Fjögur verkefni hafa hlotið styrk úr Sagnfræðisjóði Aðalgeirs Kristjánssonar og er þetta í annað skipti sem úthlutað er úr sjóðnum. Styrkhafar eru Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir sagnfræðingur, Rósa Þorsteinsdóttir rannsóknardósent og Trausti Dagsson, verkefnastjóri og forritari, sem bæði starfa hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, og Viðar Hreinsson, bókmenntfræðingur og sérfræðingur á Náttúruminjasafni Íslands. Heildarupphæð styrkja nemur 5,5 milljónum króna.
Markmið sjóðsins er að rannsaka hina sérstöku alþýðumenningu í Þingeyjarsýslu sem varð til á síðari hluta 19. aldar og í upphafi þeirrar tuttugustu, rætur hennar, einkenni, vöxt og viðgang.
Árni Heimir Ingólfsson hlýtur styrk til undirbúnings og útgáfu greinarinnar „Þjóðlög, kirkjusöngur og hljóðfæraleikur í Þingeyjarsýslu, 1870–1920“. Tónlistarlíf í Þingeyjarsýslu stóð í miklum blóma á 19. öld og fyrstu áratugum þeirrar tuttugustu. Þjóðlagasöngur var almennur og þaðan fékk séra Bjarni Þorsteinsson töluvert af efni í bók sína, Íslenzk þjóðlög, einkum frá Benedikt Jónssyni á Auðnum og Sigurveigu Árnadóttur í Lundi í Fnjóskadal. Einnig var þar allmikið af hljóðfærum og fjölgaði þeim mjög þegar leið á 19. öldina: langspil, flautur, fiðlur, orgel og harmóníkur. Fram til þessa hefur engin heildarrannsókn farið fram á tónlistarlífinu í Þingeyjarsýslu þótt margt hafi verið ritað um einstök atriði þess. Takmark verkefnisins er að kanna margvíslegar heimildir sem varðveist hafa og setja fram heildstæða mynd af tónlistarlífinu um þetta leyti, þegar gamall og nýr tími mættust í tónlistinni.