Fulltrúar Össsurar og HÍ

Háskóli Íslands og alþjóðlega stoðtækjafyrirtækið Össur hafa gert með sér rammasamning um samstarf að rannsóknar- og þróunarverkefnum tengdum þróun stoðtækja. Samningurinn var undirritaður í Háskóla Íslands miðvikudaginn 7. október.

Vísindamenn Háskóla Íslands, m.a. á sviði verkfræði, lyfjafræði, sálfræði og sjúkraþjálfunar, hafa á undanförnum árum átt í góðu samstarfi við sérfræðinga Össurar m.a. við þróun á ýmiss konar búnaði tengdum gervihnjám og -fótum. Hafa fulltrúar HÍ og Össurar m.a. hlotið styrki úr Tækniþróunarsjóði og Rannsóknasjóði til samstarfsverkefna á liðnum árum.

Þá hafa doktorsnemar við skólann unnið rannsóknir sínar í samstarfi við Össur, sem hefur átt fulltrúa í doktorsnefndum umræddra verkefna. Samstarf skólans og Össurar nær þar að auki til rannsóknasjóðs sem Össur setti á stofn við skólann ásamt þýska stoðtækjafyrirtækinu Ottobock fyrir nokkrum árum en sjóðnum er ætlað að efla rannsóknir og nýsköpun á sviði háþróaðra stoðtækja.

Samkvæmt rammasamningnum er gert ráð fyrir að fulltrúar HÍ og Össurar geri samkomulag um einstök rannsóknar- og þróunarverkefni þar sem fram koma upplýsingar um markmið, umfang, þátttakendur og aðra mikilvæga þætti sem snerta umrætt verkefni.

Rammasamningurinn tekur enn fremur til hugverkaréttinda vegna þeirra uppfinninga sem samningsaðilar gera í sameiningu eða hvor í sínu lagi og tengjast samstarfinu. Jafnframt eru ákvæði í samningnum sem tengjast varðveislu og vernd gagna sem verða til í samstarfi milli vísindamanna HÍ og Össurar, auk notkunar persónuupplýsinga tengdum rannsóknunum og vegna úrvinnslu gagna og birtingu rannsóknaniðurstaðna.

Össur er dótturfélag Emblu Medical hf., sem á yfir 2.200 skráð einkaleyfi og býr yfir einu sterkasta hugverkasafni heims á sviði lausna sem bæta hreyfigetu fólks.

Samninginn undirrituðu Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Þór Friðriksson, forstöðumaður lækninga á þróunarsviði Össurar.

Samstarf við Össur
Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Þór Friðriksson, forstöðumaður lækninga á þróunarsviði Össurar, handsala samninginn.

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil