Skv. reglum Stofnunar rannsóknasetra HÍ skipar háskólaráð stofnuninni fimm manna ráðgefandi nefnd til þriggja ára í senn. Hlutverk nefndarinnar er að vera háskólaráði, rektor og forstöðumanni til ráðgjafar um stefnumarkandi ákvarðanir og viðfangsefni stofnunarinnar og hafa almenna yfirsýn yfir starfsemina.
Nefndina skipa:
- Guðmundur Hálfdánarson, prófessor við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði, formaður.
- Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála.
- Halldór Pálmar Halldórsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurnesjum.
- Kristín Ágústsdóttir, forstöðumaður Náttúrustofu Austurlands.
- Snæbjörn Pálsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði HÍ.
Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands heyrir undir rektor og byggist á tólf faglega sjálfstæðum rannsóknasetrum sem eru staðsett víðsvegar um landið. Stofnunin var sett á fót árið 2001 með stofnun Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði.
Samkvæmt reglum Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslandss skipar háskólaráð stofnuninni fimm manna ráðgefandi nefnd til þriggja ára í senn.
Árlega er haldinn ársfundur Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands og ársskýrsla gefin út.
Megin verkefni
Á rannsóknasetrunum eru stundaðar fjölbreyttar rannsóknir en meðal viðfangsefna eru:
- Náttúruvísindi
- Lífríki hafsins
- Umhverfi og landnýting
- Hvalir, fiskar og fuglar
- Ferðamál
- Bókmenntir
- Sagnfræði
- Þjóðfræði og fornleifafræði
Sæunn Stefánsdóttir
Sími: +354 892 8835