11/2026
HÁSKÓLARÁÐSFUNDUR
Ár 2026, fimmtudaginn 5. nóvember var haldinn fundur í háskólaráði Háskóla Íslands sem hófst kl. 13.45.
Áður en gengið var til dagskrár fundaði háskólaráð í Hátíðasal með alþjóðlegum sérfræðingahópi vegna yfirstandandi stofnunarúttektar á Háskóla Íslands.
Fundinn sátu Silja Bára R. Ómarsdóttir, Arnar Þór Másson, Ástmundur Níelsson, Hólmfríður Sveinsdóttir, Hrefna Dögg Gunnarsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir, Ólafur Pétur Pálsson, Ómar Örn Magnússon (varamaður fyrir Steinunni Valdísi Óskarsdóttur), Ragný Þóra Guðjohnsen og Sæþór Már Hinriksson. Fundinn sat einnig Magnús Diðrik Baldursson sem ritaði fundargerð.
1. Setning fundar.
Rektor setti fundinn og greindi frá því að fundargerð síðasta fundar hefði verið samþykkt, undirrituð rafrænt og birt á háskólavefnum. Greindi rektor frá því að hún myndi leggja fram undir liðnum „önnur mál“ tillögu um heimild til móttöku umsókna um meistaranám utan hefðbundins umsóknartímabils vegna náms sem hefst á vorönn 2027, en ekki voru gerðar athugasemdir við dagskrá fundarins. Loks spurði rektor hvort einhver lýsti sig vanhæfan til að taka þátt í meðferð máls á dagskrá og sagðist Ólafur Pétur ekki taka þátt í afgreiðslu dagskrárliðar 5b. Ekki voru gerðar athugasemdir við liðinn „bókfærð mál“ og skoðast hann því samþykktur.
2. Fjármál Háskóla Íslands. Staða, horfur, áætlun:
Inn á fundinn komu Guðmundur R. Jónsson, framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar, Jenný Bára Jensdóttir, sviðsstjóri fjármálasviðs, og Örn Guðmundsson, framkvæmdastjóri.
a. Rekstraryfirlit janúar-september 2026.
Jenný Bára gerði grein fyrir rekstraryfirliti Háskóla Íslands á tímabilinu janúar-júní 2026. Fram kom að rekstrarstaða Háskóla Íslands fyrstu níu mánuði ársins var í heildina í jafnvægi og í nokkuð góðu samræmi við áætlanir. Málið var rætt og svaraði Jenný Bára spurningum.
b. Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027. Staða mála.
Rektor, Örn og Guðmundur R. greindu frá stöðu mála varðandi fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, fundum með fulltrúum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins og horfum varðandi rekstur Háskóla Íslands á árinu 2027. Málið var rætt ítarlega og kom m.a. fram að horfur í rekstri skólans eru erfiðar og var rætt um mögulegar aðhaldsaðgerðir. Að umræðu lokinni samþykkti háskólaráð svohljóðandi bókun:
„Háskólaráð lýsir yfir verulegum áhyggjum af fjármögnun Háskóla Íslands og kallar eftir samtali við stjórnvöld um sérstakt hlutverk hans sem þjóðarháskóla sem ber að tryggja fjölbreytt námsframboð, rannsóknir og þekkingu sem mikilvægt er að sé til staðar á Íslandi.“
c. Skólagjöld fyrir nemendur frá löndum utan EES.
Fyrir fundinum lágu drög að tillögu um úthlutun heimilda til niðurfellingar skólagjalda skólaárið 2027-2028. Rektor gerði grein fyrir málinu og var það rætt. Að umræðu lokinni samþykkti háskólaráð einróma svohljóðandi bókun:
„Á liðnu sumri voru samþykkt á Alþingi lög sem mæla fyrir um að nemendur frá löndum utan EES skuli greiða skólagjöld fyrir háskólanám á Íslandi. Í kjölfarið voru á síðasta fundi háskólaráðs samþykktar reglur um gjaldtöku og upphæðir skólagjalda fyrir þessa nemendur. Nú er komið fram að til mótvægis muni Háskóli Íslands fá til úthlutunar aðeins 63 námsstyrki fyrir þessa nemendur. Miðast fjárhæð styrkjanna við lægsta reikniflokk í reiknilíkani stjórnvalda, en þetta þýðir að kostnaður vegna hvers nemanda í námi í reikniflokki C jafngildir í reynd tveimur slíkum styrkjum.
Þegar frumvarp ráðherra var rætt á Alþingi var bent á að innheimta skólagjalda af nemendum utan EES gæti komið verulega niður á tilteknum námsleiðum við HÍ, s.s. íslensku sem öðru máli, jarðvísindum og miðaldafræðum, sem allt eru námsleiðir með séríslenska vídd og eru meðal styrkleika HÍ. Við úthlutun styrkja verður m.a. horft til þess að standa vörð um þessar námsleiðir.
Þá er fyrirsjáanlegt að þessar breytingar geta útilokað handhafa tímabundinna dvalarleyfa og jafnvel börn þeirra frá háskólanámi. Háskólaráð lýsir áhyggjum af þeim áhrifum sem þetta muni hafa á íslenskunám fólks sem komið er hingað til lands og starfar iðulega í samfélagslega mikilvægum starfsgreinum á sviði heilbrigðis- og velferðarmála. Atvinnulíf og samfélag gera réttmæta kröfu um að þessi hópur öðlist ákveðna hæfni í íslensku, en nám í íslensku sem öðru máli við HÍ hefur verið eftirsótt af þeim sem þegar hafa lokið háskólanámi í sínum upprunalöndum. Háskólaráð vekur athygli á að ef greiða þarf verulegar fjárhæðir fyrir námið verður það óaðgengilegt þessum stóra hópi, auk þess sem gjaldtaka gengur gegn stefnu stjórnvalda um inngildingu innflytjenda.“
– Samþykkt að fela rektor að ganga frá málinu.
Guðmundur R., Örn og Jenný Bára viku af fundi.
3. Ný heildarstefna Háskóla Íslands fyrir tímabilið 2027-2031, HÍ31.
Inn á fundinn komu Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson, aðstoðarrektor vísinda og þverfræðileika, og Þór Hauksson, stefnu- og gæðastjóri. Fyrir fundinum lágu lokadrög að nýrri heildarstefnu Háskóla Íslands fyrir tímabilið 2027-2031, HÍ31. Stefnan, þ.m.t. Grænbók og Hvítbók, hafa verið á dagskrá háskólaráðs og háskólaþings á ýmsum stigum á vor- og haustmisseri 2026 og hefur stjórn HÍ þannig með beinum og óbeinum hætti komið að mótun stefnunnar.
Rektor, Rögnvaldur og Þór gerðu grein fyrir málinu og var það rætt. Ráðgert er að stefnudrögin verði kynnt og rædd á háskólaþingi 27. nóvember 2026 og endanleg stefna loks borin upp til samþykktar á fundi háskólaráðs 3. desember 2026.
Rögnvaldur og Þór viku af fundi.
4. Tillögur nefndar um endurskoðun á deildaskipan Háskóla Íslands, sbr. fund ráðsins 5. júní sl.
Fyrir fundinum lá minnisblað með tillögum nefndar sem háskólaráð skipaði 6. mars 2025 um endurskoðun á deildaskipan Háskóla Íslands. Ólafur Pétur Pálsson, formaður nefndarinnar, gerði grein fyrir tillögunum sem byggja á viðmiðum og mælikvörðum um nám, mannauð, rannsóknir, nemendur og aðra þætti, en skipting Háskóla Íslands í deildir var síðast endurskoðuð í heild í tengslum við sameiningu Háskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands árið 2008. Málið var rætt ítarlega.
– Háskólaráð lýsir yfir stuðningi við framsettar tillögur að viðmiðum og mælikvörðum og hvetur fræðasvið til endurskoðunar á deildaskipan sinni með hliðsjón af þessum viðmiðum. Til viðbótar geri fræðasviðin grein fyrir því hvernig tillögur þeirra stuðli að aukinni skilvirkni og fjárhagslegri hagkvæmni. Næstu skref verði að kynna viðmiðin og mælikvarðana fyrir stjórnum fræðasviða á starfsárinu 2026-2027 og að fræðasviðsforsetar upplýsi háskólaráð skriflega um mögulega endurskoðun á deildaskipan innan sinna fræðasviða eigi síðar en í júní 2027.
– Samþykkt samhljóða, en Katrín Jakobsdóttir þurfti að víkja af fundi áður en málið var afgreitt.
5. Tillögur um kjör heiðursdoktora.
a. Tillaga Læknadeildar um kjör heiðursdoktors.
Fyrir fundinum lá tillaga Læknadeildar og stjórnar Heilbrigðisvísindasviðs um kjör heiðursdoktors. Rektor gerði grein fyrir málinu.
– Samþykkt einróma.
b. Tillaga Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideildar um kjör heiðursdoktors.
Fyrir fundinum lá tillaga Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideildar og stjórnar Verkfræði- og náttúruvísindasviðs um kjör heiðursdoktors. Rektor gerði grein fyrir málinu.
– Samþykkt samhljóða, en Ólafur Pétur tók ekki þátt í afgreiðslu málsins þar sem hann kom að því á fyrri stigum.
6. Bókfærð mál.
a. Samráðsnefnd um kjaramál.
– Samþykkt. Nefndina skipa þau Ragna Benedikta Garðarsdóttir, aðstoðarrektor menntunar og starfsumhverfis, formaður, Ragnhildur Ísaksdóttir, sviðsstjóri mannauðssviðs og Örn Guðmundsson, framkvæmdastjóri. Skipunartími nefndarinnar er frá 1. júlí 2026 til 30. júní 2029.
b. Málnefnd Háskóla Íslands.
– Samþykkt. Nýr formaður málnefndar frá 1. nóvember 2026 er Kolbrún Friðriksdóttir, dósent við Íslensku- og menningardeild á Hugvísindasviði.
c. Stjórn Miðstöðvar framhaldsnáms og Vísindanefnd, varafulltrúar Hóla.
– Samþykkt. Nýr varafulltrúi HÍ á Hólum í stjórn Miðstöðvar framhaldsnáms frá 1. nóvember 2026 er Guðrún Jóhanna Stefánsdóttir, dósent við Hestafræðideild. Varafulltrúi HÍ á Hólum í vísindanefnd háskólaráðs er Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Vestfjörðum.
d. Fulltrúar Háskóla Íslands í stjórn Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands.
– Samþykkt. Fulltrúar Háskóla Íslands í stjórn Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands eru Brynhildur G. Flóvenz, dósent við Lagadeild á Félagsvísindasviði, og Kári Hólmar Ragnarsson, dósent við Lagadeild á Félagsvísindasviði. Varamaður er Hafsteinn Þór Hauksson, dósent við Lagadeild á Félagsvísindasviði. Skipunartíminn er til ársloka 2027.
– Samþykkt.
– Samþykkt.
g. Tillaga að reglum um endurgreiðslu skólagjalda fyrir nemendur utan ESB/EES/EFTA.
– Samþykkt.
h. Viðauki við reglur um skólagjöld gr. 10.b. í reglum nr. 244/2014.
– Samþykkt.
i. Verklagsreglur fyrir Samfélagsverkefnasjóð Háskóla Íslands.
– Samþykkt.
j. Framkvæmdastjórn Rannsóknastofnunar á sviði lífeyrismála (PRICE).
– Samþykkt.
k. Varafulltrúar í stjórn Háskólabíós.
– Samþykkt. Varafulltrúar í stjórn Háskólabíós 2026-2029 verða Ingibjörg Ólafsdóttir, deildarstjóri hjá framkvæmda- og tæknisviði (fyrsti varamaður), og Ásta Dís Óladóttir, prófessor við Viðskiptafræðideild á Félagsvísindasviði (annar varamaður).
7. Mál til fróðleiks.
a. Upplýsingafundur rektors 7. október 2026.
b. Græna skóflan fyrir framúrskarandi vistvænar endurbætur á Sögu.
c. Nýr forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands.
d. Fyrsti útskriftarhópur HÍ á Hólum.
e. Hátt í 250 kandídatar brautskráðir frá Háskóla Íslands.
f. Fréttabréf Háskólavina, dags. 29. október 2026.
g. John Swedenmark hlýtur Vigdísarverðlaunin 2026.
8. Önnur mál.
a. Rektor bar upp tillögu um að í ljósi breyttrar stöðu á vinnumarkaði feli háskólaráð rektor að heimila, í eitt skipti, móttöku umsókna um meistaranám utan hefðbundins umsóknartímabils vegna náms sem hefst á vorönn 2027. Heimildin tekur eingöngu til námsleiða þar sem þegar er boðið upp á að hefja nám á vorönn. Rektor ákveði, í samráði við viðkomandi deildir og sameiginlega stjórnsýslu, upphaf og lok viðbótarumsóknartímabilsins og tilhögun framkvæmdarinnar. Deildir ákveði hvort og fyrir hvaða námsleiðir þær óski eftir að nýta heimildina. Námsleiðir og umsóknarfrestir verði auglýstir sameiginlega á vef Háskóla Íslands og með útgáfu fréttatilkynningar. Að öðru leyti gildi óbreyttar reglur um inntökuskilyrði, fjöldatakmarkanir og meðferð umsókna. Ákvörðunin verði bundin við vorönn 2027 og feli ekki í sér varanlega breytingu á þeim umsóknarfrestum sem gilda samkvæmt reglum Háskóla Íslands.
– Samþykkt einróma.
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 16.05.