Johan Rocktröm

Johan Rockström, forstjóri Potsdam-stofnunarinnar um rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga (PIK) og einn fremsti vísindamaður heims á sviði sjálfbærni og loftslagsmála, er væntalegur til Íslands og heldur erindi á opnu málþingi í Háskólabíói föstudaginn 9. október kl. 9-10.30. Rockström hefur leitt þróun ramma um þolmörk jarðar (e. Planetary Boundaries) en nýjustu vísindalegu niðurstöður sýna að mannkynið hefur nú þegar farið út fyrir sjö af níu þolmarkanna.

Eftir 11.000 ára tímabil þar sem loftslag jarðar hefur verið óvenju stöðugt stendur mannkynið nú frammi fyrir fjölþættum áskorunum sem ógna bæði manngerðu umhverfi og náttúrulegum vistkerfum, heilsu og velferð fólks, efnahagslegri afkomu og stöðugleika hagkerfa. Þessar margvíslegu og samtengdu umhverfisbreytingar á heimsvísu ógna jafnframt stöðugleika jarðkerfisins og þar með þeim grunni sem þróun samfélaga byggist á.

Öfgakenndir veðuratburðir aðeins ein af afleiðingum hlýnunar jarðar

Í erindi sínu mun Rockström fara yfir nýjustu vísindalegu þekkingu á þeirri áhættu sem fylgir röskun á stöðugleika jarðkerfis og loftslags og hvernig sú þekking kallar á endurskoðun á skilningi okkar á sjálfbærni og sjálfbærri þróun. Rammi, sem Rockström þróaði ásamt ásamt samstarfsfólki, tilgreinir innan hvaða marka mannkyn þarf að halda sig til að vernda stöðugleika náttúrulegra kerfa jarðar og skapa góð skilyrði fyrir framtíðina. Nýjar niðurstöður sýna sem fyrr segir að mannkynið hefur nú þegar farið út fyrir sjö af níu þolmörkum jarðar.

Vísindin eru skýr, segir Rockström. Aukin tíðni og ákefð öfgakenndra veður- og loftslagsatburða er aðeins ein af afleiðingum þess að hlýnun jarðar fari yfir 1,5 °C, sem teljast raunveruleg mörk út frá líffræðilegum og eðlisfræðilegum ferlum jarðkerfisins. Fari hlýnunin yfir þessi mörk aukast verulega líkur á að farið verði yfir marga vendipunkta (e. Tipping Points) í jarðkerfinu með tilheyrandi hættu á keðjuverkandi umskiptum sem erfitt eða ómögulegt getur reynst að snúa við.

Enn er þó tækifæri til að snúa þróuninni við, að sögn Rockströms, og færa athafnir mannkyns aftur inn fyrir örugg þolmörk jarðar. Leiðin til baka er þó ekki línuleg heldur krefst hún róttækra kerfisbreytinga í öllum þeim atvinnu- og samfélagsgeirum sem hafa áhrif á þolmörk jarðar.

Málþingið með Rockström er opið öllum en skráning er nauðsynileg.

Málþingið er er hluti af viðburðaröðinni Loftslagsmál og rannsóknir sem hefur það markmið að skapa vettvang fyrir upplýsta umræðu um loftslagsrannsóknir og hlutverk þeirra í stefnumótun og ákvarðanatöku. Málþingið er haldið í samstarfi Sjálfbærnistofnunar Háskóla Íslands, Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, námsbrautar í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands, Líf- og umhverfisvísindadeildar Háskóla Íslands, Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands og Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil