Þórey S. Þórisdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands úr hópi átta umsækjenda. Stofnunin verður á næstunni flutt að Háskóla Íslands á Hólum eins og gert er ráð fyrir í stofnsamningi nýrrar háskólasamstæðu Háskóla Íslands sem varð til í sumar.
Þórey er með BS-próf í viðskiptafræði, MS-próf í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði og doktorspróf í viðskiptafræði, öll frá Háskóla Íslands. Hún hefur um þriggja áratuga reynslu sem stjórnandi í verslunarrekstri með mannaforráð og einnig yfir 20 ára reynslu af fyrirtækjarekstri. Í þessum störfum hefur hún öðlast víðtæka þekkingu á fjárhagsáætlanagerð, stefnumótun, mannauðsmálum og samskiptum.
Þórey hefur auk þess sinnt kennslu grunn- og framhaldsnema við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands í nærri áratug og hefur leiðbeint meistaranemum við gerð lokaverkefna ásamt því að kenna við Háskólann í Reykjavík. Samhliða kennslu hefur hún sinnt rannsóknum, aflað rannsóknastyrkja og gegnt ábyrgðarstörfum í stjórnum og nefndum.
„Ég hlakka til að takast á við nýtt hlutverk, kynnast enn betur því góða starfi sem unnið er á rannsóknasetrunum um land allt og vinna með starfsfólkinu að þeim verkefnum sem fram undan eru,” segir Þórey S. Þórisdóttir.