Anne Carson

Anne Carson, sérfræðingur í klassískum fræðum, skáld og þýðandi, hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár. Carson hlaut Vigdísarverðlaunin 2023, verðlaun sem íslensk stjórnvöld, Háskóli Íslands og Vigdísarstofnun veita árlega.

Nóbelsverðlaunin hlýtur Carson fyrir djarft og hugvitssamlegt höfundarverk sem í fjörugu samspili við klassíska hefð hefur skapað nýtt form fyrir samtímabókmenntir, eins og segir í umsögn valnefndar vegna verðlaunanna.

Carson er fædd í Kanada en hefur verið með íslenskan ríkisborgararétt frá árinu 2022. Hún hefur lengst af starfað sem prófessor í klassískum fræðum og kennt grísku og klassískar grískar bókmenntir við háskóla vestan hafs, meðal annars McGill, Princeton og New York-háskóla. Hún er einnig þekkt ljóðskáld, prósahöfundur, esseyisti og þýðandi.

Fyrir framlag sitt til i tungumála og menningar hlaut Carson Vigdísarverðlaunin 2023 en þau eru veitt árlega einstaklingi sem brotið hefur blað með störfum sínum í þágu tungumála, menningar og þýðingastarfs. Íslensk stjórnvöld, Háskóli Íslands og Vigdísarstofnun – alþjóðleg miðstöð tungumála og menningarstofnuðu stofnuðu til verðlaunanna í tilefni af stórafmæli Vigdísar Finnbogadóttur árið 2020 en þá voru jafnframt liðin 40 ár frá sögulegu forsetakjöri hennar.


Anne Carson og Vigdís Finnbogadóttir

„Framlag Anne Carson á sviði tungumála og menningar hefur vakið óskipta athygli í fræðum og listum. Efni skáldverka hennar er á stundum samofið arfi klassískrar menningar og gefur jafnframt vísbendingu um djúpstætt samband hugvísinda og listsköpunar. Hún hefur þýtt sum af helstu verkum klassískra bókmennta á forngrísku og latínu, og í skáldverkum ferjað ægifagra sýn harmleikjaskálda á svið samtímamenningar. Hún sver sig þannig í ætt við heimsþekkta rithöfunda nútímans sem fanga samspil sköpunar og eyðingar í mannlegri tilvist og samfélagi með því að horfa til arfs klassískrar menningar. […] Með störfum sínum á sviði klassískra fræða, skáldskapar og þýðinga er Anne Carson verðugur handhafi Vigdísarverðlaunanna 2023,“ sagði m.a. í umsögn stjórnar Vigdísarverðlauna þegar tilkynnt var um verðlaunin. Í stjórn sátu Rósa Signý Gísladóttir, dósent í málvísindum, Birna Bjarnadóttir, rannsóknalektor í bókmenntum, og Sigtryggur Magnason, íslenskufræðingur og þáverandi aðstoðarmaður innviðaráðherra.

Carson tók við Vigdísarverðlaununum 6. október árið 2023 á hátíðlegri athöfn í Háskóla Íslands. Við það tilefni flutti hún fyrsta fyrirlesturinn í Guttorms J. Guttormssonar fyrirlestraröð Háskóla Íslands. Hann má lesa á vef Vigdísarstofnunar.

Upptöku af athöfninni má finna hér.

Háskóli Íslands færir Anne Carlson innilegustu hamingjuóskir með bókmenntaverðlaun Nóbels.

Anne Carson Vigdísarverðlaun
Frá afhendingu Vigdísarverðlaunanna í Hátíðasal HÍ 6. október. Frá vinstri: Sigrún Brynja Einarsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Anne Carson, Vigdís Finnbogadóttir, Jón Atli Benediktsson og Ólöf Garðarsdóttir. MYND/Kristinn Ingvarsson

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil