""
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækur eru á ensku eða öðrum erlendum tungumálum (t.d. dönsku eða öðrum Norðurlandamálum).
Lengd náms
Tvö ár - 120 einingar
Námsform
Blönduð námsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á kynjafræði, femínisma og jafnréttisbaráttu?
  • Vilt þú skilja valdatengsl og samspil forréttinda og mismununar?
  • Viltu efla sjálfstæð vinnubrögð og beita gagnrýninni hugsun í rannsóknum?
  • Langar þig að greina viðfangsefni samtímans út frá kynja- og margbreytileikasjónarmiðum?
  • Vilt þú rýna stöðu ólíkra hópa á einkasviðinu og á opinberum vettvangi, í íslensku samfélagi og í alþjóðlegum samanburði?

Um hvað snýst námið?

MA-nám í kynja- og margbreytileikafræði er rannsóknarmiðað meistaranám sem veitir nemendum fræðilegan og hagnýtan undirbúning til starfa á fjölbreyttum vettvangi, svo sem í stjórnsýslu, hjá félagasamtökum, við fræðslu og rannsóknir.

Kynja- og margbreytileikafræði fjalla um það hvernig kyngervi fléttast saman við aðra félagslega áhrifaþætti, svo sem uppruna, stétt, kynhneigð, kynvitund, aldur og fötlun, og hvernig þetta samspil mótar valdatengsl, stofnanir, stefnumótun og daglegt líf fólks.

Í náminu fá nemendur  traustan grunn í kenningum kynja- og margbreytileikafræða, hagnýtingu jafnréttisfræða og rannsóknaraðferðum. Með valnámskeiðum móta nemendur eigin áherslur.

Nemendur sem vilja reyna þekkinguna á vettvangi geta valið fimm vikna starfsnám í jafnréttisstarfi.

Kjarni námsins er MA-ritgerðin (40–60 einingar), sjálfstætt rannsóknarverkefni sem nemendur vinna undir leiðsögn kennara.

Uppbygging náms

Námið er 120 einingar og hægt er að ljúka því á tveimur árum í fullu námi eða á lengri tíma í hlutanámi.

Meðal viðfangsefna

  • Hvernig geta kenningar kynja- og margbreytileikafræða varpað nýju ljósi á viðfangsefni samtímans?
  • Hvernig fléttast kyngervi saman við kynhneigð, uppruna, stétt, aldur, fötlun og aðra félagslega áhrifaþætti og hvernig mótar það lífsskilyrði og möguleika fólks?
  • Hvernig uppfylla stofnanir samfélagsins kröfur jafnréttislaga og alþjóðasamþykkta?
  • Hvernig hefur barátta hinsegin fólks mótað réttarstöðu, löggjöf og menningu?
  • Hvernig verða áleitnar spurningar að sjálfstæðu rannsóknarverkefni og hvaða rannsóknaraðferðum þarf að beita til að svara þeim?

Fyrirkomulag kennslu

Námið býður upp á ákveðinn sveigjanleika og í mörgum námskeiðum er jafnframt boðið upp á fjarnám, netnám. Netnám gerir þér kleift að horfa á fyrrirlestra utan hefðbundins skólatíma.

Námið er kennt á íslensku en lesefni er á ensku.

Meginmarkmið

Miðað er að því að nemendur:

  • öðlist fræðilega, hagnýta og aðferðafræðilega þekkingu til að takast á við viðfangsefni kynja- og margbreytileikafræða
  • geti skilgreint rannsóknarviðfangsefni, gert rannsóknaráætlun og beitt viðeigandi rannsóknaraðferðum
  • geti tekist á við fræðilega krefjandi viðfangsefni og beitt kenningum á gagnrýnin hátt

Annað

Námið veitir aðgang að doktorsnámi.

BA-, B.Ed.- eða BS-gráða eða sambærilegt nám með fyrstu einkunn.

Ljúka þarf 120 ECTS einingum. Skyldunámskeið eru 48 - 52 einingar, þar af 6 - 10 einingar í eigindlegri aðferðafræði og 6 einingar í megindlegri aðferðafræði. 14-38 einingar eru valfrjáls námskeið úr námskeiðsframboði kynja- og margbreytileikafræði á meistarastigi. Þeir sem tekið hafa kynja- og margbreytileikafræði sem aukagrein eða sambærilegt nám, taka valnámskeið í staðinn fyrir Almenna kynjafræði og Kenningar í kynjafræði. Náminu lýkur með 40-60 eininga MA-ritgerð.

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Ferilskrá (CV)
  • Greinargerð um markmið með námi
  • Meðmælandi 1, nafn og netfang
  • Meðmælandi 2, nafn og netfang
  • Prófskírteini/námsyfirlit

Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og misserum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Heilsársnámskeið
Málstofa meistaranema í kynjafræði (KYN107F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að skapa samfélag meistaranema í kynjafræði sem fá tækifæri til að ræða meistaraverkefni sín og meistaraverkefni samnemenda undir handleiðslu kennara.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Haust
Almenn kynjafræði (KYN101F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um helstu viðfangsefni kynjafræða í ljósi margbreytileika nútímasamfélaga. Kynjafræðilegu sjónarhorni er beitt til að gefa yfirlit yfir stöðu og aðstæður ólíkra hópa í samfélaginu. Fjallað er um upphaf og þróun kvennabaráttu og kynjafræða. Kynnt verða helstu hugtök kynjafræða svo sem kyn, kyngervi, eðlishyggja og mótunarhyggja. Skoðað er hvernig kyn er ávallt samtvinnað öðrum samfélagslegum áhrifabreytum.

Kennslufyrirkomulag: Námið byggir á vendikennslu sem þýðir að allir fyrirlestrar verða aðgengilegir á Canvas. Stað- og fjarnemar mæta vikulega í umræðutíma í háskólanum eða á Teams og netnemar taka vikulega þátt í umræðum á Canvas.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Fyrsta ár | Vor
Aukaverkefni: Eigindleg aðferðafræði (STJ209F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa tekið námskeiðið STJ203F Eigindleg aðferðafræði. Nemendur vinna með eigindleg gögn sem þeir afla eða hafa áður aflað í námskeiðinu STJ203F Eigindleg aðferðafræði. Nemendur greina og túlka gögn sín samkvæmt þeim aðferðum sem fjallað hefur verið um í námskeiðinu. Nemendur læra að leggja mat á aðferðafræðilega framsetningu út frá fyrirliggjandi rannsóknum sem valdar eru í samráði við kennara, og vinna í framhaldinu drög að eigin aðferðafræðilegum kafla sem m.a. felst í að lýsa aðferðum og aðferðafræði í eigin rannsóknum. Loks fá nemendur þjálfun í að setja fram niðurstöður á þann hátt að það þjóni efninu.

Kennslutungumál: Enska
Fyrsta ár | Vor
Eigindleg aðferðafræði (STJ203F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Qualitative Methods is a graduate course that provides students with an introduction to some of the most commonly used qualitative methods and methodological tools in political science. The main focus in the course is on case studies (including process tracing) and various tools and techniques used within case studies, e.g., interviewing, focus groups, and qualitative content analysis. One part of the course is also dedicated to discourse analysis. The course begins with a very brief introduction to philosophy of science and outlines basic ontological, epistemological and methodological issues in the social sciences. Students will gain a deeper understanding of the philosophical underpinnings, assumptions and ambitions of the different methods, but they will also gain practical experience as to the design and execution of research within the different traditions.

The course design aims to stimulate active student participation. Students are expected to have done the mandatory reading for each day and to be ready to participate in group work and discussions in class. The course features two distinct types of classes, specifically lecture & discussion classes and workshops. Nine of the thirteen classes are in the form of lecture & discussion classes and will be divided into two parts: a lecture by the lecturer (2 x approx. 40 minutes) and a student-led discussion session, consisting of 20 minutes of group work and 20 minutes of general discussion. The remaining four sessions are taught in the form of workshops. For these, the class will be divided into two groups (A and B) at the beginning of the semester. The workshop for group A will take place from 10:00 to 11:00, the workshop for group B from 11:15 to 12:15 on the day in question. In these workshops, students will work on practical examples connected to the respective topics of the day.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Kenningar í kynjafræði (KYN211F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um heimspekilegan og kenningalegan grundvöll kynjafræða og gagnrýnið og þverfræðilegt inntak þeirra. Fjallað er um birtingarform og merkingu kyns (e. sex) og kyngervis (e. gender) í tungumáli og menningu, sögu, samfélagi og vísindum. Sjónarmið fræðanna eru kynnt og tengsl þeirra við aðferðafræði. Þá eru nemendur þjálfaðir í að beita á sjálfstæðan og gagnrýninn hátt fræðilegum hugtökum og aðferðum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Fyrsta ár | Vor
Hagnýting jafnréttisfræða: Frá bróðurparti til systkinalags (KYN202F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Jafnréttismál eru hluti af hinu opinberu regluverki á Íslandi og sífellt meiri kröfur eru gerðar á því sviði. Námskeiðið veitir hagnýtan undirbúning fyrir margvísleg störf í almenna og opinbera geiranum þar sem þekking og þjálfun í jafnréttismálum er nauðsynleg.

Námskeiðið er hagnýtur undirbúningur fyrir störf í stjórnun, opinberri stjórnsýslu, fræðslu, kennslu, fjölmiðlun og önnur sérhæfð störf. Markmið námskeiðsins er að kynna grundvallaratriði jafnréttisfræða og þjálfa nemendur í hagnýtu jafnréttisstarfi. Fjallað er um sögu og merkingu jafnréttishugtaksins, með sérstakri áherslu á samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða (e. gender mainstreaming) og kynjaða fjárlagagerð (e. gender budgeting). Fjallað er um birtingarform kyns og mikilvægi kynjavitundar í samfélagslegri umræðu og stefnumótun. Þá eru kynntar hugmyndir um jafnrétti margbreytileikans og samtvinnun ólíkra mismunarbreyta (e. intersectionality). Í nútímasamfélögum eru gerðar síauknar kröfur um þekkingu á jafnréttismálum. Ísland er aðili að alþjóðasamþykktum um jafnrétti og í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla er kveðið á um kynjasamþættingu í stefnumótun og ákvörðunum á öllum sviðum samfélagsins. Slík samþætting krefst þekkingar á jafnréttismálum og gera jafnréttislög ráð fyrir jafnréttisfræðslu á öllum skólastigum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Fyrsta ár | Vor
Hagnýt tölfræði (STJ201F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið þessa námskeiðs er að nemendur öðlist skilning á eðli hinnar vísindalegu aðferðar og undirstöðuþekkingu í að greina tölfræðileg gögn sem notuð eru við margs konar opinbera ákvarðanatöku. Farið er yfir hugtök á borð við orsök, réttmæti og áreiðanleika. Fjallað er bæði um lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði, þar á meðal um breytur, gildi, miðlægni, staðalfrávik, úrtök, marktækni og tilgátuprófanir. Áhersla er lögð á að nemendur öðlist færni í að greina og meta megindlegar rannsóknir með tilliti til aðferðafræði og jafnframt að þeir geti sótt gögn og framkvæmt einfaldar tölfræðiaðgerðir í töflureikni. 

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Starfsnám í jafnréttisfræði (KYN006F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur geta fengið 5 vikna starfsþjálfun á vettvangi hagnýts jafnréttisstarfs. Nemendur vinna almenn störf og sérstök verkefni sem tengjast náminu. Kennarar í kynjafræði annast umsýslu með starfsþjálfuninni í samráði við skrifstofu Stjórnmálafræðideildar.

Tilhögun starfsþjálfunar:
Nemandinn fær umsjónarmann á þeim vinnustað eða starfseiningu þar sem hann fær starfsþjálfun. Umsjónarmaður skilgreinir í upphafi starfstíma hvaða verkefni nemandi á að sinna.

Verkefni nemanda geta verið tvenns konar:
Eitt eða fleiri veigamikil verkefni sem a.m.k. helmingur starfstímans er varið í. Hér getur verið um að ræða t.d. söfnun gagna, greiningu þeirra eða úrvinnsla, ritun og kynningu gagna eða verkefna, svo sem ritun skýrslna eða greinargerða, eða önnur verkefni á verkefnasviði viðkomandi vinnustaðar eða einingar. Nemandi mótar verkefnið í samræmi við óskir umsjónarmanns og vinnustaðarins. Verkefnið skal tengjast þeim námsþáttum sem fjallað er um í MA-námi í kynjafræði og reyna á þá þekkingu og færni sem nemandi hefur aflað sér í náminu. Umsjónarkennari námskeiðs skal samþykkja tillögu að verkefni.

Í loks starfstímans skal skila til umsjónarkennara námskeiðsins:
-Meginverkefni nemandans í skýrsluformi (sbr. hér að ofan).
-Staðfesting umsjónarmanns á ástundum nemanda og verkefnavinnu í lok starfstímans. Dagbók sem nemandi hefur haldið meðan á starfstíma stóð. Dagbókin skal fela í sér vikulegt yfirlit þar sem fram kemur hver verkefni vikunnar voru og hve miklum tíma var varið í einstök verkefni.

Einkunn er ekki gefin fyrir starfstímann. Námskeiðinu verður hins vegar ekki lokið fyrr en kennari og umsjónarmaður starfstíma telja að viðunandi árangur hafi náðst. Kennari skilar staðfestingu til deildarskrifstofu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Annað ár | Heilsársnámskeið
Málstofa meistaranema í kynjafræði (KYN215F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að skapa samfélag meistaranema í kynjafræði sem fá tækifæri til að ræða meistaraverkefni sín og meistaraverkefni samnemenda undir handleiðslu kennara.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Annað ár | Haust
Rannsóknaráætlanir og rannsóknarsnið meistararitgerða (STJ302F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um rannsóknir og rannsóknaraðferðir félagsvísinda og er ætlað nemendum í meistaranámi í Stjórnmálafræðideild.  Í lok námskeiðs skulu nemendur hafa öðlast undirstöðu til að vinna sjálfstætt rannsóknarverkefni svo sem MPA eða MA verkefni. Nemendur skulu þekkja grundvallarhugtök vísindaheimspekinnar og mismunandi rannsóknarsnið. Nemendur vinna rannsóknaráætlun og farið er yfir verklag við gerð fræðiritgerða og uppbyggingu þeirra. Námskeiðið er byggt upp á verkefnum.

Æskilegt er að nemendur hafi valið viðfangsefni lokaritgerðar þegar námskeiðið hefst.

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Annað ár | Óháð misseri
MA-ritgerð í kynjafræði (KYN441L, KYN441L, KYN441L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0/0/0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lokaverkefni í MA-námi er sjálfstætt rannsóknarverkefni sem nemandi vinnur undir leiðsögn umsjónarkennara. Í verkefninu er tekist á við fræðilega krefjandi viðfangsefni og kenningum beitt á frumlegan hátt.

Kennslutungumál: Íslenska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar

Óháð námsári | Haust
Megindleg aðferðafræði (FMÞ001F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginefni námskeiðsins eru megindlegar rannsóknaraðferðir og tölfræði í félags- og menntavísindum. Lögð er áhersla á virka þátttöku nemenda og umfjöllun um þátt rannsókna í samfélaginu. Fjallað er um helstu rannsóknarsnið, úrtaksfræði og gerð spurningalista. Í tölfræðihluta er kennt um lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði og fjallað ítarlega um dreifigreiningu og aðhvarfsgreiningu. Nemendur vinna hagnýt verkefni í tölfræðilegri úrvinnslu gagna með jamovi forritinu samhliða fyrirlestrum. Nemendur geta unnið með eigin gögn.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Eigindlegar rannsóknaraðferðir I (FMÞ103F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur kynnist fjölbreytileika og fræðilegum forsendum eigindlegrar rannsóknahefðar í félagsvísindum og öðlist reynslu í að beita eigindlegum aðferðum. Um hagnýtt námskeið er að ræða þar sem hver nemandi vinnur sjálfstætt rannsóknarverkefni sem felst í því að hanna og undirbúa rannsókn, afla gagna, greina þau og skrifa um helstu niðurstöður undir handleiðslu kennara. Í námskeiðinu verður farið ítarlega í undirbúning rannsókna, gerð rannsóknaráætlunar, gagnaöflun, greiningu og skrif.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Haust
Starfsnám í jafnréttisfræði (KYN006F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur geta fengið 5 vikna starfsþjálfun á vettvangi hagnýts jafnréttisstarfs. Nemendur vinna almenn störf og sérstök verkefni sem tengjast náminu. Kennarar í kynjafræði annast umsýslu með starfsþjálfuninni í samráði við skrifstofu Stjórnmálafræðideildar.

Tilhögun starfsþjálfunar:
Nemandinn fær umsjónarmann á þeim vinnustað eða starfseiningu þar sem hann fær starfsþjálfun. Umsjónarmaður skilgreinir í upphafi starfstíma hvaða verkefni nemandi á að sinna.

Verkefni nemanda geta verið tvenns konar:
Eitt eða fleiri veigamikil verkefni sem a.m.k. helmingur starfstímans er varið í. Hér getur verið um að ræða t.d. söfnun gagna, greiningu þeirra eða úrvinnsla, ritun og kynningu gagna eða verkefna, svo sem ritun skýrslna eða greinargerða, eða önnur verkefni á verkefnasviði viðkomandi vinnustaðar eða einingar. Nemandi mótar verkefnið í samræmi við óskir umsjónarmanns og vinnustaðarins. Verkefnið skal tengjast þeim námsþáttum sem fjallað er um í MA-námi í kynjafræði og reyna á þá þekkingu og færni sem nemandi hefur aflað sér í náminu. Umsjónarkennari námskeiðs skal samþykkja tillögu að verkefni.

Í loks starfstímans skal skila til umsjónarkennara námskeiðsins:
-Meginverkefni nemandans í skýrsluformi (sbr. hér að ofan).
-Staðfesting umsjónarmanns á ástundum nemanda og verkefnavinnu í lok starfstímans. Dagbók sem nemandi hefur haldið meðan á starfstíma stóð. Dagbókin skal fela í sér vikulegt yfirlit þar sem fram kemur hver verkefni vikunnar voru og hve miklum tíma var varið í einstök verkefni.

Einkunn er ekki gefin fyrir starfstímann. Námskeiðinu verður hins vegar ekki lokið fyrr en kennari og umsjónarmaður starfstíma telja að viðunandi árangur hafi náðst. Kennari skilar staðfestingu til deildarskrifstofu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Formæður og franskir barmar: Menningarmörk, klæðnaður og þjóðernismótun á 19. öld (ÞJÓ063M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennt í ágúst 2022

Í námskeiðinu verður rannsakað hlutverk klæðnaðar í mótun menningarmarka og þjóðernisvitundar á Íslandi, c. 1790-1920. Sérstök áhersla verður lögð á þjóðlegan klæðnað kvenna, en almennt athugað hvernig klæðahættir beggja kynja áttust við tískustrauma og stefnur meginlandsins þegar skilgreina skyldi sýnileg einkenni íslensks þjóðernis. Kynntar verða kenningar um þróun menningarmarka, sem og aðferðafræði um nýtingu persónulegra frásagna og sögulegra heimilda í túlkun á menningu þjóðar. Rýnt verður í ferðabækur, greinaskrif og sendibréf til að kanna áhrif gagnvirkra samskipta milli menningarheilda á gerð og þróun menningarmarka og þjóðernisvitundar. Í skriflegu lokaprófi skulu kenningar og heimildir þessar nýttar til að skýra áhrif og notkun klæðnaðar í myndun og staðfestingu menningarmarka og ætlast til að nemendur geti rætt og metið áhrif einstakra persóna og hópa á mótun þjóðernisvitundar með klæðnaði

Umsjónarmaður: ÓIafur Rastrick             
Kennari:  Dr. Karl Aspelund, Associate Professor, University of Rhode Island.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Haust
Menntun, félagslegur hreyfanleiki og félagsleg lagskipting (FÉL501M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni? Í þessu námskeiði er skoðað hvernig félagslegur bakgrunnur einstaklings hefur áhrif á þá félagslegu stöðu sem sem viðkomandi nær að lokum í lífinu og hvernig ójöfnuður endurskapast frá einni kynslóð til annarrar. Námskeiðið fjallar um hvernig félagslegur hreyfanleiki hefur breyst í gegnum tíðina og milli landa og hvaða hlutverki menntun gegnir fyrir félagslegan hreyfanleika. Fjallað verður um helstu kenningar sem notaðar eru til að útskýra ójöfnuð í menntun og félagslegum hreyfanleika og (hugsanlegar) breytingar yfir tíma. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á félagslegan bakgrunn einstaklinga (stétt, menntun foreldra eða félags-efnahagslega stöðu foreldra) en misrétti á grundvelli kyns og þjóðernisuppruna  verður einnig skoðað á síðustu fundum. Í málstofunni munum við lesa blöndu af klassískum og nýlegum textum. Jafnframt verður sérstök áhersla lögð á að fjalla um lestur og niðurstöður frá öðrum löndum í samanburði við Ísland.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Haust
Lífshlaupið, sjálf og samfélag (FFR302M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Aðstæður og reynsla fatlaðs fólks er miðlæg í umfjöllun námskeiðsins, þar sem áhersla er á lífshlaupið og þau meginsvið sem snerta daglegt líf, svo sem fjölskyldulíf, menntun, atvinnu og búsetu. Rýnt verður í íslenskar og erlendar rannsóknir um líf og aðstæður fatlaðs fólk og þau fjölmörgu öfl sem móta sjálfsmynd og sjálfsskilning fatlaðra barna, ungmenna og fullorðins fólks. Fræðileg umfjöllun námskeiðsins er tengd við lagasetningar, stefnumótun, þjónustu, velferðarkerfi og félagslegar aðstæður fatlaðs fólks. 

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Haust
Kenningar og sjónarhorn í fötlunarfræði (FFR102F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist djúpan skilning á þróun hugmynda og kenninga um fötlun og læri að greina áhrif þeirra á stefnumótun, þjónustu og daglegt líf fatlaðs fólks. Námskeiðið byggir á þverfræðilegum og gagnrýnum sjónarhornum og tengir fræðilega umfjöllun við réttindabaráttu og alþjóðlegar skuldbindingar, svo sem samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (CRPD). Fjallað verður um félagsleg og menningarleg sjónarhorn, helstu kenningar og nýjustu rannsóknir í fötlunarfræðum. Áhersla verður á virka þátttöku nemenda í umræðum og verkefnavinnu sem styrkir gagnrýna hugsun og hæfni til að beita fræðunum í rannsóknum og starfsháttum.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Haust
Hið hæfa foreldri? Orðræður um foreldrahlutverkið (FFU102M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verða orðræður um foreldrahlutverkið teknar til skoðunar. Fjallað verður um samfélagslegt samhengi þeirra krafna sem gerðar eru til foreldra, meðal annars um einstaklingsvæðingu foreldrahlutverksins og ákafa mæðrun. Til skoðunar verða þær kröfur sem eru gerðar til foreldra í dag svo sem skólaval, tómstundaval, samskipti heimilda og skóla/tómstunda, heimanám, matarræði, skjátímastjórnun, örvun, brjóstagjöf og kröfuna um að vera upplýst og meðvitað foreldri. Skoðað verður í gagnrýnu ljósi hvaðan þessar kröfur koma, hvaða áhrif þær hafa á foreldra og þær settar í samhengi við nýfrjálshyggju, markaðsvæðingu og orðræðu frá sérfræðingum. Ríkjandi menntastraumar gera ráð fyrir foreldrum sem eins konar „neytendum“ á „menntamarkaði“ og því er skólaval og –þátttaka á menntavettvangi vaxandi rannsóknarsvið í skóla- og uppeldisrannsóknum. Lesnar verða erlendar og íslenskar rannsóknir um foreldrahlutverkið og hvernig forréttindi og jaðarsetning mótar möguleika foreldra til að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru. Áhersla verður lögð á að skoða sérstaklega þá hópa fólks sem hafa fengið stöðu „hæfra“ og „vanhæfra“ foreldra og tengja við kenningar um kyn, stétt, uppruna, fötlun, kynhneigð og kynvitund. Nemendur fá innsýn inn í foreldrarannsóknir á sviði gagnrýnnar félagsfræði, félagssálfræði, menntunarfræði og kenninga um vald og jaðarsetningu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Haust
Siðferðileg álitamál samtímans (HSP723M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Áleitin siðferðileg úrlausnarefni ofarlega á baugi í nútímasamfélagi eru meginviðfangsefni þessa námskeiðs. Sjónum er beint að möguleikum siðfræðinnar á að takast á við klemmur sem upp koma, jafnt í lífi einstaklinga sem á samfélagsgrundvelli. Val á viðfangsefnum getur breyst milli ára en meðal mögulegra viðfangsefna námskeiðsins má nefna tjáningarfrelsi, stöðu flóttafólks, réttindi dýra, fátækt og ójöfnuð, kynjamisrétti, kynþáttamisrétti, umhverfismál og ýmis álitamál úr heilbrigðiskerfinu. Farið er í tengsl fræðilegrar og hagnýttrar siðfræði. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum með ríkri áherslu á virka þátttöku nemenda í umræðum.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Haust
Siðfræði náttúrunnar (HSP722M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um samband manns og náttúru frá heimspekilegu sjónarhorni. Fjallað er um helstu frumkvöðla náttúrusiðfræðinnar og áhrifamestu kenningar sem settar hafa verið fram. Gerð grein fyrir ólíkri náttúrusýn manna og mismunandi grunnafstöðum til náttúrunnar - þ.e. mannhverfri, visthverfri og lífhverfri afstöðu. Einnig fjallað um tengsl umhverfis- og þróunarmála og tengsl umhverfishyggju og lýðræðisþróunar. Rætt um álitaefni eins og: Getur siðfræðin nýst við lausn umhverfisvandamála?, Hvers konar verur hafa siðferðisstöðu?, Geta náttúrleg fyrirbæri búið yfir eigingildi?, Hafa dýr einhver réttindi?, Er einhver grundvallarmunur á (af)stöðu karla og kvenna gagnvart náttúrunni?, og Hvert er siðferðilegt inntak sjálfbærrar þróunar?

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Haust
Ofbeldisbrot frá sjónarhóli kvennaréttar (LÖG104F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í kjörgreininni verður fjallað um eftirfarandi fjóra brotaflokka: Nauðgun og önnur brot gegn kynfrelsi fólks. Kynferðisbrot gegn börnum. Vændi. Heimilisofbeldi. Gerð verður grein fyrir skilyrðum refsiábyrgðar fyrir brot, sem falla undir þessa brotaflokka og viðurlögum fyrir þau. Þá verður fjallað um nokkra þætti opinbers réttarfars sem sérstaklega tengjast meðferð þessara brota, t.d. reglur um sönnun og réttarstöðu brotaþola. Sérstök áhersla verður lögð á að nálgast viðfangsefnið út frá þeim sjónarmiðum sem fram hafa komið í kvennarannsóknum síðustu ára. Auk þess að fjalla um refsiréttarlega þætti efnisins verður vikið að refsipólitískum viðhorfum, þ.e. á hvern hátt þyrfti að breyta gildandi ákvæðum, svo að þau þjóni betur hagsmunum kvenna. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu á eðli og inntaki kynbundins ofbeldis og verði færir um að leysa úr lögfræðilegum álitaefnum á því sviði. Námskeiðið er að jafnaði kennt annað hvert ár. Minnt er á að framboð námskeiða er háð ýmsum fyrirvörum, þar á meðal að deild hefur heimild til að fella niður fámenn námskeið.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Haust
Hnattvæðing (MAN095F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verða skoðaðar nýlegar kenningar og rannsóknir sem tengjast hnattvæðingu og hnattrænum ferlum. Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum yfirsýn yfir mikilvæg þemu sem tengjast hnattvæðingarferlum.  Skoðaðar verða rannsóknir sem varpa ljósi á ólíkar hliðar hnattvæðingar og afleiðingar fyrir félagslegan, efnislegan og pólitískan veruleika. Í námskeiðinu er bæði fjallað á gagnrýnin hátt um fyrrnefnd hugtök en einnig lögð áhersla á að skoða rannsóknir á hvernig fólk er þátttakendur/þolendur/gerendur í hnattvæðingarferlum.

