Fræðafólk og nemendur frá Ferðamáladeild HÍ á Hólum taka virkan þátt í 34. Norrænu ráðstefnunni um rannsóknir í ferðamálum og hótelrekstri sem fram fer í Reykjavík dagana 6.–8. október.
Starfsþjálfun við Viðskiptafræðideild gefur nemendum tækifæri til að tengja námið við raunveruleg verkefni, öðlast hagnýta reynslu og mynda tengsl í atvinnulífinu.
Kennslumiðstöð Háskóla Íslands fagnaði merkum áfanga – 25 ára afmæli fimmtudaginn 17. september og af því tilefni var efnt til málþings í Hátíðarsal Aðalbyggingar undir yfirskriftinni „25 ár í þágu kennslu og náms“.
Nemendur Ferðamáladeildar og Fiskeldis- og fiskalíffræðideildar útskrifast frá Háskóla Íslands á Hólum föstudaginn 9. október. Við óskum útskriftarnemum innilega til hamingju með þennan mikilvæga áfanga.
Nýlega kom út á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur greinasafnið Brú milli heima / Bridging Worlds til heiðurs Guðrúnu Björk Guðsteinsdóttur, prófessor emerítu í Mála- og menningardeild.
Forseti HÍ á Hólum kynnti fyrir þingmönnum Norðvesturkjördæmis hvernig ný háskólasamstæða Háskóla Íslands getur eflt menntun, rannsóknir, nýsköpun og atvinnuuppbyggingu á Norðurlandi vestra og um land allt.
Ragna María Sverrisdóttir, nemandi á þriðja ári í stærðfræði við Raunvísindadeild Háskóla Íslands, hefur hlotið viðurkenningu úr Verðlaunasjóði Sigurðar Helgasonar prófessors fyrir frábæran námsárangur. Upphæð verðlaunanna nemur 15.000 bandaríkjadölum, jafnvirði 1,8 milljónum króna.
Þegar Alice Watterson var að alast upp í Skotlandi hefur hún líklega ekki gert sér í hugarlund að hún ætti eftir að starfa í sumum af nyrstu byggðum heims. Með því að sameina sérþekkingu sína á fornleifafræði og sjónrænni miðlun hefur hún fengið tækifæri til að vinna með vísindafólki og frumbyggjasamfélögum í Alaska og Grænlandi.
Út er komin bókin Striving for Independence: Nordic Women Studio Photographers 1860 – 1920 á vegum útgáfunnar De Gruyter Brill.
Stundum getur ruslahaugur sagt miklu meira um líf fólksins í fortíðinni en merkustu dýrgripir sem fara beint inn á söfn. Þetta vita þau Snædís Sunna Thorlacius og Arthur Knut Farestveit býsna vel en í hlaðvarpinu þeirra Moldvarpinu grafa þau sig hreinlega ofan í íslenska fortíð.