Mohamed Sayed M. Helmy Abdelbar
Kerfislíffræðisetur
Kerfislíffræðisetur
Töluvert skortir á þekkingu á samspili skapandi iðkunar og taugafjölbreytileika. Í rannsóknum á skynsegin (e. neurodiverse) starfsháttum og ferlum hefur framlag skapandi iðkenda sem skilgreina sig sem skynsegin verið mjög takmarkað. Þessi staðreynd mismunar skapandi vísindafólki sem er skynsegin og dregur úr möguleikum á nýstárlegum starfsháttum sem gagnast gætu á víðtækari vettvangi skapandi sviða. Fjölbreytt og skynsegin sköpunargáfa er ekki vandamál sem þarf að leysa, heldur býður hún upp á rými fyrir nýstárlega og áhugaverða greiningu á starfsháttum. Í þessu rannsóknarverkefni er sjónum beint að óhefðbundnum samskiptum og skynjunarferlum í samhliða samstarfi með óyrt samskipti. Unnið er út frá kenningum og aðferðum skapandi skrifa og fötlunarfræða með umbreytingarsjónarmið (e. transformative) að leiðarljósi. Eigindlegar rannsóknaraðferðir verða notaðar til að bera kennsl á samstarfsrými á netinu. Þessi rými verða síðan nýtt til að þróa og meta nýjar leiðir fyrir sköpun og til að miðla fenginni þekkingu í gegnum fræðilega, aðgerðasinnaða og aðra félagslega og innviði. Þessi rannsókn á skynsegin skapandi samvinnustarfi getur því opnað nýtt rými fyrir skapandi umbreytingu borgaralegs samfélags.