Verkefnið ArcticKnows, sem Háskóli Íslands á Hólum er þátttakandi í, verður kynnt á Arctic Circle Assembly 2026, sem fram fer í Hörpu dagana 8.–10. október. Ráðstefnan er ein stærsta alþjóðlega samkoma sinnar tegundar um málefni norðurslóða og dregur árlega að sér fræðafólk, stjórnmálafólk, sérfræðinga og hagsmunaaðila víðs vegar að úr heiminum.
ArcticKnows verður með kynningarbás á svæði EU Polar Cluster á annarri hæð Hörpu þar sem gestum gefst kostur á að fræðast um verkefnið, markmið þess og rannsóknastarf sem tengist sjálfbærri þróun og samfélögum á norðurslóðum.
Fyrir hönd Háskóla Íslands á Hólum verða þau Anna Guðrún Edvardsdóttir og Þorbjörn Kristjánsson á staðnum og kynna þátttöku skólans í verkefninu.
ArcticKnows er alþjóðlegt rannsóknar- og nýsköpunarverkefni sem hlotið hefur styrk úr Horizon Europe áætlun Evrópusambandsins. Markmið verkefnisins er að bæta aðgengi að þekkingu og gögnum um norðurslóðir og styðja við upplýsta ákvarðanatöku sem stuðlar að sjálfbærri þróun svæðisins. Verkefnið leggur sérstaka áherslu á samstarf vísindafólks, stjórnvalda, atvinnulífs og samfélaga á norðurslóðum.
Þátttaka Háskóla Íslands á Hólum í ArcticKnows endurspeglar mikilvægt framlag skólans til rannsókna og alþjóðlegs samstarfs á sviði sjálfbærni, samfélagsþróunar og málefna norðurslóða.
Gestir Arctic Circle ráðstefnunnar eru hvattir til að heimsækja bás ArcticKnows og kynna sér fjölbreytt starf verkefnisins.