fyrirlesrar


Fjölmenni sótti 30 ára afmælishátíðið kynjafræði við Háskóla Íslands í Veröld – húsi Vigdísarföstudaginn 25. september. Þar var litið yfir þróun greinarinnar frá því kennsla hófst við skólann árið 1996 og sjónum beint að framlagi hennar til rannsókna, kennslu og samfélagsumræðu.

Viðburðurinn hófst með ávarpi Silju Báru R. Ómarsdóttur, rektors Háskóla Íslands, og í kjölfarið flutti fræðafólk og sérfræðingar erindi um stöðu kynjafræðinnar og áhrif greinarinnar á samfélagið. Viðburðinum lauk með kveðjuskál þar sem Þorgerður Jennýjardóttir Einarsdóttir, prófessor emeríta í kynjafræði, flutti kynjafræðinni og samstarfsfólki kveðjuávarp en hún hefur verið einn af frumkvöðlum kynjafræðinnar við Háskóla Íslands og lætur nú af störfum eftir áratugastarf við uppbyggingu greinarinnar, rannsókna og kennslu. Á hátíðinni var einnig boðið upp á menningarinnslög sem endurspegluðu þá fjölbreytni og samfélagslegu skírskotun sem einkennt hefur kynjafræðina frá upphafi.

Silja Bára
Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, hélt ávarp á hátíðinni. MYND/Tryggvi Már Gunnarsson

Námið svaraði brýnni þörf

Þótt kennsla í kynjafræði hafi formlega hafist við Háskóla Íslands haustið 1996 á námið sér lengri aðdraganda. Fræðikonur við skólann höfðu um árabil stundað rannsóknir á stöðu kvenna og kennt námskeið á sviði kvennafræða, en þau fyrstu voru námskeið Helgu Kress og Sigríðar Th. Erlendsdóttur á sviði hugvísinda og námskeið Dóru S. Bjarnason og Guðnýjar Guðbjörnsdóttur á sviði félagsvísinda. Áhugi á efninu óx jafnt og þétt á níunda og tíunda áratugnum og varð að lokum til grundvöllur að sjálfstæðu fræðasviði innan háskólans.

Á þeim þremur áratugum sem liðnir eru hefur kynjafræðin þróast úr grasrótarverkefni sem byggði að miklu leyti á frumkvæði og eljusemi einstakra fræðikvenna yfir í rótgróna og viðurkennda námsleið með öflugu þverfræðilegu rannsóknaumhverfi og víðtæku alþjóðlegu samstarfi.

Gyða margrét og Þorgerður einars

„Námið svaraði brýnni þörf og vakti mikinn áhuga frá upphafi. Á sama tíma þurfti að berjast fyrir viðurkenningu greinarinnar og sýna fram á mikilvægi hennar bæði innan háskólasamfélagsins og í samfélaginu almennt,“ segir Þorgerður Jennýjardóttir Einarsdóttir, prófessor emeríta.

Háskóli Íslands er eina háskólastofnun landsins sem býður upp á nám í greininni á öllum námsstigum. Áhersla hefur frá upphafi verið lögð á að samþætta rannsóknir og kennslu og rækta virk tengsl við samfélagið. Kynjafræðingar frá Háskóla Íslands starfa nú á fjölbreyttum vettvangi, meðal annars í stjórnsýslu, atvinnulífi, menningu, rannsóknum, kennslu og hjá félagasamtökum.

Embla skammar þríhyrningur
Embla Guðrúnar Ágústsdóttir sviðslistamaður, sjálfstætt starfandi fræðimaður, aðgerðasinni og fyrirlesari, flutti einræðu úr Skammarþrihyrningnum. MYND/Tryggvi Már Gunnarsson

Áhrifin langt út fyrir veggi skólans

Rannsóknir á sviði kynjafræði hafa jafnframt haft áhrif langt út fyrir veggi skólans og varpað nýju ljósi á málefni sem tengjast jafnrétti, valdatengslum og félagslegum breytingum.

„Kynjafræðin á ekki síður erindi í dag en þegar kennsla hófst fyrir 30 árum. Hún veitir okkur tæki til að rannsaka og skilja hvernig kyn, vald og ójöfnuður verða til, viðhaldast og breytast, jafnvel í samfélögum sem líta á sig sem jafnréttissinnuð,“ sagði Gyða Margrét Pétursdóttir, prófessor í kynjafræði og fundarstjóri afmælishátíðarinnar.

Afmælið markar mikilvæg tímamót í sögu kynjafræðinnar við Háskóla Íslands, sem nú ber heitið kynja- og margbreytileikafræði og endurspeglar þannig fræðilega þróun innan greinarinnar, og er um leið tilefni til að minnast þeirra sem ruddu greininni braut og lögðu grunn að því öfluga starfi sem hún stendur á í dag.

kór
Valin atriði úr Merg Katrínar Lóu Hafsteinsdóttur sviðshöfundar voru flutt á afmælishátíðinni. MYND/Tryggvi Már Gunnarsson

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil