Herferð 2025-2026
Fylgigögn og skilafrestur

Umsókn um nám telst gild þegar fylgigögn hafa borist. Skilafrestur fylgigagna kemur fram í tölvupósti til umsækjenda sem berst í kjölfar umsóknar.

Umsækjendur sem hafa lokið prófgráðu við HÍ eða a.m.k. 60 ECTS einingum við HÍ eftir 1981 þurfa hvorki að skila inn staðfestu afriti á pappír af prófskírteini né af stúdentsprófsskírteini.

Óstaðfest eða skönnuð skírteini eru ekki gild fylgigögn.

Skil á fylgigögnum

Staðfestum fylgigögnum (prófskírteinum eða námsferilsyfirlitum) þarf að skila með einum af eftirtöldum möguleikum:

Í umsókn þarf umsækjandi að heimila Nemendaskrá að sækja stúdentsprófsskírteinið í Innu.

Aðeins eru tekin gild PDF-skjöl sem eru með rafrænni undirskrift og eru listuð inn á viðeigandi lista yfir trausta Adobe aðila.

Skjalið má setja beint inn í umsókn eða senda það með tölvupósti á hi@hi.is.

Með undirskrift og stimpli í lit frá viðeigandi stofnun, eða öðrum til þess bærum aðila, t.d. sýslumanni. Gögnunum þarf að skila inn á Þjónustuborð Háskólatorgs eða senda þau með pósti. Viðtakandi er:

Háskóli Íslands
Nemendaskrá Háskólatorgi
Sæmundargötu 4
102 Reykjavík
Ísland

Staðfestingargátt inn á vefsíðu sem stjórnað er af ríkinu/stofnun eða fræðsluaðila.

Umsækjendur þurfa að gefa upplýsingar um hvar grunninn eða gáttina er að finna og láta allar upplýsingar (svo sem tilvísunarnúmer) sem þarf að gefa upp sem hluta af sannprófunarferlinu. Nemendur bera ábyrgð á öllum gjöldum sem tengjast þessu ferli.

Þjónustugátt þriðja aðila eins og til dæmis:

  • Parchment
  • GradIntelligence
  • National Student Clearing House
  • Digitary
  • My equals
  • Open Certs

Aðgangur að gáttinni sendist á hi@hi.is.

Umsækjendur bera ábyrgð á öllum gjöldum sem tengjast þessu ferli. Ganga þarf úr skugga um að öll tilvísunarnúmer sem þjónustan gæti krafist til staðfestingar fylgi með í tölvupóstinum.

Nánar um skil á fylgigögnum mismunandi námsstiga
Grunnnám

Skila þarf staðfestu afriti af öllu stúdentsprófsskírteininu eins fljótt og hægt er og ekki seinna en innan tilskilins skilafrests hverju sinni:

  • 20. maí fyrir inntökupróf
  • 12. júní fyrir nám sem hefst að hausti
  • 8. desember fyrir nám sem hefst að vori

Umsækjendur geta gefið HÍ heimild til að sækja skírteini í gegnum Innu, þar sem það er hægt. Ef sá möguleiki kemur ekki upp í umsókn þarf að skila staðfestu afriti af stúdentsprófi á pappír, undirrituðu og stimpluðu í lit af viðkomandi skóla.

Hægt er að koma með frumrit og biðja starfsfólk um að ljósrita það og staðfesta gegn 350 kr. gjaldi.

Umsækjendur sem í umsóknarferlinu veita Háskóla Íslands leyfi til að sækja rafrænt stúdentsprófsskírteini úr Innu þurfa ekki að skila staðfestu afriti.

Ekki er hægt að veita heimild fyrir rafrænum skilum í Innu eftir að umsókn hefur verið send.

Eingöngu mögulegt þegar sótt er um nám sem hefst á haustmisseri.

Umsókn um undanþágu þarf að fylgja staðfest afrit á pappírsformi af námsferli umsækjanda í framhaldsskóla, ásamt starfsvottorði frá vinnuveitanda.

Framhaldsnám

Umsækjendur sem lokið hafa grunnnámi frá öðrum háskólum en HÍ þurfa að skila frumriti eða staðfestu ljósriti/afriti af prófskírteini og námsferilsyfirliti (með undirritun og lituðum stimpli frá skóla) á pappírsformi til Nemendaskrár HÍ.

Síðustu skiladagar fylgigagna á pappírsformi eru:

  • 22. apríl fyrir nám sem hefst að hausti
  • 22. október fyrir nám sem hefst að vori

Kröfur deilda HÍ um fylgiskjöl með umsóknum eru mismunandi. Umsækjendur þurfa að afla sér upplýsinga á síðu viðkomandi námsleiðar, vefsíðu viðeigandi deildar, í kennsluskrá HÍ eða hafa samband við viðeigandi deildarskrifstofu.

Í rafrænu umsókninni er mögulegt að umsækjandi þurfi að setja inn tiltekin fylgiskjöl á pdf formi. Þetta er nokkuð misjafnt eftir deildum og námsleiðum, en ráðlegt er að hafa slík skjöl tilbúin áður en hafist er handa við að fylla út umsóknina.

Ef einhver af neðantöldum reitum birtist ekki í rafrænni umsókn óskar viðkomandi deild ekki eftir þeim upplýsingum. Deildin gæti þó viljað fá upplýsingarnar með öðrum hætti.

Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá viðeigandi deildarskrifstofu.

Upplýsingar og rafræn fylgigögn sem algengt er að óskað sé eftir í umsókn

Nöfn og netföng tveggja meðmælenda. Þessar upplýsingar þarf að slá inn í þar til gerða reiti í umsókninni. Heppilegt er að meðmælendur séu núverandi eða fyrrverandi kennarar í háskólanámi eða yfirmenn á vinnustað. Meðmælendur ættu ekki að vera fjölskyldumeðlimir eða nánir vinir umsækjanda.

Ef óskað er eftir meðmælabréfum og/eða formum þurfa umsækjendur að hafa samband við meðmælendur og biðja um að þau verði send beint frá meðmælenda til Nemendaskrár HÍ með bréfpósti eða tölvupósti á umsokn@hi.is.

Skjal sem inniheldur helstu upplýsingar um náms- og starfsferil umsækjanda ásamt frekari upplýsingum sem gætu mögulega stutt umsóknina.

Skjal sem inniheldur upplýsingar um markmið og áhugasvið umsækjanda og væntingar hans til námsins. Þar þarf m.a. að koma fram hvers vegna umsækjandi hefur valið viðkomandi námsleið og hvernig hann hyggst nýta sér námið. Lengd greinargerðar er mismunandi eftir námsleiðum, en oftast er miðað við 1-2 blaðsíður.

Skjal sem inniheldur prófskírteini og námsferil sem meta á til inngöngu. Umsækjendur sem eru að ljúka grunnnámi þurfa að setja inn skjal sem inniheldur núverandi námsferil og staðfestingu á áætlaðri brautskráningu. Athugið að eftir sem áður þarf að senda inn staðfest afrit á pappír.

Nemendur sem eru að ljúka eða hafa lokið gráðu við HÍ eftir 1981 þurfa ekki að setja neitt inn í þennan reit.

Skjal sem inniheldur skírteini og/eða námsferla sem komust ekki í fyrri reitinn.

Athugið að eftir sem áður þarf að senda inn staðfest afrit á pappír.

Skjal sem inniheldur drög að rannsóknaráætlun. Athuga þarf hjá viðkomandi deild á hvaða formi áætlunin á að vera. Einhverjar deildir eru með sérstök eyðublöð sem þarf að fylla út og ættu þau að vera aðgengileg á heimasíðu deildar í hverju tilviki.

Önnur rafræn fylgiskjöl sem stutt gætu umsóknina og falla ekki undir ofantalið. Vinsamlegast hengið aðeins pdf skjöl við umsóknina.

Doktorsnám

Umsókn þín telst gild þegar fylgigögn hafa borist Háskóla Íslands. Þau þurfa að berast eigi síðar en tveimur vikum eftir umsóknarfrest.

Þú þarft að fylgjast með framvindu umsóknar undir flipanum „Yfirlit umsókna“ í umsóknagáttinni þinni. Þú ferð inn í gáttina með því að nota rafræn skilríki eða netfang og lykilorð sem þú bjóst til þegar þú skráðir þig inn í umsóknagátt Háskóla Íslands.

Umsækjendur með erlent ríkisfang (utan Norðurlanda) þurfa að skila vottorði um lögheimilissögu á Íslandi, form nr. C-122 frá Þjóðskrá Íslands.

Fylgigögn í doktorsnámi eru þau sömu og fylgigögn í framhaldsnámi.

Athugið: Umsækjendur um doktorsnám eiga að skila öllum fylgigögnum til Nemendaskrár, innan þeirra tímamarka sem viðkomandi deild setur.

Nánari upplýsingar
Hafðu samband
Nemendaskrá
Virka daga 10:00 - 14:00
Rafrænar umsóknir

Fyrir rafrænar umsóknir og stöðu umsóknar:
hi@hi.is

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil