Fasteignir Háskóla Íslands, Andrúm arkitektar og Ístak hafa hlotið Grænu skófluna, viðurkenningu Grænni byggðar, fyrir endurbætur og umbreytingu á Sögu með framúrskarandi vistvænum og sjálfbærum hætti. Nær allt byggingarefni sem fjarlægt var úr Sögu fór í endurvinnslu og orkunýtingu.
Félagasamtökin Grænni byggð eru rúmlega 15 ára gömul og hafa það á stefnuskrá sinni að efla umhverfisvitund og grænar aðgerðir í byggingar- og mannvirkjamálum. Samtökin hafa frá árinu 2022 veitt viðurkenninguna Grænu skófluna fyrir ný mannvirki sem byggð hafa verið með framúrskarandi vistvænum og sjálfbærum áherslum. Í ár var í annað sinn veitt sérstök viðurkenning til aðila sem endurnýja mannvirki með framúrskarandi vistvænum og sjálfbærum áherslum.
Tilkynnt var um verðlaunahafa þessa árs á Degi Grænni byggðar í liðinni viku og sem fyrr segir hljóta Fasteignir Háskóla Íslands, Andrúm arkitektar og Ístak síðarnefndu viðurkenninguna fyrir endurnýjun og umbreytingu á Sögu.