Nemendur HÍ og HÍ á Hólum geta nú sótt um þátttöku í Arctic Frontiers Student Forum 2027, alþjóðlegu verkefni sem leiðir saman ungt fólk með áhuga á málefnum Norðurslóða og framtíðarþróun svæðisins.
Johan Rockström, einn fremsti vísindamaður heims á sviði sjálfbærni og loftslagsmála, er væntalegur til Íslands og heldur erindi á opnu málþingi í Háskólabíói föstudaginn 9. október kl. 9-10.30.
Sniðmát fyrir frétt.
Umræðu um aðgengi fatlaðs fólks og jafnan aðgang þess að stafrænni þjónustu í stefnuskjölum hins opinbera í málaflokknum skortir. Þetta sýna fyrstu niðurstöður rannsóknar á réttindum fatlaðs fólks og möguleikum þess til þátttöku í samfélaginu.
Íslenski spóinn flýgur hraðar á milli varp- og vetrarstöðva sinna en nokkur önnur undirtegund spóa. Hann er jafnframt sú undirtegund sem stendur frammi fyrir mestu ógninni af mannavöldum sem sækir á varplendur hans.
Vísindamenn innan hinnar viðamiklu rannsóknar Blóðskimun til bjargar eru meðal höfunda nýrrar rannsóknar þar sem varpað er skýrara ljósi á það hvernig best sé að greina þá einstaklinga sem eru í mestri hættu á að þróa með sér virkt mergæxli og gætu því haft gagn af snemmbærri meðferð.
Mun gervigreind draga úr ójöfnuði, auka hann eða jafnvel skapa nýjar tegundir ójöfnuðar milli hópa og svæða? Leitast verður við að svara þessum og fleiri spurningum í rannsóknarverkefninu Stafræn samfélög, tækni og gervigreind (DIG-ICE).
Skrifað var undir samstarfssamning á milli Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands um opnun háskólaskrifstofu í Brussel í morgun. Silja Bára Ómarsdóttir, rektor HÍ, og Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR, gerðu það.
Fjölmenni sótti 30 ára afmælishátíðið kynjafræði við Háskóla Íslands í Veröld – húsi Vigdísarföstudaginn 25. september. Þar var litið yfir þróun greinarinnar frá því kennsla hófst við skólann árið 1996 og sjónum beint að framlagi hennar til rannsókna, kennslu og samfélagsumræðu.
Mikið fjör var á Vísindavöku í ár