Þegar Alice Watterson var að alast upp í Skotlandi hefur hún líklega ekki gert sér í hugarlund að hún ætti eftir að starfa í sumum af nyrstu byggðum heims. Með því að sameina sérþekkingu sína á fornleifafræði og sjónrænni miðlun hefur hún fengið tækifæri til að vinna með vísindafólki og frumbyggjasamfélögum í Alaska og Grænlandi við að segja sögur af fornum gripum og horfnum samfélögum með þrívíddarlíkönum, hreyfimyndum og kvikmyndum. Um leið hefur hún lagt sitt af mörkum við að varðveita menningararf sem er í hættu vegna loftslagsbreytinga. Alice starfar sem sérfræðingur við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Höfn og frumsýndi nýlega stutta heimildamynd um lítt þekktan bæ á Suðausturlandi sem eyddist í jökulhlaupi fyrir meira en 150 árum.
Alice er með BA-gráðu í fornleifafræði og meistaragráðu í tölvunarfræðilegri fornleifafræði (e. Archaeological Computing). „Í meistaranáminu fór ég að vinna með þrívíddarlíkön og endurgerð. Fornleifafræði er mjög sjónræn grein og löng hefð fyrir myndsköpun og túlkun fortíðarinnar. Mér fannst sá þáttur einstaklega spennandi,“ segir Alice, sem lauk doktorsprófi frá Glasgow School of Art.
Að námi loknu starfaði hún við samskiptahönnun við Háskólann í Dundee með áherslu á hreyfimyndagerð, þrívíddarlíkön, kvikmyndagerð og vísindamiðlun tengdri fornleifafræði og menningararfi.
Jöklarnir drógu hana til Íslands
Í þessari vinnu kynntist hún kærasta sínum og nú eiginmanni, Kieran Baxter. „Bakgrunnur hans er í hreyfimyndagerð en síðan fór hann út í fornleifafræði. Ég byrjaði hins vegar í fornleifafræði og fór síðan út í hreyfimyndagerð, þannig að við mættumst á miðri leið,“ segir hún brosandi.
Þegar Kieran fékk nýdoktorsstöðu við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Höfn, þar sem hann hefur þróað nýjar sjónrænar leiðir til að varpa ljósi á það hversu hratt landslag íslenskra jökla er að breytast, slóst Alice í för með honum í vettvangsvinnu. Það sem átti að vera nokkurra mánaða dvöl varð heilt ár og að lokum ákváðu þau að flytja til Íslands. „Þegar við fluttum hingað tókst mér að koma nokkrum verkefnum á sviði menningararfs inn í rannsóknasetrið á Höfn,“ segir Alice.
Hjónin vinna mikið saman. „Ég var þegar farin að vinna mikið að rannsóknum á norðurslóðum, sérstaklega í Alaska, og var einnig byrjuð að starfa í Grænlandi. Fyrir mig var því fullkomlega eðlilegt að vera staðsett á Íslandi þar sem það færði mig nær þeim svæðum sem ég var í auknum mæli að vinna á,“ segir hún.
Alice bendir á að verkefni hennar falli vel að áherslum rannsóknasetursins í Hornafirði. „Mörg þeirra fornleifaverkefna sem ég vinn að verða fyrir áhrifum loftslagsbreytinga. Að vera með rannsakendur og verkefni annars staðar á Norður-Atlantshafssvæðinu og norðurslóðum hjálpar til við að tengja þessar sögur saman og betur alþjóðlegu samhengi.“