Anne Carson, sérfræðingur í klassískum fræðum, skáld og þýðandi, er handhafi Vigdísarverðlaunanna 2023. Verðlaunin eru árlega veitt einstaklingi sem brotið hefur blað með störfum sínum í þágu tungumála, menningar og þýðingastarfs.
Íslensk stjórnvöld, Háskóli Íslands og Vigdísarstofnun – alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar efndu til Vigdísarverðlauna í tilefni af stórafmæli Vigdísar Finnbogadóttur vorið 2020, en þá voru jafnframt liðin 40 ár frá sögulegu forsetakjöri hennar. Stuðningur Vigdísar við mikilvægi tungumála og menningar hefur öðrum þræði einkennt ævistarf hennar, en hún er velgjörðarsendiherra tungumála hjá UNESCO (Mennta, menningar- og vísindastofnun Sameinuðu þjóðanna). Rektor Háskóla Íslands og fulltrúi menningar- og viðskiptaráðherra munu afhenda Carson verðlaunin við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands 6. október næstkomandi og mun Carson flytja erindi af því tilefni.
Anne Carson er fædd í Kanada. Hún hefur lengst af starfað sem prófessor í klassískum fræðum og kennt grísku og klassískar grískar bókmenntir við háskóla vestan hafs, meðal annars McGill, Princeton og New York-háskóla. Hún er einnig þekkt ljóðskáld, prósahöfundur, esseyisti og þýðandi. Framlag Anne Carson á sviði tungumála og menningar hefur vakið óskipta athygli í fræðum og listum. Efni skáldverka hennar er á stundum samofið arfi klassískrar menningar og gefur jafnframt vísbendingu um djúpstætt samband hugvísinda og listsköpunar. Hún hefur þýtt sum af helstu verkum klassískra bókmennta á forngrísku og latínu, og í skáldverkum ferjað ægifagra sýn harmleikjaskálda á svið samtímamenningar. Hún sver sig þannig í ætt við heimsþekkta rithöfunda nútímans sem fanga samspil sköpunar og eyðingar í mannlegri tilvist og samfélagi með því að horfa til arfs klassískrar menningar.