Arctic Circle

Stór hópur starfsfólks og stúdenta Háskóla Íslands tekur þátt í Hringborði norðurslóða (Arctic Circle) sem fram fer í Hörpu dagana 8.-10. október. Skólinn tekur forskot á sæluna með hliðarviðburði um áskoranir á norðurslóðum miðvikudaginn 7. október.

Arctic Circle er ein stærsta árlega ráðstefnan í heiminum á sviði norðurslóða en hún hefur verið haldin í Hörpu frá árinu 2013. Á Hringborðið mætir fólk alls staðar að úr heiminum, á þriðja þúsund manns, til þess að ræða framtíð norðurslóða og reyndar jarðarinnar allrar. Meðal þátttakenda eru fulltrúar frumbyggja á norðurslóðum, stjórnvalda, samtaka, atvinnulífs, háskóla, hugveita, umhverfissamtaka og almennings.

Hringborði norðurslóða er ekki síst ætlað að efla samtal og samstarf um framtíð og þróun norðurskautsins, en talið er að mikilvægi norðurslóða muni aukast á næstu áratugum, ekki síst vegna loftslagsbreytinga. Vísindafólk Háskóla Íslands af fjölbreyttum fræðasviðum hefur frá upphafi tekið virkan þátt í ráðstefnunni, bæði með því að skipuleggja eigin málstofur og taka þátt í málstofum annarra.

Undanfarin ár hefur Háskóli Íslands jafnframt staðið fyrir hliðarviðburði í aðdraganda ráðstefnunnar og engin breyting er á því í ár. Miðvikudaginn 7. október munu Háskóli norðurslóða (UArctic) og Háskóli Íslands bjóða til málþings í Hátíðasal HÍ um áskoranir norðurslóða með þátttöku fræðafólks, sérfræðinga og fagfólks víða að.

Á málþinginu verður fengist við spurningar tengdar samkeppni stórvelda og öryggismál, vaxandi eftirspurn eftir auðlindum og áhrif hennar á umhverfisvernd, lærdómi sem sækja má til íshvolfssvæða á tímum hraðra umhverfisbreytinga og áhrifum loftslagsbreytinga og umsvifa manns á líffræðilega fjölbreytni. Ráðstefnan hefst kl. 13 í Hátíðasal og er öllum opin.

Málþingið verður í streymi.

Arctic Circle
Fjölbreyttur hópur sérfræðinga innan HÍ tekur þátt í Arctic Circle. MYND/Artic Circle

Ógnir, umhverfismál og sjálfsmyndir á norðurslóðum

Á ráðstefnunni sjálfri í Hörpu stendur skólinn og stofnanir og svið innan hans, eins og Alþjóðamálastofnun, Norðurslóðasetur og Hugvísindasvið, fyrir fjölbreyttum málstofum í samtarfi við innlenda og erlenda háskóla og stofnanir með þátttöku fjölmargra sérfræðinga skólans.

Má þar nefna málstofur sem snerta

  • stríðsleikjaógnir á norðurslóðum
  • stefnu Bandaríkjanna á norðurslóðum og áhrif á samtarf innan NATO
  • framtíð græns vetnis
  • sjálfsmyndir, völd og stefnumörkun á svæðinu
  • umhverfishugvísindi og sköpun á norðurslóðum
  • norðurslóðastefnu ESB
  • samstarf Íslands og Japans um norðurslóðamál
  • jökla og ís á landi, samspil þeirra við breytt loftslag og áhrif á samfélög.

Fræðafólk tekur einnig þátt í málstofum á vegum annarra skóla og stofnana, m.a. um upplýsingastríð og blendingsógnir á norðurslóðum.

Auk þess er von á hópi nemenda á ráðstefnuna en þau eru þátttakendur í námskeiði við HÍ sem helgað er henni. Markmiðið með námskeiðinu er meðal annars að kynna málefni norðurslóða og tengingu þeirra við ólík fræðasvið fyrir nemendum en ekki síður hlutverk og samspil milli fræðilega og hagnýtra rannsókna, sveitarstjórna og ríkisstjórna og frjálsra félagasamtaka og almennings á svæðinu. Þá er ætlunin að nemendur geti metið hentugleika mismunandi aðferða við greiningu og flókin vísindaleg viðfangsefni fyrir rannsóknir og ákvarðanatöku tengd málefnum norðurslóða.

Háskóli Íslands verður einnig með bás á sýningarsvæði ráðstefnunnar þar sem gestir og gangandi geta m.a. kynnt sér ólíkar hliðar norðurslóðarannsókna í Háskóla Íslands, ýmist í spjalli við starfsfólk og nemendur eða á myndböndum.

Hægt er að kynna sér nám og rannsóknir í HÍ tengdar norðurslóðum á vef skólans.

Dagskrá Hringborðs norðurslóða í heild sinni má finna á vef ráðstefnunnar.

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil