S. Þórisdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands úr hópi sex umsækjenda. Stofnunin verður á næstunni flutt að Háskóla Íslands á Hólum