gervigreind

Mun gervigreind draga úr ójöfnuði, auka hann eða jafnvel skapa nýjar tegundir ójöfnuðar milli hópa og svæða? Leitast verður við að svara þessum og fleiri spurningum í rannsóknarverkefninu Stafræn samfélög, tækni og gervigreind (DIG-ICE). Verkefninu verður hleypt af stokkunum með málþingi í stofu 218 í Eddu þriðjudaginn 29. september kl. 15–17.

Gervigreindin hefur þegar breytt því hvernig við vinnum, eigum samskipti, sköpum, nálgumst upplýsingar og tökum ákvarðanir. Afleiðingar þessarar umbreytingar koma þó ekki jafnt niður á fólki. Til að varpa ljósi á þessar ójöfnu afleiðingar nýtir rannsóknarhópurinn nýleg gögn úr Alþjóðlegu viðhorfakönnuninni (ISSP), sem lögð var fyrir í 27 löndum árið 2024. Þar er meðal annars spurt um stafræna færni, netnotkun og samskipti á netinu auk viðhorfa til gervigreindar. Niðurstöðurnar verða einnig nýttar til að móta eigindlegar rannsóknir á Íslandi sem dýpka eiga skilning á stafrænum samfélögum og ójöfnuði innan þeirra.

Verkefnið hlaut styrk úr Rannsóknarsjóði Rannís og að því stendur hópur fræðafólks af þremur fræðasviðum Háskóla Íslands. Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði, stýrir verkefninu. Í rannsóknarhópnum eru einnig Ásdís Arnalds, lektor í félagsráðgjöf, Finnur Dellsén, prófessor í heimspeki, Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði, Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði, Kári Kristinsson, prófessor í viðskiptafræði, Ragna Kemp Haraldsdóttir, dósent í upplýsingafræði, Valgerður Anna Jóhannsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði, og Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði. Að verkefninu koma jafnframt nýdoktor og doktorsnemi á Félagsvísindasviði auk tveggja erlendra fræðimanna sem staddir eru hér á landi: Chris Bail, prófessor við Duke-háskóla í Bandaríkjunum, og Matti Nelimarkka, dósent við Háskólann í Helsinki.

Á málþinginu kynna erlendir samstarfsmenn verkefnisins rannsóknir sínar. Matti Nelimarkka flytur erindið The Rise of the AI Elite, þar sem hann fjallar um hverjir skapa gervigreind og hverjir fá aðgang að þeim fámenna og valdamikla hópi. Chris Bail flytur erindið Bridging Divides with Generative AI. Þar kynnir hann rannsókn á því hvort stór mállíkön geti veitt fólki gagnreyndan stuðning í rauntíma þegar ágreiningur kemur upp á samfélagsmiðlum og öðrum stafrænum vettvöngum. Niðurstöður hans benda til þess að slík aðstoð geti bætt gæði samtala og aukið vilja fólks til að ræða saman þrátt fyrir ólíkar skoðanir.

Málþingið fer fram á ensku og öll eru velkomin.

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil