Hvaða þættir móta viðhorf til peninga og notkun þeirra? Og hvernig hefur reynslan af því að flytja á milli landa áhrif á þessi viðhorf og notkun? Þetta eru spurningar sem verkefnið Peningar, sparnaður og hreyfanleiki milli Póllands og Íslands leitast við að svara en að því kemur þverfræðilegur hópur fræðafólks við Háskóla Íslands og háskóla í Póllandi. Verkefnið var kynnt fyrir almenningi í Norræna húsinu 29. september síðastliðinn eftir að rannsóknarhópurinn lauk tveggja daga fundarhöldum.
Í verkefninu er sjónum sérstaklega beint að athöfnum og viðhorfum til peninga í Póllandi og á Íslandi og meðal pólskra innflytjenda á Íslandi og hinnar svokölluðu annarar kynslóðar Pólverja á Íslandi. Í verkefninu eru nýttar eigindlegar og megindlegar aðferðir og sjónarhorn úr fjármálafræði og mannfræði til að greina hugmyndir um peninga og hvaða áhrif fólksflutningar hafa á slíkar hugmyndir.
Verkefnið hlaut styrk úr Rannsóknasjóði Rannís og að því kemur fræðafólk úr viðskiptafræði og mannfræði við Háskóla Íslands og frá þremur háskólum í Póllandi. Már Wolfgang Mixa, prófessor í viðskiptafræði leiðir verkefnið. Í rannsóknarhópnum eru einnig Anna Maria Wojtynska, lektor í mannfræði, Kristín Loftsdóttir, prófessor í mannfræði, Unnur Dís Skaptadóttir, prófessor í mannfræði, Guðrún Sif Friðriksdóttir, nýdoktor á Félagsvísindasviði, Sylwester Bialowas, prófessor í hagfræði við Poznan-háskóla í Póllandi, Piotr Kowzan, aðjúnkt í menntavísindum við Háskólann í Gdansk, og Marek Pawlak, dósent í mannfræði við Jagellonian háskóla í Krakow í Póllandi.
Gagnaöflun er hafin og fyrstu niðurstöður byggðar á gögnum sem þegar hafa verið safnað verða kynntar á Þjóðarspeglinum í lok mánaðar.