""
Sumarnám við Stanford-háskóla

Nemendum Háskóla Íslands býðst að sækja 8 vikna sumarnám International Honors Program (IHP) við Stanford háskóla í Kaliforníu.

Stanford háskóli er meðal fremstu háskóla heims, staðsettur í hjarta Silicon Valley, og þekktur fyrir framúrskarandi kennslu, nýsköpun og sterk tengsl við atvinnulíf. Samstarf HÍ og Stanford hefur staðið yfir samfellt frá árinu 2010 og hefur stór hópur nemenda frá HÍ lokið sumarnáminu með góðum árangri, eins og hægt er að lesa um hér. Sumarnám við Stanford getur nýst nemendum sem stefna á framhaldsnám í Bandaríkjunum sérstaklega vel.

Í boði er fjölbreytt úrval námskeiða, en auk þess eru fyrirlesarar úr attvinnulífinu og vettvangsferðir í fyrirtæki í Silicon Valley þar sem nemendur fá beina innsýn í nýsköpun, frumkvöðlastarf og alþjóðlega forystu. Í IHP koma saman nemendur víðs vegar að úr heiminum og búa saman á alþjóðlegum stúdentagarði en mikil áhersla er lögð á tengslamyndun bæði innan og utan kennslustofunnar.

Kynningarmyndband má sjá hér.

Nemendur HÍ í grunn-og meistaranámi á öllum fræðasviðum geta sótt um. Nemendur þurfa að hafa lokið a.m.k. 60 ECTS áður en sumarnámið hefst með meðaleinkunn að lágmarki 7,5. Nemendur HÍ eru undanþegnir kröfum um TOEFL próf en verða að hafa góða enskukunnáttu.

Nemendur velja fullt nám (8 Stanford einingar) og geta sótt um að ná námskeið metin inn í námsferil sinn í HÍ. Hver Stanford eining jafngildir 1.33 ECTS einingu. Nemendur HÍ fá 20% afslátt af skólagjöldum, sem nema þá 9.632 USD fyrir nemendur í grunnnámi. Sjá nánari upplýsingar í upplýsingabæklingi Stanford.

Umsóknarferlið er tvíþætt. Nemendur senda fyrst umsókn til Háskóla Íslands. Sérstök valnefnd metur umsækjendur á grundvelli námsárangurs, framtíðaráforma og viðtals og tilnefnir til Stanford. Tilnefndir nemendur senda síðan inn umsókn með námskeiðsvali til Stanford.

Sótt er um rafrænt og fylgigögn (á ensku) hengd við umsóknina.

Opnað verður fyrir umsóknir í desember

Fylgigögn (á ensku):
1. Kynningarbréf, hámark 600 orð
2. Staðfest námsferilsyfirlit ásamt árangursröðun – fæst á Þjónustuborði á Háskólatorgi eða í gegnum Uglu.

Frekari upplýsingar má nálgast hjá Alþjóðasviði á ask@hi.is eða s. 525 4311.

Sækja um

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil