Umræðu um aðgengi fatlaðs fólks og jafnan aðgang þess að stafrænni þjónustu í stefnuskjölum hins opinbera í málaflokknum skortir. Þetta sýna fyrstu niðurstöður rannsóknar á réttindum fatlaðs fólks og möguleikum þess til þátttöku í samfélaginu.
Að rannsókninni stendur Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, doktorsnemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. „Samfélög ætlast í sífellt meira mæli til þess að almenningur taki þátt í stafrænni þróun en of oft er það þannig að ekki er hugsað fyrir aðgengi ólíkra hópa þegar verið er að innleiða stafræna þjónustu eða nýja tækni,“ segir Inga Björk.
Stafræn tækni ekki aðgengileg fyrir öll
Aðspurð um tilurð rannsóknarinnar segist Inga Björk lengi hafa haft áhuga á tækni og áhrifum hennar á fatlað fólk.
„Oft hefur tæknin mikil og góð áhrif á lífsgæði fatlaðs fólks, en því miður er hún oft óaðgengileg,“ segir hún og nefnir sem dæmi að fatlað fólk geti ekki auðkennt sig því það hefur ekki aðgang að rafrænum skilríkjum.
„Þetta verður til þess að fólk rennur út á tíma og skráist út, til dæmis við innskráningu, miðakaup eða viðskipti í heimabanka. Einnig skilur fólk ekki alltaf viðmót á vefsíðum því það er gert ráð fyrir að fólk hafi mikla færni í miðlalæsi og eigi til dæmis auðvelt með að finna út úr því hvernig á að leita að ferðum hjá Strætó eða horfa á streymi hjá RÚV.“
Ákveðinn vendipunktur varð þegar Inga Björk hóf störf hjá Landssamtökunum Þroskahjálp árið 2019. „Þá sá ég svart á hvítu hve miklum vandræðum fólk með þroskahömlun og aðstandendur þeirra sem voru þeim til aðstoðar lentu í vegna tækninnar. Mig langaði því að gefa mér tíma til þess að kafa ofan í þessi mál,“ segir hún.
Rýnt í stefnur stjórnvalda í stafrænum málum
Inga Björk vinnur rannsóknina undir leiðsögn Laufeyjar Elísabetar Löve, dósents við Deild menntunar og margbreytileika við Menntavísindasvið, og Ingólfs Ásgeirs Jóhannessonar, prófessors emeritus við sömu deild.
Rannsóknin byggist annars vegar á greiningu á stefnum stjórnvalda í stafrænum málum og hins vegar á viðtölum. Inga Björk tók viðtöl við fatlað fólk, starfsfólk sem vinnur að stafrænni þróun hjá hinu opinbera og talsmenn hagsmunasamtaka fatlaðs fólks til þess að fá sjónarhorn fjölbreyttra hagaðila á stöðu stafrænnar þróunar hjá hinu opinbera.