Þrátt fyrir að Ísland sé í efsta sæti yfir kynjajafnrétti á heimvísu bendir nýbirt rannsókn til þess að nýjar birtingarmyndir kynferðisofbeldis, þar á meðal þrenging að öndunarvegi í kynlífi án samþykkis, byrlun og stafrænt ofbeldi séu sláandi algengar meðal yngri kvenna.
Gögnin í rannsókninni eru fengin úr hinu viðamikla rannsóknarverkefni Áfallasaga kvenna sem vísindamenn við Miðstöð í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands standa að. Um er að ræða eina stærstu rannsókn sinnar tegundar í heiminum þar sem markmiðið er að varpa ljósi á heilsufar kvenna í kjölfar áfalla. Rannsóknin sem sagt er frá í JAMA Network Open byggist á svörum 14.358 kvenna sem tóku þátt í eftirfylgdarrannsókn Áfallasögu kvenna árið 2024 og svöruðu ítarlegum spurningum um reynslu af kynferðisofbeldi. Þátttakendur endurspegla kvenþjóðina vel með tilliti til bakgrunnsþátta.
Niðurstöðurnar benda til þess að birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn konum séu að breytast. Yngri kynslóðir greina frekar frá því að hafa upplifað þrengingu að öndunarvegi í kynlífi án samþykkis, byrlun og stafrænt ofbeldi.
Það er áhyggjuefni að ungar konur (23–34 ára) voru þrisvar sinnum líklegri til að greina frá þrengingu að öndunarvegi í kynlífi án samþykkis en konur í eldri aldurshópum (15% samanborið við innan við 5%). „Nýlegar rannsóknir benda til að þrenging að öndunarvegi í kynlífi geti leitt til heilsufarsvandamála, eins og skerðingar á heila- og taugastarfsemi,“ segja höfundar rannsóknarinnar.
Þá greindu 7% kvenna frá því að hafa orðið fyrir byrlun, en yngri konur voru mun líklegri til að hafa orðið fyrir því. „Það veldur miklum áhyggjum hversu algengar þessar tegundir ofbeldis eru, einkum meðal ungra kvenna,“ segja höfundar.
Hvað varðar stafrænt ofbeldi þá höfðu 25% kvenna fengið sendar óvelkomnar kynferðislegar myndir eða skilaboð, 18% höfðu fengið óvelkomnar beiðnir um kynferðislegar myndir af sér, 3% kvenna greindu frá því að kynferðislegum myndum af þeim hefði verið dreift til annarra án samþykkis þeirra og 4% sögðu að tekið hefði verið upp myndband af þeim í kynlífi án þeirra samþykkis. Stafrænt ofbeldi var almennt þrisvar til fimm sinnum algengara meðal yngri kvenna, sem undirstrikar að yngri kynslóðir kvenna bera hlutfallslega þyngri byrðar af þessu ofbeldi.
Rannsóknina í JAMA Network Open má nálgast á vef tímaritsins.