Kennslan felst í fyrirlestrum og umræðum. 

Námskeiðið er kennt á ensku, en hægt er að skila inn verkefnum á íslensku.

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Aðstæðubundið sjálfræði og kynverund (ÞRS102F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um kenningar um aðstæðubundið sjálfræði og með hvaða hætti megi nota þær til að stuðla að auknu sjálfræði þeirra sem þurfa mikinn stuðning í daglegu lífi. Einnig er fjallað um hugtökin kyngervi og kynverund í samhengi við líf og reynslu fatlaðs fólks. Leitast verður við að fjalla um hugtakið sjálfræði út frá siðfræðilegum skilningi og í því skyni verður fjallað um kenningar femínista um hugtakið aðstæðubundið sjálfræði. Skoðaðar verða ýmsar hliðar sjálfræðis eins og til dæmis hvernig megi auka virðingu fyrir persónueinkennum, sjálfstæði, kynhlutverkum og kynverund. Sjónum er beint að því hvernig litið hefur verið á fatlað fólk sem eilíf börn, kynlaus eða með hömlulausa kynhvöt. Þessar mótsagnakenndu staðalmyndir hafa orðið til þess að fatlað fólk hefur takmarkað aðgengi að fullorðinshlutverkum. Í námskeiðinu er sjálfræðishugtakið tengt við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Kynjajafnrétti í skólastarfi (KME101F)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður fjallað um kynjafræði og hvernig helstu hugtök þeirra, svo sem kyn, jafnrétti, kyngervi, kynhlutverk, samtvinnun, hinsegin fræði, kynímynd, staðalmyndir, kynbundið ofbeldi, kynfræðsla, karlmennska og kvenleiki, nýtast til að skilja og skipuleggja skólastarf. Þá verður kynnt löggjöf um kynjajafnrétti og kynjajafnréttisfræðslu og fjallað um tengsl kynjajafnréttis og annars jafnréttis, sbr. aðalnámskrá leik-, grunn- og framhaldsskóla. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur í námskeiðinu geti greint námsumhverfi, aðferðir og námsefni út frá kynjasjónarhorni. Einnig að þeir geti greint val leikja í leikskóla og í frímínútum og skólaíþróttum. Áherslan í námskeiðinu miðar að því að nemendur stefni að kennslu í yngri bekkjum grunnskóla eða leikskóla.

Nemendur þurfa að mæta í lok nóvember til að kynna lokaverkefni sitt í námskeiðinu.

Í námskeiðinu verður gengið verður út frá því grundvallarsjónarmiði sem kemur fram í aðalnámskrá leik-, grunn- og framhaldsskóla að menntun um jafnrétti kynjanna feli í sér gagnrýna skoðun á viðteknum hugmyndum í samfélaginu í því augnamiði að kennarar geti kennt börnum og ungmennum að greina þær aðstæður sem leiða til mismununar sumra og forréttinda annarra á forsendum kyns.

Námsmat mun felast í lestrardagbókum, hugtakakönnun og hagnýtum verkefnum tengdum skólastarfi á viðkomandi skólastigi. Skyldumæting er í kynningu lokaverkefnis. 

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Óháð námsári | Vor
Starfsnám í jafnréttisfræði (KYN006F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur geta fengið 5 vikna starfsþjálfun á vettvangi hagnýts jafnréttisstarfs. Nemendur vinna almenn störf og sérstök verkefni sem tengjast náminu. Kennarar í kynjafræði annast umsýslu með starfsþjálfuninni í samráði við skrifstofu Stjórnmálafræðideildar.

Tilhögun starfsþjálfunar:
Nemandinn fær umsjónarmann á þeim vinnustað eða starfseiningu þar sem hann fær starfsþjálfun. Umsjónarmaður skilgreinir í upphafi starfstíma hvaða verkefni nemandi á að sinna.

Verkefni nemanda geta verið tvenns konar:
Eitt eða fleiri veigamikil verkefni sem a.m.k. helmingur starfstímans er varið í. Hér getur verið um að ræða t.d. söfnun gagna, greiningu þeirra eða úrvinnsla, ritun og kynningu gagna eða verkefna, svo sem ritun skýrslna eða greinargerða, eða önnur verkefni á verkefnasviði viðkomandi vinnustaðar eða einingar. Nemandi mótar verkefnið í samræmi við óskir umsjónarmanns og vinnustaðarins. Verkefnið skal tengjast þeim námsþáttum sem fjallað er um í MA-námi í kynjafræði og reyna á þá þekkingu og færni sem nemandi hefur aflað sér í náminu. Umsjónarkennari námskeiðs skal samþykkja tillögu að verkefni.

Í loks starfstímans skal skila til umsjónarkennara námskeiðsins:
-Meginverkefni nemandans í skýrsluformi (sbr. hér að ofan).
-Staðfesting umsjónarmanns á ástundum nemanda og verkefnavinnu í lok starfstímans. Dagbók sem nemandi hefur haldið meðan á starfstíma stóð. Dagbókin skal fela í sér vikulegt yfirlit þar sem fram kemur hver verkefni vikunnar voru og hve miklum tíma var varið í einstök verkefni.

Einkunn er ekki gefin fyrir starfstímann. Námskeiðinu verður hins vegar ekki lokið fyrr en kennari og umsjónarmaður starfstíma telja að viðunandi árangur hafi náðst. Kennari skilar staðfestingu til deildarskrifstofu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Lesnámskeið á sérsviði (KYN008F)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu rýnir nemandinn í afmarkað svið og gerir fræðilega samantekt á efni sem hann hefur áhuga á og tengist áherslu hans í náminu. Nemandinn setur fram námsmarkmið og tímaáætlun í samráði við leiðbeinanda, leitar eftir fræðilegum heimildum, um 400 blaðsíður, greinir þær og gagnrýnir, og nýtir upplýsingarnar til að setja fram þekkingu á nýjan hátt í lestardagbók sem skilað er fjórum sinnum yfir misserið. Umfang lestardagbókar er um 5.000 orð

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Óháð námsári | Vor
Hinseginlíf og hinseginbarátta (KYN212F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er inngangsnámskeið sem varpar ljósi á sögu hinseginfólks (sam-, tvíkynhneigðra, pansexual, transfólks og fleiri) á Íslandi, reynsluheim þeirra, baráttumál og menningu. Sagan er sett í alþjóðlegt samhengi og gerð er grein fyrir helstu vörðum í mannréttinda¬baráttunni, réttarstöðu og löggjöf. Fjallað er um mikilvæga þætti félagsmótunar¬innar, svo sem sköpun sjálfsmyndar og þróun sýnileika, samband við upprunafjölskyldu og leit að eigin fjölskyldugerð. Rætt er um muninn á samkynhneigðum fræðum og hinsegin fræðum, og kynntar eru kenningar um mótun kynferðis, kyngerva (sex og gender) og kyngervisusla (gender trouble). Vikið er að samræðu hinseginfólks við stofnanir samfélagsins og fjallað um líðan þeirra og lífsgæði. Fjallað er um þátt kynhneigðar í mótun menningar og ýmsar menningargreinar eru teknar sem dæmi um það hvernig veruleiki hinseginfólks birtist í listum og menningu. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Kynferðisbrot, lög og réttlæti (FÉL601M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Umræðan um kynferðisbrot og hvernig eigi að bregðast við þeim hefur farið hátt síðustu misseri, þá sérstaklega í kjölfar #MeToo hreyfingarinnar. Rannsóknir sýna að einungis lítill hluti kynferðisbrotamála eru kærð til lögreglunnar og aðeins örlítill hluti þeirra lýkur með sakfellingu. Því má segja að málaflokkurinn einkennist af réttlætishalla. Í auknum mæli sjáum við einnig þolendur kynferðisbrota segja sögu sína á samfélagsmiðlum eða í fjölmiðlum og í sumum tilvikum eru meintir gerendur ásakaðir opinberlega sem getur vakið ólík viðbrögð og haft ýmiss konar afleiðingar.

Í þessu námskeiði verður leitað skýringa á þessari samfélagsþróun út frá sjónarhóli félags- og afbrotafræði. Í námskeiðinu verður meðal annars leitað svara við eftirfarandi spurningum: Hverjir fremja kynferðisbrot og af hverju? Hvernig er reynsla karla sem verða fyrir kynferðisbrotum önnur en reynsla kvenna? Hver er munurinn á réttarstöðu sakborninga og réttarstöðu brotaþola? Af hverju er munur á ætlun og framkvæmd laganna? Hvernig hefur refsivörslukerfið þróast? Hver er munurinn á lagalegu réttlæti og félagslegu réttlæti? Hvernig eru óhefðbundin réttarkerfi betri eða verri en hefðbundin réttarkerfi? 

Athugið að námskeiðin Afbrot á Íslandi og Kynferðisbrot, lög og réttlæti eru jafnan kennd annaðhvert ár, hvort á móti öðru.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Fötlun og menning (FFR201M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á stöðu og ímynd fatlaðs fólks í menningu og listum og geti greint birtingarmyndir fötlunar í sögulegu og samtímalegu samhengi. Fjallað verður um ímyndir og hlutverk fatlaðs fólks í dægurmenningu, fjölmiðlum, bókmenntum, listum og almennri orðræðu. Sérstök áhersla verður á (list)menningu fatlaðs fólks og hvernig fötlun er staðsett sem hluti af fjölbreytileika samfélaga. Rýnt verður í ytra og innra aðgengi að menningu og listum og áhrif þess á þátttöku fatlaðs fólks.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Sjónrænar rannsóknaraðferðir (FMÞ001M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist aðferðarfræðilega þekkingu, skilning og verklega færni til að greina myndir og önnur sjónræn rannsóknargögn (ljósmyndir, kvikmyndir, teikningar, auglýsingar, netmiðla, o.s.frv.). Farið verður í ýmsar aðferðir við greiningu á sjónrænu efni og hugað verður að sjónrænum gagnasöfnum og vinnu með þau. Nemendur fá þjálfun í því að kynna sér og leggja sjálfstætt mat á fyrirliggjandi rannsóknir. Námskeiðið byggist upp á hagnýtum verkefnum, þar sem nemendur undirbúa og hanna rannsóknaáætlanir, afla gagna og spreyta sig á greiningu þeirra. Námskeiðið er þverfaglegt og hentar nemendum á hug- og félagsvísindasviði, sem og öðrum sviðum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Eigindlegar rannsóknaraðferðir II (FMÞ201F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er þá fjölbreytni sem er að finna í  eigindlegum rannsóknum. Rýnt er í fimm mismunandi rannsóknarhefðir, þ.e. tilviksathuganir, frásögurannsóknir, etnógrafíu, fyrirbærafræði og grundaða kenningu. Nemendur öðlast aukna færni í að afla rannsóknargagna á vettvangi og beita mismunandi greiningaraðferðum á eigindleg gögn. Þeir fá jafnframt þjálfun í framsetningu niðurstaðna í tengslum við fræðiskrif. Þá fá nemendur tækifæri til að ígrunda eigin rannsóknir og sjálfa sig sem eigindlega rannsakendur.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Kynuslakvikmyndir og hinsegin fræði (KVI801F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

„The world of the heterosexual is a sick and boring life.“
– Female Trouble (John Waters, 1974)

Í námskeiðinu verða hinsegin birtingarmyndir skoðaðar í kvikmyndum frá upphafi 20. aldarinnar og til samtímans. Orðið hinsegin (e. queer) vísar til þess sem ekki rúmast innan flokks gagnkynhneigðar eða þess sem telst hefðbundið kyn eða kynhlutverk, en hvoru tveggja hefur lengst af verið mætt með ritskoðun í meginstraumskvikmyndum. Orðið hefur líka pólitískar skírskotanir og einkennist af því að merking þess sé háð samhengi á hverjum tíma og samfélagi, en kvikmyndahöfundar sem grafið hafa undan gagnkynhneigðu forræði (e. heteronormativity) á hverjum tíma verða í sérstökum brennidepli í námskeiðinu. Að auki munum við kafa í hinseginhugtakið og lesa jafnt klassíska texta hinsegin fræða sem og nýrri texta sem gefa hugmynd um þróun á fræðasviðinu

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári | Vor
Fjölmenning og fólksflutningar (MAN017F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Oft er talað um fólksflutninga og fjölmenningu sem eitt megin einkenni samfélaga samtímans. Í námskeiðinu eru kynntar helstu kenningar og stefnur sem fram hafa komið í tengslum við rannsóknir á fólksflutningum og fjölmenningu. Fjallað er á gagnrýninn hátt um margskonar kenningar sem tengjast þessum rannsóknarviðfangsefnum og gagnsemi þeirra skoðuð. Skoðuð eru hugtök eins og menning, samlögun, aðlögun og samþætting, en jafnframt gert grein fyrir hreyfanleika fortíðar og tengslum hans við fjölmenningu. Í námskeiðinu eru ólíkar nálganir og kenningarmótun fræðimanna fyrst og fremst dregnar fram og gerð grein fyrir helstu viðfangsefnum félagsvísindamanna á þessu sviði.

