samstarf, HÍ, Landspítali

Háskóli Íslands og Landspítali hafa undirritað samstarfssamning um að setja á stofn Miðstöð krabbameinsrannsókna sem samstarfsvettvang vísindamanna sem stunda slíkar rannsóknir hér á landi. Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, undirrituðu samninginn í Háskóla Íslands.

Hlutverk hinnar nýju miðstöðvar verður m.a. að móta stefnu á sviði krabbameinsrannsókna samhliða því að vera vettvangur grunnrannsókna, faraldsfræði, lýðheilsu og klínískra rannsókna tengdum krabbameinum þvert á fagstéttir og fræðasvið innan lands og utan.

Með miðstöðinni er ekki síst ætlunin að stuðla að enn nánara samstarfi fræðafólks Landspítala, Háskóla Íslands og annarra háskóla og stofnana á Íslandi á sviði krabbameinsrannsókna. Um leið á að samhæfa rannsóknaverkefni og hámarka nýtingu gagna til þverfaglegra rannsókna, allt í því augnamiði að nýta nýjustu þekkingu í þágu einstaklinga með krabbamein og efla þjónustu við þá.

Miðstöðinni er einnig ætlað að miðla nýrri þekkingu til samfélagsins, sjúklinga og stefnumótenda í heilbrigðismálum og styðja við kennsluþróun í krabbameinsfræðum innan Háskóla Íslands og annarra háskóla og stofnana á Íslandi. Miðstöð krabbameinsrannsókna mun einnig styðja vísindafólk við styrkjasókn til rannsókna á krabbameinum og alþjóðlegt samstarf á sviði krabbameinsrannsókna.

Fimm manna stjórn, skipuð fulltrúum HÍ og Landspítala, mótar starfsemi Miðstöðvar krabbameinsrannsókna og rekstur hennar en hún verður vistuð innan Heilbrigðisvísindastofnunar Háskóla Íslands og Landspítala á Heilbrigðisvísindasviði. Miðstöðin starfar að öðru leyti án fastrar staðsetningar, með stuðningi, ábyrgð og skuldbindingum þeirra rannsakenda, háskóla, háskóladeilda og stofnana sem koma að einstökum verkefnum og rannsóknum innan hennar.

Silja Bára R. Ómarsdóttir, Runólfur Pálsson handsala samstarfssamning
Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, undirrituðu samninginn í Háskóla Íslands. MYND/Kristinn Ingvarsson

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil