Ársfundur Stofnunar rannsóknasetra árið 2025 var haldinn í húsakynnum Rannsóknaseturs HÍ á Norðurlandi vestra á Skagaströnd fimmtudaginn 13. mars kl. 13:00 til 16:30.

Dagskrá:

  • Formaður ráðgefandi nefndar Stofnunar rannsóknasetra HÍ, Guðmundur Hálfdánarson, býður gesti velkomna.
  • Opnunarávarp. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.
  • Sáttanefndir, selveiðar og sitthvað fleira. Sagnfræðirannsóknir við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra.Vilhelm Vilhelmsson, sagnfræðingur og forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Norðurlandi vestra.
  • Umsvif Hollendinga og starfsemi þeirra á Íslandi á sautjándu og átjándu öld. Ragnar Edvardsson, fornleifafræðingur og fræðimaður við Rannsóknasetur HÍ á Vestfjörðum.
  • Skýringa leitað: Í tilefni aldarafmælis Bréf til Láru. Soffía Auður Birgisdóttir, bókmenntafræðingur og vísindamaður við Rannsóknasetur HÍ á Hornafirði.
  • Sannleikurinn er í setinu - Mengun í íslenskum höfnum. Sandra Dögg Georgsdóttir, meistaranemi í líffræði við Háskóla Íslands og starfsmaður Rannsóknaseturs HÍ á Suðurnesjum.
  • Dagbók Jóns gamla og samtalið við samfélagið. Jón Jónsson, þjóðfræðingur og verkefnisstjóri við Rannsóknasetur HÍ á Ströndum.
  • Hvers vegna víðerni? Þorvarður Árnason, náttúru- og umhverfisfræðingur, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Hornafirði.
  • Pallborð. Jón Atli Benediktsson rektor HÍ, Hólmfríður Sveinsdóttir rektor HH og Sæunn Stefánsdóttir forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra HÍ
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil