Fulltrúar HÍ og HR i Brussel

Skrifað var undir samstarfssamning á milli Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands um opnun háskólaskrifstofu í Brussel í morgun. Silja Bára Ómarsdóttir, rektor HÍ, og Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR, gerðu það.

Meðal helstu verkefna skrifstofunnar verður að auka sýnileika skólanna á alþjóðavettvangi og bæta aðstöðu skólanna til að sækja fé í styrkjakerfi Evrópusambandsins til rannsókna og nýsköpunar.

„Langflestir norrænir háskólar eru nú þegar með viðveru í Brussel, og við teljum mikilvægt að slást í þennan hóp og vera þar sem stefnumótun í mikilvægum hagsmunamálum okkar á sér stað,“ segir Silja Bára Ómarsdóttir, rektor HÍ.

„Opnun háskólaskrifstofu er gleðiefni. Við væntum þess að með opnuninni muni staða íslenskra háskóla styrkjast á alþjóðasviðinu og skrifstofan mun klárlega styðja við styrkjasókn. Við vorum glöð að fá styrk til að koma þessu af stað og vonandi verða allir háskólar landsins með í framtíðinni,“ segir Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR.

silja Bára og ragnhildur helgadóttir
Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Hákóla Íslands, og Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, handsala samstarfssamninginn í Brussel.

Á skrifstofunni verður einn starfsmaður en skólarnir tveir fengu 40 milljónar króna styrk frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu fyrir verkefnið 2024. Um hlutverk skrifstofunnar segir í samstarfssamningi:

„Meginmarkmið Háskólaskrifstofu í Brussel (HSB) er að efla stuðningskerfi við sókn íslenskra háskóla í Evrópska samkeppnissjóði á sviði rannsókna og menntunar og að auka sýnileika og áhrif þeirra á alþjóðlega vísu. Verkefnið er undirbúið og leitt sameiginlega af HÍ og HR en öðrum íslenskum háskólum verður boðin aðild að því gegn hóflegri þátttöku í kostnaði við rekstur og starfsmannahald. Við undirbúning verkefnisins hefur verið horft til fordæma frá öðrum norrænum háskólum sem hafa góða reynslu af slíkri starfsemi og er að þeirra mati liður í betri árangri þeirra við öflun styrkja úr evrópskum samkeppnisáætlunum.“

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil