LEGO

Kennslumiðstöð Háskóla Íslands og Kennsluakademía opinberu háskólanna fengu dagana 12.–13. október heimsókn frá dr. Briony Supple, lektor við University College Cork á Írlandi. Heimsóknin var styrkt af Erasmus+ og var markmið hennar að efla alþjóðlegt samstarf og skapa vettvang fyrir samtal um kennslu.

Briony stýrði tveimur viðburðum. Hún hélt gagnvirka vinnustofu í samstarfi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands þar sem þátttakendur kynntust aðferðinni LEGO® Serious Play® (LSP). Aðferðin byggist á því að nota LEGO-kubba til að ígrunda eigin reynslu, takast á við viðfangsefni með skapandi hætti og ræða fjölbreytt viðfangsefni sem tengjast kennslu og námi. Briony er vottaður LEGO® Serious Play® leiðbeinandi og þjálfari og hefur reynslu af því að nýta aðferðina í háskólasamfélaginu.

Vinnustofan fór fram í kennsluaðstöðu hönnunar og smíði í boði Sveins Bjarka Tómassonar, lektors við Menntavísindasvið. Hann hefur um árabil nýtt LEGO í kennslu á yngsta og miðstigi grunnskóla, meðal annars í þjarkasmíði, forritun, náttúrufræði, hreyfimyndagerð og nýsköpunarmennt.

Fræðimennska um nám og kennslu á tímum gervigreindar

Einnig stýrði Briony einnig málstofu um fræðimennsku náms og kennslu (Scholarship of Teaching and Learning, SoTL) í umhverfi gervigreindar.

Í málstofunni kynnti hún hvernig unnið er með SoTL við University College Cork, meðal annars innan framhaldsnáms í kennslu og námi. Sérstök áhersla var lögð á hvernig tilkoma skapandi gervigreindar vekur nýjar spurningar um kennsluhætti, námsmat, siðfræði og akademíska starfshætti.

Fræðimennska um nám og kennslu er ein af meginstoðum Kennsluakademíu opinberu háskólanna, en markmið hennar er að efla umræðu um kennslu og kennsluþróun innan og á milli háskóla.

Viðburðirnir tveir áttu það sameiginlegt að beina sjónum að mikilvægi samtals og samstarfs í kennsluþróun. Kennsluþróun byggist ekki aðeins á nýjum aðferðum og tækni heldur einnig á því að kennarar hafi tækifæri til að læra hver af öðrum og ræða eigin kennsluhætti.

Myndir frá heimsókn Briony Supple má sjá hér að neðan.

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil