Hvaða þættir móta viðhorf til peninga og notkun þeirra? Og hvernig hefur reynslan af því að flytja á milli landa áhrif á þessi viðhorf og notkun? Þetta eru spurningar sem leitast verður við að svara í verkefninu Peningar, sparnaður og hreyfanleiki milli Póllands og Íslands.
Kennslumiðstöð Háskóla Íslands og Kennsluakademía opinberu háskólanna fengu dagana 12.–13. október heimsókn frá dr. Briony Supple, lektor við University College Cork á Írlandi.
Minningarsjóður Erlendar Jónssonar og Mörtu Ágústsdóttur auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum.
Hvernig lærir maður íslensku með hjálp bleikju? Í Fiskeldis- og fiskalíffræðideild HÍ á Hólum hittast alþjóðlegir nemendur og starfsfólk í Vísindahádegi þar sem íslenskunám, vísindi og skemmtilegir leikir fara saman.
Háskóli Íslands brautskráði 242 kandídata í dag á þriðju brautskráningu ársins og streymdu þeir í Aðalbyggingu skólans til að sækja útskriftarskírteini sín.
Dr. Enrique del Acebo Ibáñez, prófessor í félagsfræði við University of Salvador og University of Buenos Aires í Argentínu, tók í gær við heiðursdoktorsnafnbót Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideildar fyrir frjótt og farsælt samstarf sitt við Háskóla Íslands.
Fulltrúar frá Geimvísindastofnun Evrópu, aðgerðateymi Sameinuðu þjóðanna um starfsemi á tunglinu, Secure World Foundation og fræðafólk víða að úr heiminum, þar á meðal frá HÍ, koma saman hér á landi um helgina til að leggja grunn að alþjóðlegri vísindanefnd sem mun veita stefnumótendum ráðgjöf um sjálfbæra nýtingu geimsins.
Fjögur verkefni hafa hlotið styrk úr Sagnfræðisjóði Aðalgeirs Kristjánssonar og er þetta í annað skipti sem úthlutað er úr sjóðnum.
Þrátt fyrir að Ísland sé í efsta sæti yfir kynjajafnrétti á heimvísu bendir nýbirt rannsókn til þess að nýjar birtingarmyndir kynferðisofbeldis, þar á meðal þrenging að öndunarvegi í kynlífi án samþykkis, byrlun og stafrænt ofbeldi, séu sláandi algengar meðal yngri kvenna.
Veittur hefur verið styrkur úr Almanakssjóði vegna útgáfu Almanaks Háskólans. Almanakið hefur komið út samfellt frá árinu 1837 og nýlega kom 191. árgangur þess út.