Sýning Háskóla Íslands um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki

Sýning við Háskóla Íslands um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki var opnuð með viðburði í Veröld í gær þar sem Teruko Yahata sagði frá reynslu sinni frá Hiroshima, en hún var átta ára þegar kjarnorkuárásarnar voru gerðar. Silja Bára Ómarsdóttir rektor flutti ávarp og Haraldur Bernharðsson, forseti Hugvísindasviðs HÍ, opnaði sýninguna. Hreinn Pálsson, sendiherra Íslands í Japan, var viðstaddur opnunina.

Sýningin verður haldin á neðri hæð Háskólatorgs dagana 7. október til 7. nóvember, en þar er að finna ljósmyndir og skýringar sem varpa ljósi á afleiðingar kjarnorkuárásanna árið 1945 og stuðla að auknum skilningi á hörmungum kjarnorkuvopna og mikilvægi friðar og afvopnunar. Sýningin er sett upp í tengslum við stærri Hiroshima–Nagasaki sýningu sem haldin er í Ráðhúsi Reykjavíkur dagana 6. október til 1. nóvember. Þar verða meðal annars sýndir munir og söguleg gögn tengd árásunum, ljósmyndir, frásagnir eftirlifenda og boðið upp á sýndarveruleikabúnað.

Sýningin við HÍ er hluti af Friðarviku í Reykjavík. Kristín Ingvarsdóttir, dósent í japönskum fræðum við Mála- og menningardeild HÍ, segir mjög ánægjulegt að Háskólinn taki virkan þátt í Friðarvikunni og næsti viðburður sé kvikmyndasýning í Veröld 14. október. Hún hvetur alla til að kynna sér dagskrána á vefsvæði vikunnar.

Sýning Háskóla Íslands um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki
Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil