útskriftarhópur ásamt forsetum Hóla
Útskriftarnemar, deildaforsetar og forseti HÍ á Hólum við brautskráninguna

Brautskráning fór fram á Hólum í Hjaltadal föstudaginn 9. október. Athöfnin markaði tímamót í sögu skólans þar sem 26 nemendur luku námi frá Háskóla Íslands á Hólum og urðu þar með fyrsti útskriftarhópurinn undir nýju nafni skólans.

Við hátíðlega athöfn á Hólum í Hjaltadal fögnuðu nemendur, aðstandendur og starfsfólk mikilvægum áfanga. Úskriftarnemar luku námi á sviði fiskeldis og fiskalíffræði, ferðamálafræði og viðburðastjórnunar.

Þessi brautskráning var þó ekki aðeins tímamót fyrir nemendurna sjálfa heldur einnig fyrir skólann. Þetta var í fyrsta sinn sem nemendur luku námi undir nafni Háskóla Íslands á Hólum, eftir að skólinn varð aðildarháskóli í háskólasamstæðu Háskóla Íslands.

Í ávarpi sínu lagði Hólmfríður Sveinsdóttir, forseti HÍ á Hólum, áherslu á að hópurinn ætti sérstakan sess í sögu skólans. Nemendurnir hefðu verið hluti af mikilvægu umbreytingaskeiði og yrðu ávallt fyrsti hópurinn sem útskrifaðist frá Háskóla Íslands á Hólum.

Þrátt fyrir breytingar á umgjörð skólans stendur hlutverk hans óbreytt: að skapa og miðla þekkingu, stunda rannsóknir og nýsköpun og þjóna samfélagi og atvinnulífi með áherslu á sérsvið sín og hlutverk á landsbyggðinni.

Menntun sem nýtist samfélaginu

Í ræðu sinni ræddi Hólmfríður einnig um mikilvægi þess að mennta fólk á sviðum sem skipta íslenskt samfélag miklu máli. Fiskeldi og fiskalíffræði, ferðaþjónusta og viðburðastjórnun eru meðal þeirra greina sem þurfa á vel menntuðu fólki að halda, fólki sem getur byggt ákvarðanir á þekkingu, tekist á við flókin verkefni og leitað nýrra lausna.

Skólastarf á Hólum á sér langa sögu sem nær aftur til ársins 1106. Háskóli Íslands á Hólum byggir því á traustri hefð og sterkum grunni, en horfir jafnframt til framtíðar með áframhaldandi þróun sérhæfðs háskólastarfs og rannsókna.

ÁskellHeiðarogHeklaSólHólar
Áskell Heiðar Ásgeirsson, lektor við Ferðamáladeild, og Hekla Sól Hafsteinsdóttir viðurkenningarhafi

Hekla Sól hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur

Hekla Sól Hafsteinsdóttir, sem lauk diplómanámi í viðburðastjórnun, hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í greininni. Hún flutti einnig ávarp fyrir hönd nemenda við athöfnina.

Háskóli Íslands á Hólum óskar Heklu Sól innilega til hamingju með árangurinn og viðurkenninguna.

Við athöfnina fluttu einnig ávörp Bjarni Kristófer Kristjánsson, deildarforseti Fiskeldis- og fiskalíffræðideildar, og Ingibjörg Sigurðardóttir, deildarstjóri Ferðamáladeildar. Dana Ýr Antonsdóttir sá um tónlistarflutning og setti hann hátíðlegan svip á dagskrána.

Með brautskráningunni lýkur mikilvægum kafla í lífi nemendanna og nýr tekur við. Um leið hefur verið skrifaður nýr kafli í sögu Hóla í Hjaltadal. Fyrsti útskriftarhópur Háskóla Íslands á Hólum mun ávallt eiga sérstakan sess í þeirri sögu.

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil