Háskóli Íslands brautskráði 242 kandídata í dag á þriðju brautskráningu ársins og streymdu þeir í Aðalbyggingu skólans til að sækja útskriftarskírteini sín.
Háskólinn hefur ekki verið með formlega brautskráningarathöfn í október um árabil en kandídötum hefur undanfarin ár boðist að sækja prófskírteini sitt í Hátíðasal Aðalbyggingar. Þessu fyrirkomulagi hefur verið vel tekið og stærstur hluti kandídata nýtt sér þetta tækifæri. Engin undantekning var á því í ár og mættu kandídatar prúðbúnir í Aðalbyggingu, sumir hverjir ásamt vinum og vandamönnum til að fagna mikilvægum áfanga.
Að þessu sinni brautskrást 75 frá Félagsvísindasviði, 37 frá Heilbrigðisvísindasviði, 66 frá Hugvísindasviði, 36 frá Menntavísindasviði og 28 frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði. Samanlagt eru þetta 242 kandídatar og bætast þeir í hóp 445 kandídata sem brautskráðust í Háskólabíói í febrúar síðastliðnum og 2.639 kandídata sem fögnuðu úskrift í Laugardalshöll í sumar. Skólinn hefur því brautskráð 3.326 kandídata úr grunn- og framhaldsnámi á árinu 2026.
Háskóli Íslands sendir nýbrautskráðum kandídötum innilegustu hamingjuóskir með áfangann og óskar þeim alls hins besta í því sem nú tekur við.
Myndir Kristins Ingvarssonar frá þessum hátíðlega degi má finna hér að neðan.