Nýlega kom út á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur greinasafnið Brú milli heima / Bridging Worlds til heiðurs Guðrúnu Björk Guðsteinsdóttur, prófessor emerítu í Mála- og menningardeild. Hún á langan og farsælan starfsferil að baki við Háskóla Íslands og líkt og greinar samstarfsfólks og doktorsnema Guðrúnar bera vitni um, liggja þræðirnir víða í starfi hennar á sviði kennslu, rannsókna og stjórnunar.
Greinasafnið varpar jafnframt ljósi á slagkraft hugvísinda í brúarsmíði máls og menningar heimsálfa á milli, en hér má lesa greinar um breskar- og norður-amerískar bókmenntir; Ameríkufræði; arf íslenskra vesturfara og afkomenda þeirra í máli og menningu, sem og þræði örsagna vestan hafs og austan. Ritstjórar bókarinnar eru Birna Bjarnadóttir, rannsóknalektor við Mála-og menningardeild og Ingibjörg Ágústsdóttir, prófessor við sömu deild.
Nálgast má eintök af bókinni hjá ritstjórum.