""

Háskóli Íslands hefur ákveðið að opna á ný fyrir umsóknir um nám í afmörkuðum fjölda námsleiða á framhaldsstigi á vormisseri 2027. Með þessu vill skólinn koma móts við þann hóp sem nýverið hefur misst vinnuna í íslensku samfélagi og gefa honum færi á að mennta sig til nýrra tækifæra. Viðbótarumsóknarfrestur er til 30. nóvember.

Upphaflegur umsóknarfrestur um framhaldsnám á vormisseri var 15. október. Fregnir hafa hins vegar borist af fjöldauppsögnum á síðustu vikum og auknu atvinnuleysi í íslensku samfélagi. Til að bregðast við því samþykkti háskólaráð Háskóla Íslands ályktun á síðasta fundi sínum þar sem rektor var falið að heimila undanþágu frá hefðbundnum umsóknarfrestum fyrir þær deildir sem það kjósa og taka inn nemendur á vormisseri.

Með því að opna aftur fyrir umsóknir um framhaldsnám vill skólinn sýna samfélagslega ábyrgð og fjölga tækifærum fyrir fólk nú þegar kreppir að í samfélaginu.

Hægt er að sækja um framhaldsnám á vormisseri á umsóknargátt skólans fyrir 30. nóvember.

Lista yfir þær námsleiðir í framhaldsnámi sem hægt er að sækja um má finna hér að neðan.

Félagsfræði–, mannfræði– og þjóðfræðideild

Félagsráðgjafardeild

Lagadeild

Stjórnmálafræðideild

Viðskiptafræðideild

Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði

Guðfræði- og trúarbragðafræðideild

Mála- og menningardeild

Íslensku- og menningardeild

Deild menntunar og margbreytileika

Deild faggreinakennslu

Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda

Deild kennslu- og menntunarfræði

Vakin er athygli á því að umsóknarfrestur um grunnnám á vormisseri er líkt og áður 30. nóvember.

Skoða grunnnám í boði á vormisseri

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil