Snædís Sunna og Artur


Fornleifafræði er gríðarlega spennandi fag þótt hún sé nú ekki alveg eins og bíómyndirnar gefa gjarnan til kynna. Stundum felst hún í því að vera skítug upp fyrir haus í ausandi rigningu ofan í drulluflagi. Og stundum getur ruslahaugur sagt miklu meira um líf fólksins í fortíðinni en merkustu dýrgripir sem fara beint inn á söfn. Þetta vita þau Snædís Sunna Thorlacius og Arthur Knut Farestveit býsna vel en í hlaðvarpinu þeirra Moldvarpinu grafa þau sig hreinlega ofan í íslenska fortíð og segja frá því sem leynist undir yfirborðinu – stundum bókstaflega.

Snædís er nú í doktorsnámi í landfræði við HÍ þar sem hún rannsakar seljabúskap á Íslandi og samspil manns og náttúru í gegnum aldirnar. Hún og Arthur eru bæði fornleifafræðingar að mennt frá HÍ og doktorsrannsókn Snædísar liggur á mörkum fræðigreinanna tveggja. Arthur starfar nú í Danmörku við uppgröft og fornleifaskráningu. Þau sitja jafnframt bæði í stjórn Félags fornleifafræðinga, Snædís sem formaður og Arthur sem ritari.

Moldvarpið fór fyrst í loftið í desember 2024 og þar taka þau fyrir íslenskar fornleifar, minjar og menningarsögu, allt frá hinni frægu steinkistu Páls biskups í Skálholti og norrænu byggðunum á Grænlandi til útilegumanna, aftökustaða og 18. aldar morðmála. Þau segja bæði að þetta hefði aldrei verið hægt án stuðnings en verkefnið hefur notið styrks úr Fornminjasjóði frá upphafi.

Engir hattar, engar svipur, meira blautir plastpokar

„Mjög margir sem við hittum segjast hafa dreymt um að verða fornleifafræðingar og finnst þetta mjög spennandi starf en mjög fáir vita í raun og veru hvað felst í þessu dagsdaglega,“ segir Snædís og brosir, sem hún virðist reyndar gera í hlaðvarpinu þótt það sjáist ekki, því það er mikil gleði í öllum hlaðvarpsþáttunum.

En einmitt þarna kviknaði hugmyndin að hlaðvarpinu þeirra, í þessari togstreitu milli spennunnar við að uppgötva eitthvað og aðferðanna við að nálgast fortíðina. Hlaðvarpið ber eins og áður sagði hið fyndna en táknræna heiti Moldvarpið. Nafnið er lýsandi fyrir starf fornleifafræðinga því stundum eru þeir hreinlega með nefið ofan í moldinni eða moka henni upp með skóflum og skeiðum.

Snædís Sunna og Arthur vildu nota Moldvarpið til að segja frá því hvernig fornleifarannsóknir fara raunverulega fram, hvað fornleifafræðingar sjá þegar þeir horfa á stað sem öðrum virðist kannski ekki ýkja merkilegur, hvaða aðferðum þeir beita og ekki síst hvernig hægt sé að lesa sögu úr því sem kemur upp úr moldinni.
Þau segja bæði að stundum sé veruleikinn heldur hversdagslegri en í Indiana Jones-myndunum; engir hattar, engar svipur og alls ekki verið að berjast við illþýði um dularfulla gripi sem hafa verið huldir mönnum í aldaraðir.

„Ónei, langt í frá,“ segir Snædís og hlær. „Oftar en ekki erum við úti á víðavangi, drullug upp fyrir haus að reyna að skrifa á blauta plastpoka.“

Arthur bendir á að verkfærakistan sé líka óvenjuleg. Hlutir sem voru alls ekki framleiddir með fornleifafræði í huga geta orðið algerlega ómissandi við uppgröft. Golf-tí eru til dæmis notuð til merkinga á vettvangi og eru eiginlega brýnni hjá fornleifafræðingum en hjá kylfingum í teighögginu.

„Ég veit ekki hvar ég væri án tía í mörgum mismunandi litum,“ segir Arthur og hlær.

Snædís Sunna
Snædís Sunna er jafnframt doktorsnemi í landfræði við Háskóla Íslands en rannsóknir hennar liggja nærri heimi fornleifafræðinnar.

Sagan lá í jörðinni í sjö aldir

Eitt af því sem kom þeim Snædísi og Arthur á óvart við gerð Moldvarpsins var að bestu sögurnar úr íslenskri fornleifafræði hljóma stundum eins og einhver hafi hreinlega skáldað þær.

„Það gerist reglulega, eiginlega oftar en ég bjóst við þegar við hófum fyrst að rannsaka efni fyrir þættina okkar,“ segir Arthur.

Hann nefnir sem dæmi Pál Jónsson, sem var Skálholtsbiskup frá 1195 til dauðadags árið 1211. Páll var sonur Jóns Loftssonar í Odda, eins helsta höfðingja og menntamanns sinnar tíðar. Jón Loftsson fæddist árið 1124 og lést 1197. Það sem gerir Jón í Odda sérstaklega áhugaverðan er að Snorri Sturluson ólst upp hjá honum frá unga aldri. Oddi var þá ein helsta menningar- og lærdómsmiðstöð landsins. Jón var jafnframt sonarsonur Sæmundar fróða, þannig að Páll biskup var langafabarn Sæmundar. Fjölskyldutengslin eru því eiginlega lygilega mögnuð.

Í sögu Páls biskups er sagt frá því að hann hefði verið lagður til hinstu hvílu í steinkistu. Síðan liðu meira en sjö aldir. Sumarið 1954 stýrði Kristján Eldjárn fornleifarannsóknum í Skálholti vegna byggingar nýrrar dómkirkju. Þegar grafið var í grunna eldri kirknanna kom þar í ljós steinþró. Kista Páls biskups var fundin!!

Þegar hún var opnuð 30. ágúst 1954 blasti þar við beinagrind manns og leifar af biskupsbagli úr rostungstönn, fagurlega útskornum í líki dýrshöfuðs. Kristján Eldjárn taldi mögulegt að útskurðurinn væri verk Margrétar hinnar högu, listakonunnar sem vann fyrir Pál biskup og getið er í sögu hans, þótt uppruni gripsins sé ekki fullsannaður.

Forn miðaldaheimild hafði með öðrum orðum sagt frá gröf biskupsins. Meira en 700 árum síðar grófu fornleifafræðingar hana upp. Og þetta er aðeins ein þeirra sagna sem Arthur segist hafa rekist á við gerð Moldvarpsins.

„Ég er að sjá meira og meira af ótrúlegum frásögnum og fundum sem ég hefði ekki ímyndunaraflið í að búa til. Í Surtshelli gæti t.d. jafnvel hafa verið einhvers konar sértrúarsöfnuður tileinkaður eldjötninum Surti,“ segir Arthur og bætir svo við: „Á Skriðuklaustri fannst líka stærsta sullarblaðra í heiminum.“

Sullarblaðra myndast vegna sýkingar af bandormi og getur vaxið árum saman inni í líkamanum, meðal annars í lifur og lungum. Fundurinn á Skriðuklaustri gefur þannig óvenjulega innsýn í sjúkdóma sem fólk glímdi við fyrr á öldum.

Ruslið segir söguna

Fornleifafræðingar tveir hafa líka sérkennilegan áhuga á því sem aðrir hreinlega henda í ruslið.

Sorp, bein, matarleifar, brotnir hlutir og annað sem fólk fortíðarinnar taldi sennilega ekki mikils virði getur öldum síðar orðið að fjársjóði upplýsinga.

„Ruslið getur sagt heilmikið um samfélagið og einstaklingana sem hentu því,“ segir Snædís.

Í ruslinu enda leifar hversdagsins. Matarleifar segja til um mataræði, ónýtir húsmunir geta gefið vísbendingar um starfsemi á staðnum og gömul leikföng sagt frá lífi barna. Þar geta meira að segja leynst hálfkláruð verkefni sem einhver gafst upp á fyrir hundruðum ára.

Það eru einmitt þessir hversdagslegu hlutir sem Snædís segir gera fólkið í fortíðinni mannlegra í augum okkar. Arthur líkir þessu við rannsóknarlögreglu sem leitar í rusli grunaðs manns að vísbendingum. „Stundum kemur fyrir að einmitt þar leynist svarið.

Snædís Sunna
Snædís vinnur með fornvistfræði og notar meðal annars plöntuleifar og aðrar breytur í jarðvegi til að rannsaka breytingar á gróðurfari og stöðugleika jarðvegs í gegnum tíðina. Sérstaklega skoðar hún seljabúskap og samband manns og náttúru.

Fortíðin var ekki full af bjargarlausu fólki

Moldvarpið reynir líka að grafa undan lífseigum hugmyndum um fólkið sem hér bjó fyrr á öldum. Arthur myndi til dæmis gjarnan vilja losna við þá hugmynd að tækniþekking á Íslandi hafi verið fátækleg eða að fólkið hér hafi ekki ráðið við flókna framleiðslu. Sömuleiðis megi jarða þá hugmynd að allir hafi verið bláfátækir og „allt hafi verið ömurlegt“.

„Við eigum það til að vanmeta fólk fortíðarinnar og telja það fáfrótt og vanmáttugt en það kemur alltaf betur og betur í ljós hvað fólk var klárt og vel að sér á mörgum sviðum.“

Fornleifarnar sjálfar gefa býsna áþreifanleg dæmi um þetta. Á Hofstöðum í Mývatnssveit hefur meðal annars fundist járnvinnslusvæði frá 9.–11. öld og þar stóð stór veisluskáli á víkingaöld. Rannsóknir benda jafnframt til þess að birkiskógur á svæðinu hafi verið nýttur og honum markvisst viðhaldið sem eldsneytisauðlind.

Og ekki voru allir bláfátækir. Á Dysnesi í Eyjafirði fundust sex heiðin kuml frá víkingaöld með ríkulegu haugfé, meðal annars sverðum, spjótum, nælum, silfurhring og perlum, og tveir einstaklinganna höfðu verið heygðir í bátum.

En kannski blasir auðurinn enn betur við í einu ríkulegasta kumli sem fundist hefur hér á landi, við Þórisá í Skriðdal. Þar var maður grafinn með ungum hesti í fullum reiðtygjum. Með honum voru meðal annars sverð, skjöldur, öxi, tvö spjót, tvö sverðbrýni, perlur, sylgja, hringprjónn, agatsteinar og klébergsgrýta. Í leðurpyngju voru auk þess eldtinna, fjögur vogarlóð og ensk silfurmynt, slegin í tíð Eadwigs Englandskonungs um miðja 10. öld. Þarna hefur verið gaman að varpa moldinni upp á bakkann.

Þegar landslagið fer að tala – og moldin líka

Viðtökurnar við Moldvarpinu hafa farið fram úr björtustu vonum þeirra Snædísar og Arthurs. Hann segist í upphafi hafa verið sannfærður um að amma hans og afi yrðu nánast einu hlustendurnir. Annað kom á daginn. Og merki eru um að hlustunin breyti því hvernig fólk horfir á umhverfi sitt.

Snædís nefnir þingstaðinn og aftökustaðinn í Kópavogi sem dæmi. Margir hafi ekið þar fram hjá ótal sinnum án þess að átta sig á sögunni sem staðurinn geymir. Arthur hefur sömu reynslu.
„Hlustendur hafa sagt okkur að þeir taki núna eftir ýmsu í umhverfi sínu sem þeir sáu aldrei áður og gera greinarmun á ýmsum tóftum.“

Moldvarpið opnar líka dyr að vísindunum á bak við fornleifafræðina. Gjóskulög geta hjálpað til við aldursgreiningu, kolefnisaldursgreining segir sína sögu og með ísótópagreiningu á tannglerungi er hægt að afla upplýsinga sem ekki sjást með berum augum.

Og jafnvel örsmáar kvarnir úr eyrum þorska geta líka sagt ótrúlega sögu. Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir líffræðingur, Ragnar Edvardsson fornleifafræðingur og Steven E. Campana, prófessor í sjávarlíffræði við HÍ, hafa ásamt fleira vísindafólki rannsakað þorskkvarnir sem fundist hafa við fornleifauppgröft á gömlum verstöðvum. Úr vaxtarhringjum kvarnanna má meðal annars lesa aldur og vöxt fisksins og rannsóknirnar hafa leitt í ljós að þorskur við Ísland á 10.–12. öld var að meðaltali 25% stærri en nú og gat orðið allt að þrefalt eldri en þorskur nútímans.

Fornleifafræði er með öðrum orðum langt frá því að vera bara skófla, pensill og gömul bein. Stundum þarf líka gjóskulög, tannglerung og örsmáar kvarnir úr þorski til að fá fortíðina til að segja sögu sína.

Artur og Snædís

Hlustendurnir byrjaðir að grafa með

Samtalið heldur síðan áfram utan hlaðvarpsins. Moldvarpið er nefnilega líka á Facebook, Instagram og TikTok og þar geta Snædís og Arthur sýnt það sem stundum er erfitt að lýsa með orðum.

„Fornleifar eru yfir höfuð mjög sjónrænar,“ segir Snædís. Myndir og myndbönd af stöðum, minjum og gripum verði því mikilvæg viðbót við hlaðvarpið. Og samskiptin ganga í báðar áttir.

Fólk sendir þeim myndir af mögulegum fornleifum, spyr þau ráða áður en ráðist er í framkvæmdir og bendir þeim á minjar í heimabyggð sinni. Sumir hlustendur hafa jafnvel komið með leiðréttingar eða viðbótarupplýsingar sem rata inn í efnið.
„Það er mjög vel þegið, enda erum við alltaf til í að læra meira,“ segir Snædís. Hlustendurnir eru sem sagt að einhverju leyti byrjaðir að grafa með.

„Hafa skal það sem fyndnara reynist“

Þau Snædís og Arthur nálgast fortíðina líka með léttum húmor, þótt vissulega þurfi að stíga varlega til jarðar þegar unnið er með sögur og minjar sem tengjast fólki sem eitt sinn var uppi.

Arthur segir einmitt mjög mikilvægt að sýna fólki fortíðarinnar virðingu. Það geti jú ekki svarað fyrir sig. En það þýði ekki að fortíðin þurfi að vera sett fram með grafalvarlegum hætti.
„Fortíðin, rétt eins og nútíminn, var full af fyndnum og furðulegum augnablikum.“ Við upptökur og klippingu hefur hann því komið sér upp einfaldri reglu: „Hafa skal það sem fyndnara reynist.“

Manneskjan og náttúran

Snædís Sunna er jafnframt doktorsnemi í landfræði við Háskóla Íslands eins og áður sagði og þar liggja rannsóknir hennar nærri heimi fornleifafræðinnar.

Hún vinnur með fornvistfræði og notar meðal annars plöntuleifar og aðrar breytur í jarðvegi til að rannsaka breytingar á gróðurfari og stöðugleika jarðvegs í gegnum tíðina. Sérstaklega skoðar hún seljabúskap og samband manns og náttúru.

Sel voru um aldir hluti af íslenskum búskaparháttum. Skepnur voru reknar til beitar upp til fjalla eða inn í dali yfir sumarið en seljabúskapur lagðist af um aldamótin 1900. Snædís rannsakar meðal annars hvaða áhrif þessi búskaparháttur hafði á umhverfið og hvaða plöntur fólk nýtti sér í seljunum. Þar mætast því fortíðin, náttúran og manneskjan – og jarðvegurinn geymir upplýsingarnar.

Bara toppurinn á ísjakanum

En aftur að fornleifunum. Einhver gæti ætlað að eftir allar þær fornleifarannsóknir sem gerðar hafa verið á Íslandi væri farið að ganga á það sem enn leynist undir yfirborðinu. Getur enn verið eitthvað stórkostlegt sem á eftir að færa upp á yfirborðið? Snædís er ekki lengi að svara því.

„Það er aldrei búið að finna allt, það er bara búið að rannsaka toppinn á ísjakanum!“

Snædísi hafði lengi dreymt um að finna kuml, heiðna gröf frá því fyrir kristnitöku. Sá draumur rættist óvænt þegar nokkur kuml fundust við fornleifauppgröft á Seyðisfirði fyrir nokkrum árum. En það eru fleiri draumar á lagernum.

Hún segir að ef hún fengi ótakmarkað fjármagn, öll tilskilin leyfi og heila sveit fornleifafræðinga í teymið sitt myndi hún vilja sigla út í Flatey á Breiðafirði og grafa þar upp klaustrið og landnámsbýlið. Arthur myndi hins vegar beina skóflunni annað.

Hann vill rannsaka landnámsbæ Auðar – eða Unnar – djúpúðgu og kanna hvort hægt sé að sannreyna frásögn Laxdælu um að hún hafi verið grafin í skipi í haug. Slíkur fundur yrði sá fyrsti sinnar tegundar hér á landi.

Og svo er ráðgátan sem fornleifafræðingurinn getur auðvitað ekki látið í friði. Ef Auður djúpúðga var kristin, hvers vegna á hún þá að hafa verið grafin á svo heiðinn máta?

En þegar öllu er á botninn hvolft eru spurningarnar ennþá ótrúlega margar. Og fyrir fornleifafræðinga bíða svörin alltaf undir yfirborðinu. Það eina sem þarf er að varpa moldinni ofan af sögunni.

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil