Þegar maður hugsar um víkinga, skandinavíska sæfara sem réðu lögum og lofum á hafi úti frá 8. til 11. aldar, er ekki ólíklegt að maður sjái fyrir sér tugi kraftalegra manna róa langskipi á leið í víking til að ræna klaustur og þorp víða um Evrópu. Þessi ímynd er orðin rótgróin í alþjóðlegri dægurmenningu og hefur meðal annars verið fest í sessi í kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og bókmenntum.
Siglingar voru augljóslega þrungnar merkingu í menningu Norðurlanda sem sést meðal annars af því að fólk var grafið í bátum. Slíkar grafir eru kallaðar bátskuml og þegar fleyin eru mjög stór, skipsgrafir. Útförum af þessu tagi var hagað með ýmsum hætti og þær tíðkuðust víða. Fjölmargar bátsgrafir hafa fundist á meginlandi Skandinavíu, Íslandi, Bretlandseyjum og við Eystrasalt.
Bátskuml endurspegla bæði heimsmynd og hugsunarhátt fólks á víkingaöld. Fræðafólk hefur deilt um hvort tilgangurinn hafi verið að flytja hinn látna yfir í framhaldslífið eða til að undirstrika stöðu og virðingu hans innan samfélagsins. Líklega á hvort tveggja við. Þótt bátskuml hafi ef til vill ekki verið jafn algeng og dægurmenning nútímans gefur til kynna og ekki er vitað nákvæmlega hvernig þau litu út eru þau orðin órjúfanlegur hluti af sameiginlegri hugmynd fólks um víkingaöldina.
Fá skip, sem grafin hafa verið upp úr jörðu, hafa fundist með jafn vel varðveitt tréverk og Ásubergsskipið fræga í Noregi. Til að skilja betur þennan útfararsið og merkingu hans þurfum við því að spyrja: Hversu algengar voru bátsgrafir á víkingaöld og hvernig litu þær í raun út?
Naglar notaðir til að greina bátsgrafir
Luna Polinelli, doktorsnemi í fornleifafræði við Hugvísindasvið Háskóla Íslands, fæst einmitt við þessar spurningar en hún rannsakar nú bátskuml frá víkingaöld. Bátar geta komið fyrir sem haugfé í kumlum frá víkingaöld og hafa lengi verið þrætuepli meðal fræðimanna.
Luna bendir á að bátskuml geti verið afar ólík og að flestar leifar báta og skipa séu fyrst og fremst greindar út frá nöglum sem finnast við fornleifauppgröft.
„Sums staðar finnast naglarnir á upphaflegum stað og gefa því skýrar vísbendingar um að bátur hafi verið til staðar. Annars staðar hafa naglarnir dreifst og það getur gert slíka greiningu erfiðari. Því þarf að rannsaka naglana með kerfisbundnum hætti til að styðja þá tilgátu að bátur hafi verið til staðar.“
Bátskuml eru mikilvæg fyrir skilning okkar á víkingaaldarsamfélaginu almennt, meðal annars trúarbrögðum, samfélagsgerð, kyngervi og sjálfsmynd. Auk þess geta þau varpað ljósi á alþjóðleg viðskipti og tengsl. Það sem hefur hins vegar torveldað rannsóknir á slíkum kumlum er hve erfitt er að ákvarða hvort bátur hafi verið í tilteknu kumli eða ekki.
„Við þurfum traustari aðferðafræði til að endurmeta tíðni og útbreiðslu bátskumla svo hægt sé að byggja fræðilega umræðu um merkingu þeirra og mikilvægi á traustari grunni í framtíðinni,“ segir Luna.