Kennslan fer fram í formi fyrirlestra og umræðna.

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Vor
Menning og vegferð ungmenna (UME009M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið tekur til félagsfræðilegra og þverfaglegra kenninga og rannsókna um ungmenni, menningu þeirra, vegferð og menntun. Ungmennahugtakið á við breytilegan aldurshóp eftir samfélögum og söguskeiðum en í okkar síðnútíma einkum aldurshópinn 16-25 ára. Líf og aðstæður ungmenna verða skoðuð sitt á hvað frá ólíkum sjónarhornum félagsfræði og ýmissa skyldra greina og áhersla lögð á þverfaglega, menntavísindalega samþættingu. Hugtakið vegferð ungmenna (e. transition to adulthood) var fram undir 1990 notað um leið ungmenna frá skólanámi til fastrar atvinnu, en hefur síðan verið víkkað út til fjölskyldumyndunar, samfélagsþátttöku og fleiri atriða.

Í námskeiðinu verður sjónum beint að nýlegum rannsóknum á vegferð í mismunandi löndum og eftir félagslegum bakgrunni. Rýnt verður sérstaklega í rannsóknir sem gerðar hafa verið á menningu ungmenna á Íslandi og öðrum Norðurlöndum. Vegferðin er sérstaklega könnuð í gegnum þrenns konar kerfi, þ.e. a) reynslu og val þeirra innan framhalds- og háskólakerfisins, b) vegferð innan vinnumarkaðar og c) í kynverundarkerfinu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Eldhúsnautnir, megrunarkúrar og matreiðsluþættir (ÞJÓ609M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið verður lotukennt alla daga vikunnar 10.-14. maí 2021 (sem er vikan eftir að lokaprófum á vormisseri lýkur) í sex stundir hvern dag (samtals 30 stundir). Nemendur verða að lesa allt námsefnið áður en námskeiðið hefst. Þeir vinna verkefni í vikunni og skrifa lokaritgerð eftir að námskeiðinu lýkur.

Í slow motion sleikir sjónvarpskokkurinn Nigella á sér fingurinn eftir að hafa dýft honum í rjómalagaða sveppasósu. Hún gefur frá sér nautnalegt hljóð, horfir í myndavélina með blik í auga og vill að við njótum með sér. Á annarri stöð öskrar sjónvarpskokkurinn Gordon Ramsey látlaust á aðra kokka sem berjast við að bjarga veitingastöðunum sínum. Margir þeirra fella tár undir reiðilestrinum.

Nautn, reiði, stress, spenna, karlremba, kvenleiki, rjómi, megrunarkúrar, heilsusamlegt mataræði, matarblogg, baksturskeppnir og barátta fyrir bættum og réttlátum matarháttum endurspeglar vinsældir matar sem afþreyingar og tækis til að rækta manneskjur og samfélag. Hvað útskýrir þennan gífurlega áhuga, jafnvel þráhyggju, samtímans gagnvart matarháttum og næringu?

Í námskeiðinu verður rýnt í nokkur vel valin hráefni sem umbreytt hefur verið í girnilegar menningarafurðir og sérstök áhersla lögð á hvernig hugmyndir um kyngervi og lífsstíl endurspeglast í matartengdum fyrirbærum á borð við matreiðsluþætti, matreiðslubækur, matarkeppnir og matarblogg.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Trans börn og samfélag (UME204M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið:

Markmið námskeiðsins er að nemar kynnist hugmyndum, kenningum og rannsóknum í fræðum sem koma inn á veruleika og upplifanir trans fólks (trans fræði). Einnig verða meginhugmyndir gagnrýnna bernskufræða kynntar. Áhersla verður lögð á að þátttakendur verði meðvitaðir um veruleika trans ungmenna og trans barna og samfélagslega orðræðu um málaflokkinn.

Viðfangsefni:

Unnið verður meðal annars með hugtökin kyngervi, kynjatvíhyggja, kynsegin, kynvitund, samtvinnun, trans* hugtakið, síshyggja, umhyggja, barnavernd og réttindi barna. Fjallað verður um megininntak transfræða/hinseginfræða og hvernig hægt er að nýta sér þá nálgun til varpa ljósi á uppeldi, menntun, samfélag, tómstunda- og félagsstarf og íþróttir. Nálgunin verður í anda gagnrýnna trans- og bernskufræða og félagslegrar mótunarhyggju. Enn fremur verður fjallað um skólakerfi og aðrar stofnanir, hérlendis og erlendis, og hvernig margs konar mismunun skapast og viðhelst og getur ýtt undir stofnanabundna transfóbíu og síshyggju. Lesnar verða nýjar íslenskar og erlendar rannsóknir í tengslum við efnið. Þá verður lögð áhersla á að þjálfa verðandi uppeldis- og menntunarfræðinga, þroskaþjálfa, foreldrafræðara, kennara, tómstunda- og félagsmálafræðinga, stjórnendur og annað fagfólk til að skapa hinsegin/trans vænt andrúmsloft í viðeigandi hópum sem unnið er með.

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Óháð námsári | Vor
Menntun og kyngervi (UME004M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið: Markmið námskeiðsins er að nemar kynnist hugmyndum, kenningum  og rannsóknum um uppeldi og menntun í ljósi kynjafræðilegra sjónarmiða og hugtaksins kyngervi (gender).

Viðfangsefni. Unnið verður með hugtökin, kyngervi, kynjun, kynímyndir, staðalmyndir, kvenfrelsi, félagsleg mismunun, kynhlutverk, kynjablinda, tvíhyggja og valdatengsl. Fjallað verður um hvernig hugmyndir um menntun kynjanna hafa þróast sögulega, rýnt í orðræðuna um drengi og stúlkur og staðreyndir og gagnrýni á menntun og kynferði á öllum skólastigum. Sjónarmið félagslegar mótunarhyggju og eðlishyggju verða notuð til að útskýra mismunandi hugmyndir um kynjamismunun. Athyglinni verður beint sérstaklega að nýjum rannsóknum á sviðinu og fræðilegri nálgun mismunandi fræðimanna. Að síðustu verður athyglinni beint að íslenska skólakerfinu, stöðu drengja og stúlkna, leiðtogum og stjórnendum, námskrám og stöðu lögbundinnar jafnréttisfræðslu á öllum skólastigum. Lesnar verða nýjar íslenskar og erlendara rannsóknir á kyngervi og skólastarfi, t.d. rannsóknir á námsframmistöðu kynjanna, mismunandi hugmyndum stelpna og stráka um námsgreinar, námshæfni og námsval og hvernig skólar bregðast við kynjun skóla og samfélags.

Vinnulag
Námskeiðið er skipulagt sem staðnám, með möguleikum til fjarnáms ef þörf krefur. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, umræðum, málstofum, hópvinnu og verkefnavinnu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Fjölbreytileiki og inngilding (inclusion) í skipulagsheildum (VIÐ288F)
Valnámskeið á námsleiðinni
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið veitir nemendum tækifæri til að bera kennsl á þörfina á að þróa vinnuumhverfi sem byggir á jafnréttishugsun og inngildingu ólíkra hópa þar sem fjölbreytt framlag er velkomið. Nemendur læra að bera kennsl á félagslegt réttlæti/útilokun minnihlutahópa t.d. vegna kynþáttar, uppruna, aldurs, kyns, trúarbragða, kynhneigðar, fötlunar/færni, stéttar og annara fjölbreytileikaþátta í skipulagsheildum og nýta þekkinguna til að greina og beita aðferðum stjórnunar fjölbreytileika og  inngildingar í skipulagsheildum. Nemendur kynnast nýjum rannsóknum á sviðinu til að efla gagnrýna hugsun um viðfangsefni eins og sjálfsmynd (identity), (ó)meðvitaða hlutdrægni, samvinnu í fjölbreyttum teymum, (ó)jöfn tækifæri í skipulagsheildum og tækifærum sem felast í fjölbreytileikanum. 

Námskeiðið er kennt á ensku

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt í lotu IV
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Hegðunarvísindi í opinberri stefnumótun (OSS225F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði læra nemendur um valin hugtök og rannsóknir úr félagssálfræði, atferlishagfræði og ákvarðanatökufræðum sem nýta má við gerð, greiningu og framkvæmd stefnumótunar. Bornar verða saman kenningar skynsemishyggju og fjötraðrar skynsemishyggju. Nemendur munu öðlast skining á því hvernig fólk tekur ákvarðanir og leggur mat á áhættu, áhrifum hvata á ákvarðanir og hvernig hafa má áhrif á viðhorf og hegðun. Fjallað verður um millihópasamskipti og samninga. Loks verða tengsl stefnumótunar og hagsældar tekin til umræðu.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Kyngervi, sögur og siðir (ÞJÓ021M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

The field of Folklore, emerging out of the phenomena collectively referred to as  Modernity, has a complicated and problematic relationship with gender, both in the material that circulates and the subsequent academic treatment of that material. This seminar combines theoretical perspectives from Gender Studies and Folkloristics to better understand the interconnectedness of popular cultural forms, analyses, and the operations of power, specifically gender relations. Beginning with a feminist critique of Folkloristics from within (a historical reference point), we will examine more recent work on the relationship between gender and genre, between the empowering acts of ordinary rituals (so-called women‘s genres), and how the old, debunked Nature/Culture divide, in which women‘s genres were debased and denigrated, may, looked at from a different perspective, suggest alternate approaches to some contemporary global issues.

Teacher of the course: JoAnn Conrad

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Innbyrðing kúgunar (ÞRS003M, SFG004M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kúgun minnihlutahópa er málefni sem félagsvísindi hafa skoðað töluvert síðustu áratugina en styttra er síðan farið var að rannsaka sálfræðileg áhrif kúgunar sem birtist oft í innbyrðingu kúgunarinnar. Í þessu námskeiði verða nemendum kynntar gagnrýnar kenningar sprottnar upp úr síð-nýlendu sálfræði. Farið verður bæði í það hvernig kúgun er innbyrt en einnig verður varpað ljósi á innbyrðingu kúgunar ákveðinna hópa, t.d. fatlaðs fólks, innflytjenda og hinsegin fólks. Þekking samfélagsins á sálrænum áhrifum innbyrðingar þessara hópa er mikilvæg og þegar fagfólk starfar á vettvangi er þýðingarmikið bregðast rétt við birtingarmyndum innbyrðingar og reyna að draga úr neikvæðum áhrifum hennar eins og hægt er. 

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Hinsegin menntunarfræði (ÞRS003M, SFG004M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið: Markmið námskeiðsins er að nemar kynnist hugmyndum, kenningum  og rannsóknum í hinsegin menntunarfræðum. Enn fremur að þeir fái góða innsýn inn í fræðaheim hinsegin fræða. Áhersla verður lögð að að nemar tileinki sér gagnrýna sýn á uppeldi og menntun og að þeir verði meðvitaður um veruleika hinsegin ungmenna.

Viðfangsefni: Unnið verður meðal annars með hugtökin kyngervi, kynhneigð, kynvitund, samtvinnun, karlmennska, kvenleiki, kynhlutverk, kynjatvíhyggja, gagnkynhneigðarhyggja og síshyggja. Fjallað verður um megininntak hinsegin menntunarfræða og hvernig nálgun þeirra getur varpað ljósi á menntun, uppeldi, tómstunda- og félagsstarf og samfélag. Nálgunin verður í anda hinsegin fræða og félagslegrar mótunarhyggju sem verða notuð til að útskýra ólíkar hugmyndir um kynhneigð, kynvitund og hinsegin kynverund. Enn fremur verður fjallað um skólakerfi, hérlendis og erlendis, og hvernig það viðheldur margs konar mismunun og ýtir jafnvel undir stofnanabundna gagnkynhneigðarhyggju og síshyggju. Lesnar verða nýjar íslenskar og erlendar rannsóknir í tengslum við kynhneigð, kynvitund, skólakerfi, kennslu og námsbækur. Þá verður lögð áhersla á að þjálfa verðandi fagfólk sem starfar með börnum og ungmennum í að búa til hinseginvænt andrúmsloft í barna- og ungmennahópi, að flétta hinsegin veruleika inn í starf sitt og bregðast við neikvæðum viðhorfum í garð hisneginleika.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Stefnubreytingar, nýsköpun og tengslanet í opinberri stjórnsýslu: Helstu kenningar (OSS220F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á þessu námskeiði fá nemendur að kynnast tvenns konar kenningum í opinberri stefnumótun og fá jafnframt tækifæri til að beita þeim á raunveruleg verkefni hjá hinu opinbera. Í fyrsta lagi munu nemendur fara yfir kenningar sem skýra stefnubreytingar og meiriháttar breytingar í málefnum hins opinbera, þ.e. svokallaðar dagskrárkenningar eða “agenda-setting theories”. Í öðru lagi munu nemendur fara yfir kenningar um tengslanet og stýringu tengslaneta í opinberum stjórnkerfum, þeirri nýsköpun innan opinberrar stjórnsýslu sem nú er að koma fram í kjölfar þeirra breytinga sem orðið hafa fyrir áhrif og tilverknað innleiðingar á hugmyndum sem kenndar eru við nýskipan í ríkisrekstri. Fjallað verður um á hvern hátt þessar kenningar tengjast kenningunni um umboðskeðjuna og lýðræðislega ábyrgð og hinum ýmsu stjórntækjum hins opinbera. Áhersla námskeiðsins er á stefnumótunarferli hins opinbera, (The Public Policy Process), þátttakendum í ferlinu (The Policy Actors) og því samhengi sem stefnumótun og ákvarðanataka í opinberri stjórnsýslu gerist í (The Policy Context) og hvernig lýðræðislegri ábyrgð (Democratic accountability) er háttað og komið fyrir í stefnumótun og framkvæmd hin opinbera. 

Í námskeiðinu verður sérstaklega tekið fyrir ein þekktasta kenning á sviði stefnubreytinga innan stjórnmála- og stjórnsýslufræða samtímans, þ.e. kenning John W. Kingdons (1984;2011) um stefnuglugga (Policy windows) í bókinni hans, “Agendas, Alternatives and Public Policy”. Ennfremur verður farið í nokkra kafla úr bókinni „Agendas and Instability in American Politics“ eftir þá Frank Baumgartners og Bryan D. Jones (1993) til að skilja hvernig röskun á valda- og áhrifajafnvægi (Punctuated Equilibrium) í samfélaginu getur leitt til straumhvarfa í einstaka málum á tilteknum tíma. Þá verður farið yfir valda kafla í nýrri bók um tengslanet í opinberri stjórnsýslu “Governance Networks in Public Administration and Public Policy” og þar munu nemendur öðlast þekkingu og hæfni til að greina þátttakendur í tengslanetum á verkefnasviði hins opinbera, hvað einkennir þá og tengslin milli ólíkra þátttakenda, og áhrif mismunandi tengslaneta á lýðræðislega ábyrgð. Að lokum munu nemendur kynnast og læra að þekkja tvær megintegundir að rökum og röksemdarfærslu sem gjarnan er beitt í opinberri umræðu.

Athugið að fyrir utan eina staðlotu er námskeiðið eingöngu kennt í fjarnámi og fyrirlestrar sendir út á vefnum. 

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Óháð námsári | Sumar
Starfsnám í jafnréttisfræði (KYN006F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur geta fengið 5 vikna starfsþjálfun á vettvangi hagnýts jafnréttisstarfs. Nemendur vinna almenn störf og sérstök verkefni sem tengjast náminu. Kennarar í kynjafræði annast umsýslu með starfsþjálfuninni í samráði við skrifstofu Stjórnmálafræðideildar.

Tilhögun starfsþjálfunar:
Nemandinn fær umsjónarmann á þeim vinnustað eða starfseiningu þar sem hann fær starfsþjálfun. Umsjónarmaður skilgreinir í upphafi starfstíma hvaða verkefni nemandi á að sinna.

Verkefni nemanda geta verið tvenns konar:
Eitt eða fleiri veigamikil verkefni sem a.m.k. helmingur starfstímans er varið í. Hér getur verið um að ræða t.d. söfnun gagna, greiningu þeirra eða úrvinnsla, ritun og kynningu gagna eða verkefna, svo sem ritun skýrslna eða greinargerða, eða önnur verkefni á verkefnasviði viðkomandi vinnustaðar eða einingar. Nemandi mótar verkefnið í samræmi við óskir umsjónarmanns og vinnustaðarins. Verkefnið skal tengjast þeim námsþáttum sem fjallað er um í MA-námi í kynjafræði og reyna á þá þekkingu og færni sem nemandi hefur aflað sér í náminu. Umsjónarkennari námskeiðs skal samþykkja tillögu að verkefni.

Í loks starfstímans skal skila til umsjónarkennara námskeiðsins:
-Meginverkefni nemandans í skýrsluformi (sbr. hér að ofan).
-Staðfesting umsjónarmanns á ástundum nemanda og verkefnavinnu í lok starfstímans. Dagbók sem nemandi hefur haldið meðan á starfstíma stóð. Dagbókin skal fela í sér vikulegt yfirlit þar sem fram kemur hver verkefni vikunnar voru og hve miklum tíma var varið í einstök verkefni.

Einkunn er ekki gefin fyrir starfstímann. Námskeiðinu verður hins vegar ekki lokið fyrr en kennari og umsjónarmaður starfstíma telja að viðunandi árangur hafi náðst. Kennari skilar staðfestingu til deildarskrifstofu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár
  • Heilsársnámskeið
  • KYN107F
    Málstofa meistaranema í kynjafræði
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að skapa samfélag meistaranema í kynjafræði sem fá tækifæri til að ræða meistaraverkefni sín og meistaraverkefni samnemenda undir handleiðslu kennara.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Haust
  • KYN101F
    Almenn kynjafræði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um helstu viðfangsefni kynjafræða í ljósi margbreytileika nútímasamfélaga. Kynjafræðilegu sjónarhorni er beitt til að gefa yfirlit yfir stöðu og aðstæður ólíkra hópa í samfélaginu. Fjallað er um upphaf og þróun kvennabaráttu og kynjafræða. Kynnt verða helstu hugtök kynjafræða svo sem kyn, kyngervi, eðlishyggja og mótunarhyggja. Skoðað er hvernig kyn er ávallt samtvinnað öðrum samfélagslegum áhrifabreytum.

    Kennslufyrirkomulag: Námið byggir á vendikennslu sem þýðir að allir fyrirlestrar verða aðgengilegir á Canvas. Stað- og fjarnemar mæta vikulega í umræðutíma í háskólanum eða á Teams og netnemar taka vikulega þátt í umræðum á Canvas.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • STJ209F
    Aukaverkefni: Eigindleg aðferðafræði
    Bundið valnámskeið
    4
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa tekið námskeiðið STJ203F Eigindleg aðferðafræði. Nemendur vinna með eigindleg gögn sem þeir afla eða hafa áður aflað í námskeiðinu STJ203F Eigindleg aðferðafræði. Nemendur greina og túlka gögn sín samkvæmt þeim aðferðum sem fjallað hefur verið um í námskeiðinu. Nemendur læra að leggja mat á aðferðafræðilega framsetningu út frá fyrirliggjandi rannsóknum sem valdar eru í samráði við kennara, og vinna í framhaldinu drög að eigin aðferðafræðilegum kafla sem m.a. felst í að lýsa aðferðum og aðferðafræði í eigin rannsóknum. Loks fá nemendur þjálfun í að setja fram niðurstöður á þann hátt að það þjóni efninu.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • STJ203F
    Eigindleg aðferðafræði
    Bundið valnámskeið
    6
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Qualitative Methods is a graduate course that provides students with an introduction to some of the most commonly used qualitative methods and methodological tools in political science. The main focus in the course is on case studies (including process tracing) and various tools and techniques used within case studies, e.g., interviewing, focus groups, and qualitative content analysis. One part of the course is also dedicated to discourse analysis. The course begins with a very brief introduction to philosophy of science and outlines basic ontological, epistemological and methodological issues in the social sciences. Students will gain a deeper understanding of the philosophical underpinnings, assumptions and ambitions of the different methods, but they will also gain practical experience as to the design and execution of research within the different traditions.

    The course design aims to stimulate active student participation. Students are expected to have done the mandatory reading for each day and to be ready to participate in group work and discussions in class. The course features two distinct types of classes, specifically lecture & discussion classes and workshops. Nine of the thirteen classes are in the form of lecture & discussion classes and will be divided into two parts: a lecture by the lecturer (2 x approx. 40 minutes) and a student-led discussion session, consisting of 20 minutes of group work and 20 minutes of general discussion. The remaining four sessions are taught in the form of workshops. For these, the class will be divided into two groups (A and B) at the beginning of the semester. The workshop for group A will take place from 10:00 to 11:00, the workshop for group B from 11:15 to 12:15 on the day in question. In these workshops, students will work on practical examples connected to the respective topics of the day.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KYN211F
    Kenningar í kynjafræði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um heimspekilegan og kenningalegan grundvöll kynjafræða og gagnrýnið og þverfræðilegt inntak þeirra. Fjallað er um birtingarform og merkingu kyns (e. sex) og kyngervis (e. gender) í tungumáli og menningu, sögu, samfélagi og vísindum. Sjónarmið fræðanna eru kynnt og tengsl þeirra við aðferðafræði. Þá eru nemendur þjálfaðir í að beita á sjálfstæðan og gagnrýninn hátt fræðilegum hugtökum og aðferðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KYN202F
    Hagnýting jafnréttisfræða: Frá bróðurparti til systkinalags
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Jafnréttismál eru hluti af hinu opinberu regluverki á Íslandi og sífellt meiri kröfur eru gerðar á því sviði. Námskeiðið veitir hagnýtan undirbúning fyrir margvísleg störf í almenna og opinbera geiranum þar sem þekking og þjálfun í jafnréttismálum er nauðsynleg.

    Námskeiðið er hagnýtur undirbúningur fyrir störf í stjórnun, opinberri stjórnsýslu, fræðslu, kennslu, fjölmiðlun og önnur sérhæfð störf. Markmið námskeiðsins er að kynna grundvallaratriði jafnréttisfræða og þjálfa nemendur í hagnýtu jafnréttisstarfi. Fjallað er um sögu og merkingu jafnréttishugtaksins, með sérstakri áherslu á samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða (e. gender mainstreaming) og kynjaða fjárlagagerð (e. gender budgeting). Fjallað er um birtingarform kyns og mikilvægi kynjavitundar í samfélagslegri umræðu og stefnumótun. Þá eru kynntar hugmyndir um jafnrétti margbreytileikans og samtvinnun ólíkra mismunarbreyta (e. intersectionality). Í nútímasamfélögum eru gerðar síauknar kröfur um þekkingu á jafnréttismálum. Ísland er aðili að alþjóðasamþykktum um jafnrétti og í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla er kveðið á um kynjasamþættingu í stefnumótun og ákvörðunum á öllum sviðum samfélagsins. Slík samþætting krefst þekkingar á jafnréttismálum og gera jafnréttislög ráð fyrir jafnréttisfræðslu á öllum skólastigum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • STJ201F
    Hagnýt tölfræði
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið þessa námskeiðs er að nemendur öðlist skilning á eðli hinnar vísindalegu aðferðar og undirstöðuþekkingu í að greina tölfræðileg gögn sem notuð eru við margs konar opinbera ákvarðanatöku. Farið er yfir hugtök á borð við orsök, réttmæti og áreiðanleika. Fjallað er bæði um lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði, þar á meðal um breytur, gildi, miðlægni, staðalfrávik, úrtök, marktækni og tilgátuprófanir. Áhersla er lögð á að nemendur öðlist færni í að greina og meta megindlegar rannsóknir með tilliti til aðferðafræði og jafnframt að þeir geti sótt gögn og framkvæmt einfaldar tölfræðiaðgerðir í töflureikni. 

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KYN006F
    Starfsnám í jafnréttisfræði
    Valnámskeið

  • KYN215F
    Málstofa meistaranema í kynjafræði
    Skyldunámskeið
    2

  • STJ302F
    Rannsóknaráætlanir og rannsóknarsnið meistararitgerða
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um rannsóknir og rannsóknaraðferðir félagsvísinda og er ætlað nemendum í meistaranámi í Stjórnmálafræðideild.  Í lok námskeiðs skulu nemendur hafa öðlast undirstöðu til að vinna sjálfstætt rannsóknarverkefni svo sem MPA eða MA verkefni. Nemendur skulu þekkja grundvallarhugtök vísindaheimspekinnar og mismunandi rannsóknarsnið. Nemendur vinna rannsóknaráætlun og farið er yfir verklag við gerð fræðiritgerða og uppbyggingu þeirra. Námskeiðið er byggt upp á verkefnum.

    Æskilegt er að nemendur hafi valið viðfangsefni lokaritgerðar þegar námskeiðið hefst.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Óháð misseri
  • KYN441L, KYN441L, KYN441L
    MA-ritgerð í kynjafræði
    Skyldunámskeið
    0/0/0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0/0/0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lokaverkefni í MA-námi er sjálfstætt rannsóknarverkefni sem nemandi vinnur undir leiðsögn umsjónarkennara. Í verkefninu er tekist á við fræðilega krefjandi viðfangsefni og kenningum beitt á frumlegan hátt.

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • KYN441L, KYN441L, KYN441L
    MA-ritgerð í kynjafræði
    Skyldunámskeið
    0/0/0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0/0/0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lokaverkefni í MA-námi er sjálfstætt rannsóknarverkefni sem nemandi vinnur undir leiðsögn umsjónarkennara. Í verkefninu er tekist á við fræðilega krefjandi viðfangsefni og kenningum beitt á frumlegan hátt.

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • KYN441L, KYN441L, KYN441L
    MA-ritgerð í kynjafræði
    Skyldunámskeið
    0/0/0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0/0/0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lokaverkefni í MA-námi er sjálfstætt rannsóknarverkefni sem nemandi vinnur undir leiðsögn umsjónarkennara. Í verkefninu er tekist á við fræðilega krefjandi viðfangsefni og kenningum beitt á frumlegan hátt.

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • Haust
  • FMÞ001F
    Megindleg aðferðafræði
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginefni námskeiðsins eru megindlegar rannsóknaraðferðir og tölfræði í félags- og menntavísindum. Lögð er áhersla á virka þátttöku nemenda og umfjöllun um þátt rannsókna í samfélaginu. Fjallað er um helstu rannsóknarsnið, úrtaksfræði og gerð spurningalista. Í tölfræðihluta er kennt um lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði og fjallað ítarlega um dreifigreiningu og aðhvarfsgreiningu. Nemendur vinna hagnýt verkefni í tölfræðilegri úrvinnslu gagna með jamovi forritinu samhliða fyrirlestrum. Nemendur geta unnið með eigin gögn.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FMÞ103F
    Eigindlegar rannsóknaraðferðir I
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur kynnist fjölbreytileika og fræðilegum forsendum eigindlegrar rannsóknahefðar í félagsvísindum og öðlist reynslu í að beita eigindlegum aðferðum. Um hagnýtt námskeið er að ræða þar sem hver nemandi vinnur sjálfstætt rannsóknarverkefni sem felst í því að hanna og undirbúa rannsókn, afla gagna, greina þau og skrifa um helstu niðurstöður undir handleiðslu kennara. Í námskeiðinu verður farið ítarlega í undirbúning rannsókna, gerð rannsóknaráætlunar, gagnaöflun, greiningu og skrif.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KYN006F
    Starfsnám í jafnréttisfræði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur geta fengið 5 vikna starfsþjálfun á vettvangi hagnýts jafnréttisstarfs. Nemendur vinna almenn störf og sérstök verkefni sem tengjast náminu. Kennarar í kynjafræði annast umsýslu með starfsþjálfuninni í samráði við skrifstofu Stjórnmálafræðideildar.

    Tilhögun starfsþjálfunar:
    Nemandinn fær umsjónarmann á þeim vinnustað eða starfseiningu þar sem hann fær starfsþjálfun. Umsjónarmaður skilgreinir í upphafi starfstíma hvaða verkefni nemandi á að sinna.

    Verkefni nemanda geta verið tvenns konar:
    Eitt eða fleiri veigamikil verkefni sem a.m.k. helmingur starfstímans er varið í. Hér getur verið um að ræða t.d. söfnun gagna, greiningu þeirra eða úrvinnsla, ritun og kynningu gagna eða verkefna, svo sem ritun skýrslna eða greinargerða, eða önnur verkefni á verkefnasviði viðkomandi vinnustaðar eða einingar. Nemandi mótar verkefnið í samræmi við óskir umsjónarmanns og vinnustaðarins. Verkefnið skal tengjast þeim námsþáttum sem fjallað er um í MA-námi í kynjafræði og reyna á þá þekkingu og færni sem nemandi hefur aflað sér í náminu. Umsjónarkennari námskeiðs skal samþykkja tillögu að verkefni.

    Í loks starfstímans skal skila til umsjónarkennara námskeiðsins:
    -Meginverkefni nemandans í skýrsluformi (sbr. hér að ofan).
    -Staðfesting umsjónarmanns á ástundum nemanda og verkefnavinnu í lok starfstímans. Dagbók sem nemandi hefur haldið meðan á starfstíma stóð. Dagbókin skal fela í sér vikulegt yfirlit þar sem fram kemur hver verkefni vikunnar voru og hve miklum tíma var varið í einstök verkefni.

    Einkunn er ekki gefin fyrir starfstímann. Námskeiðinu verður hins vegar ekki lokið fyrr en kennari og umsjónarmaður starfstíma telja að viðunandi árangur hafi náðst. Kennari skilar staðfestingu til deildarskrifstofu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ063M
    Formæður og franskir barmar: Menningarmörk, klæðnaður og þjóðernismótun á 19. öld
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kennt í ágúst 2022

    Í námskeiðinu verður rannsakað hlutverk klæðnaðar í mótun menningarmarka og þjóðernisvitundar á Íslandi, c. 1790-1920. Sérstök áhersla verður lögð á þjóðlegan klæðnað kvenna, en almennt athugað hvernig klæðahættir beggja kynja áttust við tískustrauma og stefnur meginlandsins þegar skilgreina skyldi sýnileg einkenni íslensks þjóðernis. Kynntar verða kenningar um þróun menningarmarka, sem og aðferðafræði um nýtingu persónulegra frásagna og sögulegra heimilda í túlkun á menningu þjóðar. Rýnt verður í ferðabækur, greinaskrif og sendibréf til að kanna áhrif gagnvirkra samskipta milli menningarheilda á gerð og þróun menningarmarka og þjóðernisvitundar. Í skriflegu lokaprófi skulu kenningar og heimildir þessar nýttar til að skýra áhrif og notkun klæðnaðar í myndun og staðfestingu menningarmarka og ætlast til að nemendur geti rætt og metið áhrif einstakra persóna og hópa á mótun þjóðernisvitundar með klæðnaði

    Umsjónarmaður: ÓIafur Rastrick             
    Kennari:  Dr. Karl Aspelund, Associate Professor, University of Rhode Island.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FÉL501M
    Menntun, félagslegur hreyfanleiki og félagsleg lagskipting
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni? Í þessu námskeiði er skoðað hvernig félagslegur bakgrunnur einstaklings hefur áhrif á þá félagslegu stöðu sem sem viðkomandi nær að lokum í lífinu og hvernig ójöfnuður endurskapast frá einni kynslóð til annarrar. Námskeiðið fjallar um hvernig félagslegur hreyfanleiki hefur breyst í gegnum tíðina og milli landa og hvaða hlutverki menntun gegnir fyrir félagslegan hreyfanleika. Fjallað verður um helstu kenningar sem notaðar eru til að útskýra ójöfnuð í menntun og félagslegum hreyfanleika og (hugsanlegar) breytingar yfir tíma. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á félagslegan bakgrunn einstaklinga (stétt, menntun foreldra eða félags-efnahagslega stöðu foreldra) en misrétti á grundvelli kyns og þjóðernisuppruna  verður einnig skoðað á síðustu fundum. Í málstofunni munum við lesa blöndu af klassískum og nýlegum textum. Jafnframt verður sérstök áhersla lögð á að fjalla um lestur og niðurstöður frá öðrum löndum í samanburði við Ísland.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FFR302M
    Lífshlaupið, sjálf og samfélag
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Aðstæður og reynsla fatlaðs fólks er miðlæg í umfjöllun námskeiðsins, þar sem áhersla er á lífshlaupið og þau meginsvið sem snerta daglegt líf, svo sem fjölskyldulíf, menntun, atvinnu og búsetu. Rýnt verður í íslenskar og erlendar rannsóknir um líf og aðstæður fatlaðs fólk og þau fjölmörgu öfl sem móta sjálfsmynd og sjálfsskilning fatlaðra barna, ungmenna og fullorðins fólks. Fræðileg umfjöllun námskeiðsins er tengd við lagasetningar, stefnumótun, þjónustu, velferðarkerfi og félagslegar aðstæður fatlaðs fólks. 

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FFR102F
    Kenningar og sjónarhorn í fötlunarfræði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist djúpan skilning á þróun hugmynda og kenninga um fötlun og læri að greina áhrif þeirra á stefnumótun, þjónustu og daglegt líf fatlaðs fólks. Námskeiðið byggir á þverfræðilegum og gagnrýnum sjónarhornum og tengir fræðilega umfjöllun við réttindabaráttu og alþjóðlegar skuldbindingar, svo sem samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (CRPD). Fjallað verður um félagsleg og menningarleg sjónarhorn, helstu kenningar og nýjustu rannsóknir í fötlunarfræðum. Áhersla verður á virka þátttöku nemenda í umræðum og verkefnavinnu sem styrkir gagnrýna hugsun og hæfni til að beita fræðunum í rannsóknum og starfsháttum.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FFU102M
    Hið hæfa foreldri? Orðræður um foreldrahlutverkið
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verða orðræður um foreldrahlutverkið teknar til skoðunar. Fjallað verður um samfélagslegt samhengi þeirra krafna sem gerðar eru til foreldra, meðal annars um einstaklingsvæðingu foreldrahlutverksins og ákafa mæðrun. Til skoðunar verða þær kröfur sem eru gerðar til foreldra í dag svo sem skólaval, tómstundaval, samskipti heimilda og skóla/tómstunda, heimanám, matarræði, skjátímastjórnun, örvun, brjóstagjöf og kröfuna um að vera upplýst og meðvitað foreldri. Skoðað verður í gagnrýnu ljósi hvaðan þessar kröfur koma, hvaða áhrif þær hafa á foreldra og þær settar í samhengi við nýfrjálshyggju, markaðsvæðingu og orðræðu frá sérfræðingum. Ríkjandi menntastraumar gera ráð fyrir foreldrum sem eins konar „neytendum“ á „menntamarkaði“ og því er skólaval og –þátttaka á menntavettvangi vaxandi rannsóknarsvið í skóla- og uppeldisrannsóknum. Lesnar verða erlendar og íslenskar rannsóknir um foreldrahlutverkið og hvernig forréttindi og jaðarsetning mótar möguleika foreldra til að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru. Áhersla verður lögð á að skoða sérstaklega þá hópa fólks sem hafa fengið stöðu „hæfra“ og „vanhæfra“ foreldra og tengja við kenningar um kyn, stétt, uppruna, fötlun, kynhneigð og kynvitund. Nemendur fá innsýn inn í foreldrarannsóknir á sviði gagnrýnnar félagsfræði, félagssálfræði, menntunarfræði og kenninga um vald og jaðarsetningu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP723M
    Siðferðileg álitamál samtímans
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Áleitin siðferðileg úrlausnarefni ofarlega á baugi í nútímasamfélagi eru meginviðfangsefni þessa námskeiðs. Sjónum er beint að möguleikum siðfræðinnar á að takast á við klemmur sem upp koma, jafnt í lífi einstaklinga sem á samfélagsgrundvelli. Val á viðfangsefnum getur breyst milli ára en meðal mögulegra viðfangsefna námskeiðsins má nefna tjáningarfrelsi, stöðu flóttafólks, réttindi dýra, fátækt og ójöfnuð, kynjamisrétti, kynþáttamisrétti, umhverfismál og ýmis álitamál úr heilbrigðiskerfinu. Farið er í tengsl fræðilegrar og hagnýttrar siðfræði. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum með ríkri áherslu á virka þátttöku nemenda í umræðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP722M
    Siðfræði náttúrunnar
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um samband manns og náttúru frá heimspekilegu sjónarhorni. Fjallað er um helstu frumkvöðla náttúrusiðfræðinnar og áhrifamestu kenningar sem settar hafa verið fram. Gerð grein fyrir ólíkri náttúrusýn manna og mismunandi grunnafstöðum til náttúrunnar - þ.e. mannhverfri, visthverfri og lífhverfri afstöðu. Einnig fjallað um tengsl umhverfis- og þróunarmála og tengsl umhverfishyggju og lýðræðisþróunar. Rætt um álitaefni eins og: Getur siðfræðin nýst við lausn umhverfisvandamála?, Hvers konar verur hafa siðferðisstöðu?, Geta náttúrleg fyrirbæri búið yfir eigingildi?, Hafa dýr einhver réttindi?, Er einhver grundvallarmunur á (af)stöðu karla og kvenna gagnvart náttúrunni?, og Hvert er siðferðilegt inntak sjálfbærrar þróunar?

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LÖG104F
    Ofbeldisbrot frá sjónarhóli kvennaréttar
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í kjörgreininni verður fjallað um eftirfarandi fjóra brotaflokka: Nauðgun og önnur brot gegn kynfrelsi fólks. Kynferðisbrot gegn börnum. Vændi. Heimilisofbeldi. Gerð verður grein fyrir skilyrðum refsiábyrgðar fyrir brot, sem falla undir þessa brotaflokka og viðurlögum fyrir þau. Þá verður fjallað um nokkra þætti opinbers réttarfars sem sérstaklega tengjast meðferð þessara brota, t.d. reglur um sönnun og réttarstöðu brotaþola. Sérstök áhersla verður lögð á að nálgast viðfangsefnið út frá þeim sjónarmiðum sem fram hafa komið í kvennarannsóknum síðustu ára. Auk þess að fjalla um refsiréttarlega þætti efnisins verður vikið að refsipólitískum viðhorfum, þ.e. á hvern hátt þyrfti að breyta gildandi ákvæðum, svo að þau þjóni betur hagsmunum kvenna. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu á eðli og inntaki kynbundins ofbeldis og verði færir um að leysa úr lögfræðilegum álitaefnum á því sviði. Námskeiðið er að jafnaði kennt annað hvert ár. Minnt er á að framboð námskeiða er háð ýmsum fyrirvörum, þar á meðal að deild hefur heimild til að fella niður fámenn námskeið.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MAN095F
    Hnattvæðing
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verða skoðaðar nýlegar kenningar og rannsóknir sem tengjast hnattvæðingu og hnattrænum ferlum. Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum yfirsýn yfir mikilvæg þemu sem tengjast hnattvæðingarferlum.  Skoðaðar verða rannsóknir sem varpa ljósi á ólíkar hliðar hnattvæðingar og afleiðingar fyrir félagslegan, efnislegan og pólitískan veruleika. Í námskeiðinu er bæði fjallað á gagnrýnin hátt um fyrrnefnd hugtök en einnig lögð áhersla á að skoða rannsóknir á hvernig fólk er þátttakendur/þolendur/gerendur í hnattvæðingarferlum.

    Kennslan felst í fyrirlestrum og umræðum. 

    Námskeiðið er kennt á ensku, en hægt er að skila inn verkefnum á íslensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞRS102F
    Aðstæðubundið sjálfræði og kynverund
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um kenningar um aðstæðubundið sjálfræði og með hvaða hætti megi nota þær til að stuðla að auknu sjálfræði þeirra sem þurfa mikinn stuðning í daglegu lífi. Einnig er fjallað um hugtökin kyngervi og kynverund í samhengi við líf og reynslu fatlaðs fólks. Leitast verður við að fjalla um hugtakið sjálfræði út frá siðfræðilegum skilningi og í því skyni verður fjallað um kenningar femínista um hugtakið aðstæðubundið sjálfræði. Skoðaðar verða ýmsar hliðar sjálfræðis eins og til dæmis hvernig megi auka virðingu fyrir persónueinkennum, sjálfstæði, kynhlutverkum og kynverund. Sjónum er beint að því hvernig litið hefur verið á fatlað fólk sem eilíf börn, kynlaus eða með hömlulausa kynhvöt. Þessar mótsagnakenndu staðalmyndir hafa orðið til þess að fatlað fólk hefur takmarkað aðgengi að fullorðinshlutverkum. Í námskeiðinu er sjálfræðishugtakið tengt við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Ekki kennt á misserinu
    KME101F
    Kynjajafnrétti í skólastarfi
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður fjallað um kynjafræði og hvernig helstu hugtök þeirra, svo sem kyn, jafnrétti, kyngervi, kynhlutverk, samtvinnun, hinsegin fræði, kynímynd, staðalmyndir, kynbundið ofbeldi, kynfræðsla, karlmennska og kvenleiki, nýtast til að skilja og skipuleggja skólastarf. Þá verður kynnt löggjöf um kynjajafnrétti og kynjajafnréttisfræðslu og fjallað um tengsl kynjajafnréttis og annars jafnréttis, sbr. aðalnámskrá leik-, grunn- og framhaldsskóla. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur í námskeiðinu geti greint námsumhverfi, aðferðir og námsefni út frá kynjasjónarhorni. Einnig að þeir geti greint val leikja í leikskóla og í frímínútum og skólaíþróttum. Áherslan í námskeiðinu miðar að því að nemendur stefni að kennslu í yngri bekkjum grunnskóla eða leikskóla.

    Nemendur þurfa að mæta í lok nóvember til að kynna lokaverkefni sitt í námskeiðinu.

    Í námskeiðinu verður gengið verður út frá því grundvallarsjónarmiði sem kemur fram í aðalnámskrá leik-, grunn- og framhaldsskóla að menntun um jafnrétti kynjanna feli í sér gagnrýna skoðun á viðteknum hugmyndum í samfélaginu í því augnamiði að kennarar geti kennt börnum og ungmennum að greina þær aðstæður sem leiða til mismununar sumra og forréttinda annarra á forsendum kyns.

    Námsmat mun felast í lestrardagbókum, hugtakakönnun og hagnýtum verkefnum tengdum skólastarfi á viðkomandi skólastigi. Skyldumæting er í kynningu lokaverkefnis. 

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Vor
  • KYN006F
    Starfsnám í jafnréttisfræði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur geta fengið 5 vikna starfsþjálfun á vettvangi hagnýts jafnréttisstarfs. Nemendur vinna almenn störf og sérstök verkefni sem tengjast náminu. Kennarar í kynjafræði annast umsýslu með starfsþjálfuninni í samráði við skrifstofu Stjórnmálafræðideildar.

    Tilhögun starfsþjálfunar:
    Nemandinn fær umsjónarmann á þeim vinnustað eða starfseiningu þar sem hann fær starfsþjálfun. Umsjónarmaður skilgreinir í upphafi starfstíma hvaða verkefni nemandi á að sinna.

    Verkefni nemanda geta verið tvenns konar:
    Eitt eða fleiri veigamikil verkefni sem a.m.k. helmingur starfstímans er varið í. Hér getur verið um að ræða t.d. söfnun gagna, greiningu þeirra eða úrvinnsla, ritun og kynningu gagna eða verkefna, svo sem ritun skýrslna eða greinargerða, eða önnur verkefni á verkefnasviði viðkomandi vinnustaðar eða einingar. Nemandi mótar verkefnið í samræmi við óskir umsjónarmanns og vinnustaðarins. Verkefnið skal tengjast þeim námsþáttum sem fjallað er um í MA-námi í kynjafræði og reyna á þá þekkingu og færni sem nemandi hefur aflað sér í náminu. Umsjónarkennari námskeiðs skal samþykkja tillögu að verkefni.

    Í loks starfstímans skal skila til umsjónarkennara námskeiðsins:
    -Meginverkefni nemandans í skýrsluformi (sbr. hér að ofan).
    -Staðfesting umsjónarmanns á ástundum nemanda og verkefnavinnu í lok starfstímans. Dagbók sem nemandi hefur haldið meðan á starfstíma stóð. Dagbókin skal fela í sér vikulegt yfirlit þar sem fram kemur hver verkefni vikunnar voru og hve miklum tíma var varið í einstök verkefni.

    Einkunn er ekki gefin fyrir starfstímann. Námskeiðinu verður hins vegar ekki lokið fyrr en kennari og umsjónarmaður starfstíma telja að viðunandi árangur hafi náðst. Kennari skilar staðfestingu til deildarskrifstofu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KYN008F
    Lesnámskeið á sérsviði
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu rýnir nemandinn í afmarkað svið og gerir fræðilega samantekt á efni sem hann hefur áhuga á og tengist áherslu hans í náminu. Nemandinn setur fram námsmarkmið og tímaáætlun í samráði við leiðbeinanda, leitar eftir fræðilegum heimildum, um 400 blaðsíður, greinir þær og gagnrýnir, og nýtir upplýsingarnar til að setja fram þekkingu á nýjan hátt í lestardagbók sem skilað er fjórum sinnum yfir misserið. Umfang lestardagbókar er um 5.000 orð

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KYN212F
    Hinseginlíf og hinseginbarátta
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er inngangsnámskeið sem varpar ljósi á sögu hinseginfólks (sam-, tvíkynhneigðra, pansexual, transfólks og fleiri) á Íslandi, reynsluheim þeirra, baráttumál og menningu. Sagan er sett í alþjóðlegt samhengi og gerð er grein fyrir helstu vörðum í mannréttinda¬baráttunni, réttarstöðu og löggjöf. Fjallað er um mikilvæga þætti félagsmótunar¬innar, svo sem sköpun sjálfsmyndar og þróun sýnileika, samband við upprunafjölskyldu og leit að eigin fjölskyldugerð. Rætt er um muninn á samkynhneigðum fræðum og hinsegin fræðum, og kynntar eru kenningar um mótun kynferðis, kyngerva (sex og gender) og kyngervisusla (gender trouble). Vikið er að samræðu hinseginfólks við stofnanir samfélagsins og fjallað um líðan þeirra og lífsgæði. Fjallað er um þátt kynhneigðar í mótun menningar og ýmsar menningargreinar eru teknar sem dæmi um það hvernig veruleiki hinseginfólks birtist í listum og menningu. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    FÉL601M
    Kynferðisbrot, lög og réttlæti
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Umræðan um kynferðisbrot og hvernig eigi að bregðast við þeim hefur farið hátt síðustu misseri, þá sérstaklega í kjölfar #MeToo hreyfingarinnar. Rannsóknir sýna að einungis lítill hluti kynferðisbrotamála eru kærð til lögreglunnar og aðeins örlítill hluti þeirra lýkur með sakfellingu. Því má segja að málaflokkurinn einkennist af réttlætishalla. Í auknum mæli sjáum við einnig þolendur kynferðisbrota segja sögu sína á samfélagsmiðlum eða í fjölmiðlum og í sumum tilvikum eru meintir gerendur ásakaðir opinberlega sem getur vakið ólík viðbrögð og haft ýmiss konar afleiðingar.

    Í þessu námskeiði verður leitað skýringa á þessari samfélagsþróun út frá sjónarhóli félags- og afbrotafræði. Í námskeiðinu verður meðal annars leitað svara við eftirfarandi spurningum: Hverjir fremja kynferðisbrot og af hverju? Hvernig er reynsla karla sem verða fyrir kynferðisbrotum önnur en reynsla kvenna? Hver er munurinn á réttarstöðu sakborninga og réttarstöðu brotaþola? Af hverju er munur á ætlun og framkvæmd laganna? Hvernig hefur refsivörslukerfið þróast? Hver er munurinn á lagalegu réttlæti og félagslegu réttlæti? Hvernig eru óhefðbundin réttarkerfi betri eða verri en hefðbundin réttarkerfi? 

    Athugið að námskeiðin Afbrot á Íslandi og Kynferðisbrot, lög og réttlæti eru jafnan kennd annaðhvert ár, hvort á móti öðru.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FFR201M
    Fötlun og menning
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á stöðu og ímynd fatlaðs fólks í menningu og listum og geti greint birtingarmyndir fötlunar í sögulegu og samtímalegu samhengi. Fjallað verður um ímyndir og hlutverk fatlaðs fólks í dægurmenningu, fjölmiðlum, bókmenntum, listum og almennri orðræðu. Sérstök áhersla verður á (list)menningu fatlaðs fólks og hvernig fötlun er staðsett sem hluti af fjölbreytileika samfélaga. Rýnt verður í ytra og innra aðgengi að menningu og listum og áhrif þess á þátttöku fatlaðs fólks.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FMÞ001M
    Sjónrænar rannsóknaraðferðir
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist aðferðarfræðilega þekkingu, skilning og verklega færni til að greina myndir og önnur sjónræn rannsóknargögn (ljósmyndir, kvikmyndir, teikningar, auglýsingar, netmiðla, o.s.frv.). Farið verður í ýmsar aðferðir við greiningu á sjónrænu efni og hugað verður að sjónrænum gagnasöfnum og vinnu með þau. Nemendur fá þjálfun í því að kynna sér og leggja sjálfstætt mat á fyrirliggjandi rannsóknir. Námskeiðið byggist upp á hagnýtum verkefnum, þar sem nemendur undirbúa og hanna rannsóknaáætlanir, afla gagna og spreyta sig á greiningu þeirra. Námskeiðið er þverfaglegt og hentar nemendum á hug- og félagsvísindasviði, sem og öðrum sviðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FMÞ201F
    Eigindlegar rannsóknaraðferðir II
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er þá fjölbreytni sem er að finna í  eigindlegum rannsóknum. Rýnt er í fimm mismunandi rannsóknarhefðir, þ.e. tilviksathuganir, frásögurannsóknir, etnógrafíu, fyrirbærafræði og grundaða kenningu. Nemendur öðlast aukna færni í að afla rannsóknargagna á vettvangi og beita mismunandi greiningaraðferðum á eigindleg gögn. Þeir fá jafnframt þjálfun í framsetningu niðurstaðna í tengslum við fræðiskrif. Þá fá nemendur tækifæri til að ígrunda eigin rannsóknir og sjálfa sig sem eigindlega rannsakendur.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KVI801F
    Kynuslakvikmyndir og hinsegin fræði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    „The world of the heterosexual is a sick and boring life.“
    – Female Trouble (John Waters, 1974)

    Í námskeiðinu verða hinsegin birtingarmyndir skoðaðar í kvikmyndum frá upphafi 20. aldarinnar og til samtímans. Orðið hinsegin (e. queer) vísar til þess sem ekki rúmast innan flokks gagnkynhneigðar eða þess sem telst hefðbundið kyn eða kynhlutverk, en hvoru tveggja hefur lengst af verið mætt með ritskoðun í meginstraumskvikmyndum. Orðið hefur líka pólitískar skírskotanir og einkennist af því að merking þess sé háð samhengi á hverjum tíma og samfélagi, en kvikmyndahöfundar sem grafið hafa undan gagnkynhneigðu forræði (e. heteronormativity) á hverjum tíma verða í sérstökum brennidepli í námskeiðinu. Að auki munum við kafa í hinseginhugtakið og lesa jafnt klassíska texta hinsegin fræða sem og nýrri texta sem gefa hugmynd um þróun á fræðasviðinu

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MAN017F
    Fjölmenning og fólksflutningar
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Oft er talað um fólksflutninga og fjölmenningu sem eitt megin einkenni samfélaga samtímans. Í námskeiðinu eru kynntar helstu kenningar og stefnur sem fram hafa komið í tengslum við rannsóknir á fólksflutningum og fjölmenningu. Fjallað er á gagnrýninn hátt um margskonar kenningar sem tengjast þessum rannsóknarviðfangsefnum og gagnsemi þeirra skoðuð. Skoðuð eru hugtök eins og menning, samlögun, aðlögun og samþætting, en jafnframt gert grein fyrir hreyfanleika fortíðar og tengslum hans við fjölmenningu. Í námskeiðinu eru ólíkar nálganir og kenningarmótun fræðimanna fyrst og fremst dregnar fram og gerð grein fyrir helstu viðfangsefnum félagsvísindamanna á þessu sviði.

    Kennslan fer fram í formi fyrirlestra og umræðna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • UME009M
    Menning og vegferð ungmenna
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið tekur til félagsfræðilegra og þverfaglegra kenninga og rannsókna um ungmenni, menningu þeirra, vegferð og menntun. Ungmennahugtakið á við breytilegan aldurshóp eftir samfélögum og söguskeiðum en í okkar síðnútíma einkum aldurshópinn 16-25 ára. Líf og aðstæður ungmenna verða skoðuð sitt á hvað frá ólíkum sjónarhornum félagsfræði og ýmissa skyldra greina og áhersla lögð á þverfaglega, menntavísindalega samþættingu. Hugtakið vegferð ungmenna (e. transition to adulthood) var fram undir 1990 notað um leið ungmenna frá skólanámi til fastrar atvinnu, en hefur síðan verið víkkað út til fjölskyldumyndunar, samfélagsþátttöku og fleiri atriða.

    Í námskeiðinu verður sjónum beint að nýlegum rannsóknum á vegferð í mismunandi löndum og eftir félagslegum bakgrunni. Rýnt verður sérstaklega í rannsóknir sem gerðar hafa verið á menningu ungmenna á Íslandi og öðrum Norðurlöndum. Vegferðin er sérstaklega könnuð í gegnum þrenns konar kerfi, þ.e. a) reynslu og val þeirra innan framhalds- og háskólakerfisins, b) vegferð innan vinnumarkaðar og c) í kynverundarkerfinu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ609M
    Eldhúsnautnir, megrunarkúrar og matreiðsluþættir
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið verður lotukennt alla daga vikunnar 10.-14. maí 2021 (sem er vikan eftir að lokaprófum á vormisseri lýkur) í sex stundir hvern dag (samtals 30 stundir). Nemendur verða að lesa allt námsefnið áður en námskeiðið hefst. Þeir vinna verkefni í vikunni og skrifa lokaritgerð eftir að námskeiðinu lýkur.

    Í slow motion sleikir sjónvarpskokkurinn Nigella á sér fingurinn eftir að hafa dýft honum í rjómalagaða sveppasósu. Hún gefur frá sér nautnalegt hljóð, horfir í myndavélina með blik í auga og vill að við njótum með sér. Á annarri stöð öskrar sjónvarpskokkurinn Gordon Ramsey látlaust á aðra kokka sem berjast við að bjarga veitingastöðunum sínum. Margir þeirra fella tár undir reiðilestrinum.

    Nautn, reiði, stress, spenna, karlremba, kvenleiki, rjómi, megrunarkúrar, heilsusamlegt mataræði, matarblogg, baksturskeppnir og barátta fyrir bættum og réttlátum matarháttum endurspeglar vinsældir matar sem afþreyingar og tækis til að rækta manneskjur og samfélag. Hvað útskýrir þennan gífurlega áhuga, jafnvel þráhyggju, samtímans gagnvart matarháttum og næringu?

    Í námskeiðinu verður rýnt í nokkur vel valin hráefni sem umbreytt hefur verið í girnilegar menningarafurðir og sérstök áhersla lögð á hvernig hugmyndir um kyngervi og lífsstíl endurspeglast í matartengdum fyrirbærum á borð við matreiðsluþætti, matreiðslubækur, matarkeppnir og matarblogg.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • UME204M
    Trans börn og samfélag
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið:

    Markmið námskeiðsins er að nemar kynnist hugmyndum, kenningum og rannsóknum í fræðum sem koma inn á veruleika og upplifanir trans fólks (trans fræði). Einnig verða meginhugmyndir gagnrýnna bernskufræða kynntar. Áhersla verður lögð á að þátttakendur verði meðvitaðir um veruleika trans ungmenna og trans barna og samfélagslega orðræðu um málaflokkinn.

    Viðfangsefni:

    Unnið verður meðal annars með hugtökin kyngervi, kynjatvíhyggja, kynsegin, kynvitund, samtvinnun, trans* hugtakið, síshyggja, umhyggja, barnavernd og réttindi barna. Fjallað verður um megininntak transfræða/hinseginfræða og hvernig hægt er að nýta sér þá nálgun til varpa ljósi á uppeldi, menntun, samfélag, tómstunda- og félagsstarf og íþróttir. Nálgunin verður í anda gagnrýnna trans- og bernskufræða og félagslegrar mótunarhyggju. Enn fremur verður fjallað um skólakerfi og aðrar stofnanir, hérlendis og erlendis, og hvernig margs konar mismunun skapast og viðhelst og getur ýtt undir stofnanabundna transfóbíu og síshyggju. Lesnar verða nýjar íslenskar og erlendar rannsóknir í tengslum við efnið. Þá verður lögð áhersla á að þjálfa verðandi uppeldis- og menntunarfræðinga, þroskaþjálfa, foreldrafræðara, kennara, tómstunda- og félagsmálafræðinga, stjórnendur og annað fagfólk til að skapa hinsegin/trans vænt andrúmsloft í viðeigandi hópum sem unnið er með.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • UME004M
    Menntun og kyngervi
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið: Markmið námskeiðsins er að nemar kynnist hugmyndum, kenningum  og rannsóknum um uppeldi og menntun í ljósi kynjafræðilegra sjónarmiða og hugtaksins kyngervi (gender).

    Viðfangsefni. Unnið verður með hugtökin, kyngervi, kynjun, kynímyndir, staðalmyndir, kvenfrelsi, félagsleg mismunun, kynhlutverk, kynjablinda, tvíhyggja og valdatengsl. Fjallað verður um hvernig hugmyndir um menntun kynjanna hafa þróast sögulega, rýnt í orðræðuna um drengi og stúlkur og staðreyndir og gagnrýni á menntun og kynferði á öllum skólastigum. Sjónarmið félagslegar mótunarhyggju og eðlishyggju verða notuð til að útskýra mismunandi hugmyndir um kynjamismunun. Athyglinni verður beint sérstaklega að nýjum rannsóknum á sviðinu og fræðilegri nálgun mismunandi fræðimanna. Að síðustu verður athyglinni beint að íslenska skólakerfinu, stöðu drengja og stúlkna, leiðtogum og stjórnendum, námskrám og stöðu lögbundinnar jafnréttisfræðslu á öllum skólastigum. Lesnar verða nýjar íslenskar og erlendara rannsóknir á kyngervi og skólastarfi, t.d. rannsóknir á námsframmistöðu kynjanna, mismunandi hugmyndum stelpna og stráka um námsgreinar, námshæfni og námsval og hvernig skólar bregðast við kynjun skóla og samfélags.

    Vinnulag
    Námskeiðið er skipulagt sem staðnám, með möguleikum til fjarnáms ef þörf krefur. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, umræðum, málstofum, hópvinnu og verkefnavinnu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    VIÐ288F
    Fjölbreytileiki og inngilding (inclusion) í skipulagsheildum
    Valnámskeið
    7,5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið veitir nemendum tækifæri til að bera kennsl á þörfina á að þróa vinnuumhverfi sem byggir á jafnréttishugsun og inngildingu ólíkra hópa þar sem fjölbreytt framlag er velkomið. Nemendur læra að bera kennsl á félagslegt réttlæti/útilokun minnihlutahópa t.d. vegna kynþáttar, uppruna, aldurs, kyns, trúarbragða, kynhneigðar, fötlunar/færni, stéttar og annara fjölbreytileikaþátta í skipulagsheildum og nýta þekkinguna til að greina og beita aðferðum stjórnunar fjölbreytileika og  inngildingar í skipulagsheildum. Nemendur kynnast nýjum rannsóknum á sviðinu til að efla gagnrýna hugsun um viðfangsefni eins og sjálfsmynd (identity), (ó)meðvitaða hlutdrægni, samvinnu í fjölbreyttum teymum, (ó)jöfn tækifæri í skipulagsheildum og tækifærum sem felast í fjölbreytileikanum. 

    Námskeiðið er kennt á ensku

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu IV
  • Ekki kennt á misserinu
    OSS225F
    Hegðunarvísindi í opinberri stefnumótun
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði læra nemendur um valin hugtök og rannsóknir úr félagssálfræði, atferlishagfræði og ákvarðanatökufræðum sem nýta má við gerð, greiningu og framkvæmd stefnumótunar. Bornar verða saman kenningar skynsemishyggju og fjötraðrar skynsemishyggju. Nemendur munu öðlast skining á því hvernig fólk tekur ákvarðanir og leggur mat á áhættu, áhrifum hvata á ákvarðanir og hvernig hafa má áhrif á viðhorf og hegðun. Fjallað verður um millihópasamskipti og samninga. Loks verða tengsl stefnumótunar og hagsældar tekin til umræðu.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ021M
    Kyngervi, sögur og siðir
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    The field of Folklore, emerging out of the phenomena collectively referred to as  Modernity, has a complicated and problematic relationship with gender, both in the material that circulates and the subsequent academic treatment of that material. This seminar combines theoretical perspectives from Gender Studies and Folkloristics to better understand the interconnectedness of popular cultural forms, analyses, and the operations of power, specifically gender relations. Beginning with a feminist critique of Folkloristics from within (a historical reference point), we will examine more recent work on the relationship between gender and genre, between the empowering acts of ordinary rituals (so-called women‘s genres), and how the old, debunked Nature/Culture divide, in which women‘s genres were debased and denigrated, may, looked at from a different perspective, suggest alternate approaches to some contemporary global issues.

    Teacher of the course: JoAnn Conrad

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞRS003M, SFG004M
    Innbyrðing kúgunar
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kúgun minnihlutahópa er málefni sem félagsvísindi hafa skoðað töluvert síðustu áratugina en styttra er síðan farið var að rannsaka sálfræðileg áhrif kúgunar sem birtist oft í innbyrðingu kúgunarinnar. Í þessu námskeiði verða nemendum kynntar gagnrýnar kenningar sprottnar upp úr síð-nýlendu sálfræði. Farið verður bæði í það hvernig kúgun er innbyrt en einnig verður varpað ljósi á innbyrðingu kúgunar ákveðinna hópa, t.d. fatlaðs fólks, innflytjenda og hinsegin fólks. Þekking samfélagsins á sálrænum áhrifum innbyrðingar þessara hópa er mikilvæg og þegar fagfólk starfar á vettvangi er þýðingarmikið bregðast rétt við birtingarmyndum innbyrðingar og reyna að draga úr neikvæðum áhrifum hennar eins og hægt er. 

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞRS003M, SFG004M
    Hinsegin menntunarfræði
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið: Markmið námskeiðsins er að nemar kynnist hugmyndum, kenningum  og rannsóknum í hinsegin menntunarfræðum. Enn fremur að þeir fái góða innsýn inn í fræðaheim hinsegin fræða. Áhersla verður lögð að að nemar tileinki sér gagnrýna sýn á uppeldi og menntun og að þeir verði meðvitaður um veruleika hinsegin ungmenna.

    Viðfangsefni: Unnið verður meðal annars með hugtökin kyngervi, kynhneigð, kynvitund, samtvinnun, karlmennska, kvenleiki, kynhlutverk, kynjatvíhyggja, gagnkynhneigðarhyggja og síshyggja. Fjallað verður um megininntak hinsegin menntunarfræða og hvernig nálgun þeirra getur varpað ljósi á menntun, uppeldi, tómstunda- og félagsstarf og samfélag. Nálgunin verður í anda hinsegin fræða og félagslegrar mótunarhyggju sem verða notuð til að útskýra ólíkar hugmyndir um kynhneigð, kynvitund og hinsegin kynverund. Enn fremur verður fjallað um skólakerfi, hérlendis og erlendis, og hvernig það viðheldur margs konar mismunun og ýtir jafnvel undir stofnanabundna gagnkynhneigðarhyggju og síshyggju. Lesnar verða nýjar íslenskar og erlendar rannsóknir í tengslum við kynhneigð, kynvitund, skólakerfi, kennslu og námsbækur. Þá verður lögð áhersla á að þjálfa verðandi fagfólk sem starfar með börnum og ungmennum í að búa til hinseginvænt andrúmsloft í barna- og ungmennahópi, að flétta hinsegin veruleika inn í starf sitt og bregðast við neikvæðum viðhorfum í garð hisneginleika.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • Ekki kennt á misserinu
    OSS220F
    Stefnubreytingar, nýsköpun og tengslanet í opinberri stjórnsýslu: Helstu kenningar

  • Sumar

Annað ár

Óháð námsári

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Dæmi um starfsvettvang:

  • kennslu og fræðslustörf
  • fjölmiðla- og upplýsingastörf
  • verkefna- og starfsmannastjórnun
  • hagsmunasamtök og frjáls félagasamtök
  • jafnréttisráðgjöf

Listinn er ekki tæmandi.

Kynjafræðin hefur mikil og sterk tengsl við samfélagið. Núverandi og fyrrverandi nemendur eru afar virkir í samfélagsumræðunni, frjálsum félagasamstökum og öðrum lýðræðishræringum samfélagsins.

Við Háskóla Íslands er starfrækt Femínistafélag Háskóla Íslands og Q félag hinsegin stúdenta.

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Kolbrúnu Hrund Sigurgeisrsdóttur
Það er óhætt að segja að kynjafræðinámið stóðst allar mínar væntingar og meira til. Námið er bæði fjölbreytt og skemmtilegt og það krefur nemendur um að líta inn á við og rýna tilveru sína á nýjan hátt. Helsti kostur kynjafræðinámsins er samþætting á fræðilegri þekkingu og hagnýtingu. Hver og einn getur aðlagað innihald námsins að sínum vettvangi, því sjónarhorn kynjafræðinnar má máta við öll viðfangsefni daglegs lífs. Í starfi mínu sem verkefnastýra Jafnréttisskóla Reykjavíkur nýti ég verkfærin sem ég öðlaðist í náminu á hverjum einasta degi í þágu barna og unglinga borgarinnar.
Ljósmynd af Þorsteini Einarssyni
Meistaranám í kynjafræði var eins og ferðalag á kunnuga staði en samt var eins og ég hefði aldrei séð þá áður. Sjónarhornið, baksagan og samhengið sem kennarar veittu í gegnum námið gerðu ferðalagið krefjandi en á sama tíma algjörlega ógleymanlegt. Þetta kemur til af því að námið er lifandi, krítískt, hagnýtt og stundum óþægilega nærgöngult, þar sem ég þurfti að takast á við mínar hugmyndir, fordóma og fékk verkfæri til að beita á samfélagið. Ég öðlaðist færni í að greina kynjun, valdatengsl, orðræðu og dýptina í mynstrum og þemum sem dulin eru í samfélagsgerðinni og nærir víðtækt misrétti. Nám í kynjafræði hentar öllum sem brenna fyrir réttlæti og jafnrétti og vilja hafa áhrif á samfélagið sitt.
Ljósmynd af Ragnheiði Davíðsdóttur
Ég ákvað að fara í meistaranám í kynjafræði af því að ég ólst upp með kynjagleraugun og þetta sjónarhorn hefur alltaf verið hluti af minni sýn bæði í námi og starfi. Í náminu hefur verið ótrúlega gefandi að kynnast nýjum sjónarhornum og öðlast fræðilega þekkingu um margt það sem ég hef brotið heilann um nær allt mitt líf. Ég finn hvernig ég hef vaxið í kynjafræðinni. Þar hefur áhersla verið lögð á að hugsa út fyrir boxið, kynnast nýjum sjónarhornum, rannsóknarhugmyndum og samfélagsstraumum. Ég hef kynnst frábæru samstarfsfólki bæði hér á landi og erlendis. Kennararnir eru fyrsta flokks, knúnir áfram af áhuga, sérþekkingu og metnaði um kennsluna. Deildin er náin, sveigjanleg og heldur vel utan um hvern nemanda og ólíkar námsþarfir. Þetta er gefandi, hagnýtt og skemmtilegt nám. Umfram allt skerpir námið gagnrýna hugsun og fyllir nemendur eldmóði til að bæta og breyta samfélaginu sem við tilheyrum.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Félagsvísindasvið
Virka daga 09:00 - 15:00
Nemenda og kennsluþjónusta

Nemenda- og kennsluþjónusta FVS

Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu. 

Fylgdu okkur á Youtube og Facebook

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil