Kona í svörtum kjól stendur uppi á sviði og talar táknmál.
Tungumál kennslu
Íslenska og íslenskt táknmál. Flestar kennslubækur eru á ensku eða öðrum erlendum málum (einkum Norðurlandamálum).
Lengd náms
Þrjú ár - (aukagrein meðtalin) 180 einingar.
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Langar þig að læra táknmál?
  • Viltu kynnast nýjum menningarheimi og samskiptaleiðum?
  • Hefur þú áhuga á málvísindum eða samanburði ólíkra tungumála?
  • Hefur þú gaman af mannlegum samskiptum?
  • Viltu fjölbreytt úrval námskeiða sem eru á þínu áhugasviði?
  • Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?

Nemendur taka 120 eininga táknmálsfræði sem aðalgrein með 60 eininga aukagrein af annarri námsleið.

  • Skylt er að taka öll námskeið á fyrsta námsári; Færninámskeið I og II, Inngang að táknmálsfræði, Málfræði táknmáls I, Aðferðir og vinnubrögð og Menningarheima.
  • Á öðru námsári eru skyldunámskeið 40 einingar; Færninámskeið III, Málfræði táknmáls II, Döff gróði, menning og vald og Færninámskeið IV, auk B.A.-ritgerðar. Til viðbótar velja nemendur 10 einingar úr þeim úr námskeiðum sem merkt eru í kennsluskrá sem valnámskeið.
  • Athugið að námskeið á öðru námsári eru ekki kennd árlega.

Annað

Einnig er boðið upp á:

Sjá meira um aðal- og aukgreinar undir Hjálplegt efni neðst á síðunni,

Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf. Nánari upplýsingar er að finna í 17. grein reglna um inntökuskilyrði í grunnnám nr. 331-2022.

Ef nemandi sem lokið hefur prófi frá erlendum skóla, hyggst stunda grunnnám sem kennt er á íslensku, skal hann jafnframt hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku skv. 1. gr. reglnanna.

Ljúka þarf 120 einingum og teljast 60 einingar á námsári vera fullt nám. Námskeið fyrsta árs eru skyldunámskeið. Á öðru námsári eru skyldunámskeið 40 einingar;  Færninámskeið III, Málfræði táknmáls II, Döff gróði, menning og vald og Færninámskeið IV, auk B.A.-ritgerðar.  Til viðbótar velja nemendur 10 einingar úr þeim úr námskeiðum sem merkt eru í kennsluskrá sem valnámskeið. Hafi nemendur hug á að taka valnámskeið utan þeirra sem getið er í kennsluskrá er þeim bent á að hafa samband við greinarformann. Námskeið á öðru námsári eru ekki kennd árlega. 

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og misserum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Aðferðir og vinnubrögð (ÍSL109G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er sameiginlegt nemendum í íslensku, almennum málvísindum og táknmálsfræði. Það skiptist í tvennt. Í öðrum helmingi námskeiðsins (kennt á fimmtudögum) er fjallað um gagnrýna hugsun og ritgerðasmíð frá ýmsum hliðum: uppbyggingu ritgerða, efnisafmörkun, mál og stíl, heimildanotkun og heimildamat, tilvísanir, heimildaskrá, frágang o.fl.
Í hinum helmingi námskeiðsins (kennt á þriðjudögum) munu fræðimenn á áðurnefndum sviðum kynna viðfangsefni sín og gestir utan háskólans kynna starfsvettvang íslenskufræðinga, málvísindamanna og táknmálsfræðinga.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Inngangur að táknmálsfræði (TÁK108G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður fjallað um táknmálssamfélög, sér í lagi samfélag íslenska táknmálsins (ÍTM). Fjallað verður um döff menningu og sögu ÍTM, um málhugmyndafræði og um stöðu og lífvænleika íslenska táknmálsins. Beitt verður nálgunum döff fræða, mannfræði og félagslegra málvísinda.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Haust
Færninámskeið I (TÁK102G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið og viðfangsefni námskeiðsins:

Nemendum eru kynnt grundvallaratriði íslenska táknmálsins. Megináhersla verður lögð á mál sem tengist daglegu lífi og þær meginreglur sem gilda um táknmálssamtalið. Áhersla verður lögð á bæði tjáningu og skilning táknmáls. Í námskeiðinu er fjallað um skyldubundin látbrigði með táknum og próformasögnum og mikilvægi þeirra í táknmáli. Nemendur nota myndbandsupptökur til þess að ná auknu valdi á málinu. Námskeiðið er byggt upp á fyrirlestrum og æfingum í tímum sem nemendur taka virkan þátt í.

Námsmat: Verkefni, aðallega upptökuverkefni, sem dreifast yfir misserið. Standast þarf alla þætti námsmats til að ljúka námskeiði sem og uppfylla mætingaskyldu.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Málfræði táknmáls I (TÁK207G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur átti sig á grunneiningum og uppbyggingu táknmála almennt, verði færir um að útskýra þá þætti og bera saman við raddmál. Gefið verður yfirlit yfir meginþætti málfræði íslenska táknmálsins og þá málfræðiþætti sem táknmál eiga sameiginlega.

Kennslan byggist að miklu leyti á gagnvirkum fyrirlestrum og mikilvægt er að nemendur séu virkir í kennslustundum. Lesefni er mestallt á ensku en dæmi úr íslenska táknmálinu eru rædd í fyrirlestrum. Æskilegt er að nemendur hafi einhverja kunnáttu í táknmáli (íslensku eða erlendu). Námsmat byggist á heimaverkefnum, ritgerð og skriflegu lokaprófi (rafrænu) sem haldið verður í lok misseris. Listi yfir lesefni til prófs verður birtur í byrjun apríl. Viðmið um vinnuálag í háskólum gerir ráð fyrir að í 10 eininga námskeiði sé vinnuframlag nemanda 250-300 stundir á misseri. Ef gert er ráð fyrir 15 vikna misseri (kennsla 13 vikur og próftími/ritgerðarvinna 2 vikur) ætti nemandi að vinna að meðaltali 16-20 tíma á viku, kennslustundir þar meðtaldar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Færninámskeið II (TÁK201G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið: Að nemendur geti tjáð sig á einföldu máli og tekið þátt í samræðum á táknmáli. Áhersla verður lögð á bæði tjáningu og skilning táknmáls.

Viðfangsefni: Framhald af Færninámskeiði I sem er nauðsynlegur undanfari þessa námskeiðs. Mun þyngra táknmál og þjálfun í fjölbreytilegri notkun þess. Áfram verður lögð áhersla á málfræðileg látbrigði mikilvægi þeirra í íslenska táknmálinu.

Vinnulag: Námskeiðið byggir á fyrirlestrum og leiðsögn kennara, yfirferð á táknmálstextum og hagnýtum hóp- og einstaklingsæfingum í tímum sem nemendur taka virkan þátt í. Mætingarskylda er 80%.

Námsmat: Upptökuverkefni sem dreifast yfir misserið. Standast þarf alla þætti námsmats til að ljúka námskeiði og uppfylla 80 mætingarskyldu.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Menningarheimar (TÁK204G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þverfaglegt inngangsnámskeið þar sem efnt er til samræðu milli fræðasviða námsbrautarinnar, þ.e. bókmenntafræði, kvikmyndafræði, kynjafræði, listfræði, málvísinda, menningarfræði, táknmálsfræði og þýðingafræði. Birtu verður brugðið á alþjóðlegar hræringar í hugvísindum á liðnum áratugum en jafnframt rýnt í tengsl fræða og heimsmyndar. Fjallað verður um táknfræði tungumálsins og m.a. spurt hvort það geti talist grundvöllur annarra táknkerfa. Spurst verður fyrir um tengsl og "sambúð" mismunandi tungumála og málheima. Er hægt að þýða á milli allra mál- og menningarheima? Hvað geta aðstæður heyrnarlausra sagt okkur um tengsl málheima? Hvað er fjölmenning? Hvernig tengjast talað mál, lesmál og sjónmenning í samfélaginu? Í hverju felst menningarlæsi? Hugað verður að bókmenntum, myndlist, kvikmyndum og öðru myndefni í þjóðlegu og alþjóðlegu samhengi og kannað hvernig þessi táknkerfi vinna með mörkin milli kynja, kynþátta, stétta, menningarhópa, þjóða og heimshluta. Lesið verður ýmiskonar fræðilegt efni og skáldverk, könnuð myndverk og kvikmyndir, en viðfangsefnin verða einnig sótt í fjölmiðla og það sem er á seyði í samtímanum. Námsmat felst í fjórum verkefnum á misserinu og skriflegu lokaprófi.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
BA-ritgerð í táknmálsfræði (TÁK241L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

BA-ritgerð er einkum ætlað að þjálfa nemendur í að rannsaka valið viðfangsefni innan sinnar fræðigreinar og gera grein fyrir rannsókn sinni í vönduðum fræðilegum texta. Nemendur skrifa BA-ritgerð um rannsóknarefni að eigin vali í samráði við leiðbeinanda sinn. Umsjónarmaður aðstoðar nemendur við val á leiðbeinanda ef þörf krefur. Nemendur eru hvattir til að funda með leiðbeinanda og leggja fyrstu drög að rannsóknarverkefni áður en BA-ritgerðarmisserið hefst. Lokaritgerð er ætlað að sýna hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt og fræðilega, setja fram efni rökrétt og skipulega, vinna úr heimildum, svo og til að nota fræðileg hjálpargögn (t.d. handbækur, orðabækur eða sambærilegar vefsíður).

Nemendur eru hvattir til að notfæra sér þjónustu Ritvers Háskóla Íslands [hlekkur: https://ritver.hi.is/is] sem býður aðstoð við fræðileg skrif. Í Ritveri geta nemendur pantað viðtalsfund og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefni sem tengjast fræðilegum ritgerðum, skýrslum og öðrum skriflegum verkefnum.

Nemendum er bent á að kynna sér viðmið HÍ um notkun gervigreindar https://gervigreind.hi.is/

Sjá nánar um reglur um BA-ritgerðir á Hugvísindasviði: https://ugla.hi.is/kerfi/view/page.php?sid=3544

Kennslutungumál: Íslenska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Annað ár | Haust
Færninámskeið III (TÁK302G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið: Að nemendur skilji samræður á íslensku táknmáli og geti tjáð sig á því. Nemendur þjálfi notkun  látbrigða og próformasagna og noti á réttan hátt.

Viðfangsefni: Framhald af Færninámskeiði II sem er nauðsynlegur undanfari.  Áfram er lögð áhersla á tjáningu táknmálstexta en við bætist aukin áhersla á skilning og aukinn orðaforða. Nemendur fá mikla þjálfun í að lesa af táknmáli og vinna með táknmálstexta. Einnig er farið í sértækan orðaforða og grunnþekkingu á táknmálsbókmenntum (VV). Nemendur nota myndbandsupptökur til þess að ná auknu valdi á málinu.

Vinnulag: Námskeiðið byggir á fyrirlestrum og leiðsögn kennara, yfirferð á táknmálstextum og hagnýtum hóp- og einstaklingsæfingum í tímum sem nemendur taka virkan þátt í. Mætingarskylda er 80% og er forsenda þess að ljúka námskeiði.

Námsmat: Upptökuverkefni, miðannarverkefni, lokaverkefni og undirbúningur fyrir tíma og þáttaka í tímum. Standast þarf alla þætti námsmats til að ljúka námskeiði.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Málfræði táknmáls II (TÁK303G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið: Að nemendur átti sig á málfræðilegum þáttum látbrigða í íslenska táknmálinu. Einnig að nemendur öðlist færni í að viða að sér gögnum, vinna úr þeim og draga af þeim fræðilegan lærdóm.

Viðfangsefni: Framhald af Málfræði táknmáls I sem er nauðsynlegur undanfari. Áhersla á greiningu táknmáls, umritun og úrvinnslu. Málfræðilegt hlutverk látbrigða verður rætt og nemendur fá þjálfun í að beita málfræðihugtökum á eigin gögn. Einnig verður fjallað um aðferðafræði í táknmálsrannsóknum.

Vinnulag: Kennsla er í fyrirlestrarformi en einnig eru skoðuð dæmi úr íslenska táknmálinu á myndböndum. Nemendur vinna verkefni jafnt yfir misserið.
Námsmat: Felst í skriflegum verkefnum sem dreifast jafnt yfir misserið.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Döff gróði, menning og vald (TÁK305G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginmarkmið námskeiðsins er að dýpka skilning og þekkingu nemenda á þeim menningarheimi sem döff fólk býr í og sögu sem er samtvinnuð honum. Fjallað verður um döff gróða (e. Deaf Gain) frá ýmsum sjónarhornum, bæði út frá sjónarhóli fræðasamfélagsins og upplifun döff sjálfra sem og viðhorf frá hópum utan menningarsamfélagsins.

Vinnulag: Kennslan er að mestum hluta í fyrirlestrarformi en nemendur taka virkan þátt í tímum, flytja fyrirlestra og kynna verkefni sín. 80% mætingaskylda er í námskeiðið.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Breytingar og tilbrigði (ÍSL320G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið þessa námskeiðs er að skýra þau tengsl sem eru á milli málbreytinga í sögu tungumáls og samtímalegra tilbrigða í máli. Meginhugmyndin er sú að málbreytingar leiði að jafnaði til samtímalegra tilbrigða á einhverju tímabili og að öll samtímaleg tilbrigði stafi af einhvers konar málbreytingu eða vísi að breytingu. Í námskeiðinu verða annars vegar kynntar helstu hugmyndir um eðli og tegundir málbreytinga, hvernig breytingar kvikna og hvernig þær breiðast út, og hins vegar hugmyndir um samtímaleg tilbrigði og eðli þeirra. Athyglinni verður fyrst og fremst beint að þróun íslensku, og því verða dæmi einkum tekin úr íslenskri málsögu og íslensku nútímamáli en jafnframt verður bent á hliðstæður í öðrum tungumálum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Ritfærni: Fræðileg skrif (ÍSR301G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Ritfærni: Fræðileg skrif er grunnnámskeið í meðferð ritaðs máls. Nemendur hljóta þjálfun í ritun með reglulegum heimaverkefnum, fyrirlestrum, umræðum og smiðjuvinnu. Fjallað verður um vinnulag við ritun fræðilegra texta, svo sem val og afmörkun viðfangsefnis, byggingu, heimildanotkun og frágang. Einnig verður lögð áhersla á að þjálfa nemendur í málnotkun í fræðilegum textum og fjallað meðal annars um málsnið, stíl, stafsetningu, greinarmerkjasetningu og hjálpargögn málnotenda. Nemendur skrifa fræðilega ritgerð í leiðsagnarmati og fá reglulega endurgjöf kennara sem og samnemenda. Námsmat byggist á reglulegum heimaverkefnum, miðmisserisverkefni, jafningjamati, lokaverkefni og virkri þátttöku í ritsmiðjum. Vakin er athygli á því að aðeins er hægt að ljúka námskeiðinu sé öllum verkefnum skilað.

Nemendur sem hyggjast taka námskeiðið sem netnám eru beðnir að skrá sig sem slíkir inni á Uglu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Annað ár | Vor
BA-ritgerð í táknmálsfræði (TÁK241L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

BA-ritgerð er einkum ætlað að þjálfa nemendur í að rannsaka valið viðfangsefni innan sinnar fræðigreinar og gera grein fyrir rannsókn sinni í vönduðum fræðilegum texta. Nemendur skrifa BA-ritgerð um rannsóknarefni að eigin vali í samráði við leiðbeinanda sinn. Umsjónarmaður aðstoðar nemendur við val á leiðbeinanda ef þörf krefur. Nemendur eru hvattir til að funda með leiðbeinanda og leggja fyrstu drög að rannsóknarverkefni áður en BA-ritgerðarmisserið hefst. Lokaritgerð er ætlað að sýna hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt og fræðilega, setja fram efni rökrétt og skipulega, vinna úr heimildum, svo og til að nota fræðileg hjálpargögn (t.d. handbækur, orðabækur eða sambærilegar vefsíður).

Nemendur eru hvattir til að notfæra sér þjónustu Ritvers Háskóla Íslands [hlekkur: https://ritver.hi.is/is] sem býður aðstoð við fræðileg skrif. Í Ritveri geta nemendur pantað viðtalsfund og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefni sem tengjast fræðilegum ritgerðum, skýrslum og öðrum skriflegum verkefnum.

Nemendum er bent á að kynna sér viðmið HÍ um notkun gervigreindar https://gervigreind.hi.is/

Sjá nánar um reglur um BA-ritgerðir á Hugvísindasviði: https://ugla.hi.is/kerfi/view/page.php?sid=3544

Kennslutungumál: Íslenska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Annað ár | Vor
Færninámskeið IV (TÁK403G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

VV-sögur eru bókmenntaform þar sem reynir á sköpun út frá menningu, listum og málfræði táknmála. VV-sögur eru listform sem tjá samtímis fagurfræði táknmála og menningarleg gildi döff samfélaga. Í námskeiðinu vinna nemendur sjálfstætt að því að skapa sína VV-sögu en læra samhliða um aðrar tegundir táknmálsbókmennta. Unnið verður með málfræðiatriði eins og lýsandi sagnir, látbrigði og hlutverkaskipti í ljósi hugrænna málvísinda og fléttað inn í söguvinnuna. Byggt er m.a. á þekkingu sem nemendur tileinkuðu sér í undanfarandi færninámskeiðum og málfræði táknmáls.

Námsmat: Byggist á framvindu í skilum á VV verkefni auk framfara og þátttöku bæði í vinnustofum og á fyrirlestrum jafnt og þétt yfir önnina. Standast þarf alla þætti námsmats til að ljúka námskeiði. Mætingarskylda er 80% og er forsenda þess að ljúka námskeiði.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Vor
Þróun málvísinda (AMV205G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er saga málvísinda og málspeki rakin í megindráttum frá fornöld til nútímans. Áhersla er lögð á þær kenningar og uppgötvanir sem afdrifaríkastar hafa orðið fyrir hugmyndir og aðferðafræði málvísinda. Meðal annars er fjallað um málvísindi fornaldar, íslenska miðaldamálfræði og sögu málvísindanna á 19. og 20. öld. Að lokum verður rætt um strauma og stefnur í málvísindum nútímans.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Ritfærni: Skapandi fræðamiðlun (ÍSR401G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Tilgangur þessa námskeiðs er að þjálfa nemendur í ritfærni. Áhersla verður lögð á þjálfun í meðferð texta af ýmsu tagi. Regluleg ritunarverkefni munu þjálfa ólíkar leiðir til að miðla fræðilegum textum á skapandi hátt, t.a.m. í formi pistla og sannsagna (e. creative nonfiction). Einnig munu nemendur skrifa skapandi texta, svo sem örsögur og smásögur. Nemendum mun gefast tækifæri til að notast við efnivið úr sínum aðalgreinum en þurfa einnig að takast á við nýjar áskoranir. Kennsla byggir á fyrirlestrum, umræðum, verkefnum í tíma og ritsmiðjum. Námsmat byggist á reglulegum heimaverkefnum, miðmisserisverkefni, lokaverkefni, ferilmöppu og mætingu og þátttöku. Mæting og þátttaka gildir 15% af einkunn og verður að hluta til skyldumæting (8 af 12 ritsmiðjum). Námskeiðið er opið öllum grunnnemum við Háskóla Ísland en nemendur þurfa sjálfir að aðgæta hvort þeir geti fengið námskeiðið metið upp í sína gráðu.

Netnám:

Námskeiðið er kennt í staðnámi en allir fyrirlestrar kennara verða teknir upp. Þetta er gert til að auka aðgengi að námskeiðinu. Ekki er hægt að tryggja upptökur á umræðum eða framsögum nemenda ef á við. Þeir nemendur sem ekki mæta í tíma skulu hlusta á fyrirlestra og skila skýrslu um efni þeirra með hliðsjón af lesefni. Þá skulu þeir vinna sjálfir að þeim ritsmiðjuverkefnum sem lögð eru fyrir í tíma og skila inn til kennara. Sú vinna er þá jafngildi mætingar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Fyrsta ár
  • Haust
  • ÍSL109G
    Aðferðir og vinnubrögð
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er sameiginlegt nemendum í íslensku, almennum málvísindum og táknmálsfræði. Það skiptist í tvennt. Í öðrum helmingi námskeiðsins (kennt á fimmtudögum) er fjallað um gagnrýna hugsun og ritgerðasmíð frá ýmsum hliðum: uppbyggingu ritgerða, efnisafmörkun, mál og stíl, heimildanotkun og heimildamat, tilvísanir, heimildaskrá, frágang o.fl.
    Í hinum helmingi námskeiðsins (kennt á þriðjudögum) munu fræðimenn á áðurnefndum sviðum kynna viðfangsefni sín og gestir utan háskólans kynna starfsvettvang íslenskufræðinga, málvísindamanna og táknmálsfræðinga.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • TÁK108G
    Inngangur að táknmálsfræði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður fjallað um táknmálssamfélög, sér í lagi samfélag íslenska táknmálsins (ÍTM). Fjallað verður um döff menningu og sögu ÍTM, um málhugmyndafræði og um stöðu og lífvænleika íslenska táknmálsins. Beitt verður nálgunum döff fræða, mannfræði og félagslegra málvísinda.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • TÁK102G
    Færninámskeið I
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið og viðfangsefni námskeiðsins:

    Nemendum eru kynnt grundvallaratriði íslenska táknmálsins. Megináhersla verður lögð á mál sem tengist daglegu lífi og þær meginreglur sem gilda um táknmálssamtalið. Áhersla verður lögð á bæði tjáningu og skilning táknmáls. Í námskeiðinu er fjallað um skyldubundin látbrigði með táknum og próformasögnum og mikilvægi þeirra í táknmáli. Nemendur nota myndbandsupptökur til þess að ná auknu valdi á málinu. Námskeiðið er byggt upp á fyrirlestrum og æfingum í tímum sem nemendur taka virkan þátt í.

    Námsmat: Verkefni, aðallega upptökuverkefni, sem dreifast yfir misserið. Standast þarf alla þætti námsmats til að ljúka námskeiði sem og uppfylla mætingaskyldu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Vor
  • TÁK207G
    Málfræði táknmáls I
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur átti sig á grunneiningum og uppbyggingu táknmála almennt, verði færir um að útskýra þá þætti og bera saman við raddmál. Gefið verður yfirlit yfir meginþætti málfræði íslenska táknmálsins og þá málfræðiþætti sem táknmál eiga sameiginlega.

    Kennslan byggist að miklu leyti á gagnvirkum fyrirlestrum og mikilvægt er að nemendur séu virkir í kennslustundum. Lesefni er mestallt á ensku en dæmi úr íslenska táknmálinu eru rædd í fyrirlestrum. Æskilegt er að nemendur hafi einhverja kunnáttu í táknmáli (íslensku eða erlendu). Námsmat byggist á heimaverkefnum, ritgerð og skriflegu lokaprófi (rafrænu) sem haldið verður í lok misseris. Listi yfir lesefni til prófs verður birtur í byrjun apríl. Viðmið um vinnuálag í háskólum gerir ráð fyrir að í 10 eininga námskeiði sé vinnuframlag nemanda 250-300 stundir á misseri. Ef gert er ráð fyrir 15 vikna misseri (kennsla 13 vikur og próftími/ritgerðarvinna 2 vikur) ætti nemandi að vinna að meðaltali 16-20 tíma á viku, kennslustundir þar meðtaldar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • TÁK201G
    Færninámskeið II
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið: Að nemendur geti tjáð sig á einföldu máli og tekið þátt í samræðum á táknmáli. Áhersla verður lögð á bæði tjáningu og skilning táknmáls.

    Viðfangsefni: Framhald af Færninámskeiði I sem er nauðsynlegur undanfari þessa námskeiðs. Mun þyngra táknmál og þjálfun í fjölbreytilegri notkun þess. Áfram verður lögð áhersla á málfræðileg látbrigði mikilvægi þeirra í íslenska táknmálinu.

    Vinnulag: Námskeiðið byggir á fyrirlestrum og leiðsögn kennara, yfirferð á táknmálstextum og hagnýtum hóp- og einstaklingsæfingum í tímum sem nemendur taka virkan þátt í. Mætingarskylda er 80%.

    Námsmat: Upptökuverkefni sem dreifast yfir misserið. Standast þarf alla þætti námsmats til að ljúka námskeiði og uppfylla 80 mætingarskyldu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • TÁK204G
    Menningarheimar
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þverfaglegt inngangsnámskeið þar sem efnt er til samræðu milli fræðasviða námsbrautarinnar, þ.e. bókmenntafræði, kvikmyndafræði, kynjafræði, listfræði, málvísinda, menningarfræði, táknmálsfræði og þýðingafræði. Birtu verður brugðið á alþjóðlegar hræringar í hugvísindum á liðnum áratugum en jafnframt rýnt í tengsl fræða og heimsmyndar. Fjallað verður um táknfræði tungumálsins og m.a. spurt hvort það geti talist grundvöllur annarra táknkerfa. Spurst verður fyrir um tengsl og "sambúð" mismunandi tungumála og málheima. Er hægt að þýða á milli allra mál- og menningarheima? Hvað geta aðstæður heyrnarlausra sagt okkur um tengsl málheima? Hvað er fjölmenning? Hvernig tengjast talað mál, lesmál og sjónmenning í samfélaginu? Í hverju felst menningarlæsi? Hugað verður að bókmenntum, myndlist, kvikmyndum og öðru myndefni í þjóðlegu og alþjóðlegu samhengi og kannað hvernig þessi táknkerfi vinna með mörkin milli kynja, kynþátta, stétta, menningarhópa, þjóða og heimshluta. Lesið verður ýmiskonar fræðilegt efni og skáldverk, könnuð myndverk og kvikmyndir, en viðfangsefnin verða einnig sótt í fjölmiðla og það sem er á seyði í samtímanum. Námsmat felst í fjórum verkefnum á misserinu og skriflegu lokaprófi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Haust
  • TÁK241L
    BA-ritgerð í táknmálsfræði
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    BA-ritgerð er einkum ætlað að þjálfa nemendur í að rannsaka valið viðfangsefni innan sinnar fræðigreinar og gera grein fyrir rannsókn sinni í vönduðum fræðilegum texta. Nemendur skrifa BA-ritgerð um rannsóknarefni að eigin vali í samráði við leiðbeinanda sinn. Umsjónarmaður aðstoðar nemendur við val á leiðbeinanda ef þörf krefur. Nemendur eru hvattir til að funda með leiðbeinanda og leggja fyrstu drög að rannsóknarverkefni áður en BA-ritgerðarmisserið hefst. Lokaritgerð er ætlað að sýna hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt og fræðilega, setja fram efni rökrétt og skipulega, vinna úr heimildum, svo og til að nota fræðileg hjálpargögn (t.d. handbækur, orðabækur eða sambærilegar vefsíður).

    Nemendur eru hvattir til að notfæra sér þjónustu Ritvers Háskóla Íslands [hlekkur: https://ritver.hi.is/is] sem býður aðstoð við fræðileg skrif. Í Ritveri geta nemendur pantað viðtalsfund og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefni sem tengjast fræðilegum ritgerðum, skýrslum og öðrum skriflegum verkefnum.

    Nemendum er bent á að kynna sér viðmið HÍ um notkun gervigreindar https://gervigreind.hi.is/

    Sjá nánar um reglur um BA-ritgerðir á Hugvísindasviði: https://ugla.hi.is/kerfi/view/page.php?sid=3544

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • TÁK302G
    Færninámskeið III
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið: Að nemendur skilji samræður á íslensku táknmáli og geti tjáð sig á því. Nemendur þjálfi notkun  látbrigða og próformasagna og noti á réttan hátt.

    Viðfangsefni: Framhald af Færninámskeiði II sem er nauðsynlegur undanfari.  Áfram er lögð áhersla á tjáningu táknmálstexta en við bætist aukin áhersla á skilning og aukinn orðaforða. Nemendur fá mikla þjálfun í að lesa af táknmáli og vinna með táknmálstexta. Einnig er farið í sértækan orðaforða og grunnþekkingu á táknmálsbókmenntum (VV). Nemendur nota myndbandsupptökur til þess að ná auknu valdi á málinu.

    Vinnulag: Námskeiðið byggir á fyrirlestrum og leiðsögn kennara, yfirferð á táknmálstextum og hagnýtum hóp- og einstaklingsæfingum í tímum sem nemendur taka virkan þátt í. Mætingarskylda er 80% og er forsenda þess að ljúka námskeiði.

    Námsmat: Upptökuverkefni, miðannarverkefni, lokaverkefni og undirbúningur fyrir tíma og þáttaka í tímum. Standast þarf alla þætti námsmats til að ljúka námskeiði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • TÁK303G
    Málfræði táknmáls II
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið: Að nemendur átti sig á málfræðilegum þáttum látbrigða í íslenska táknmálinu. Einnig að nemendur öðlist færni í að viða að sér gögnum, vinna úr þeim og draga af þeim fræðilegan lærdóm.

    Viðfangsefni: Framhald af Málfræði táknmáls I sem er nauðsynlegur undanfari. Áhersla á greiningu táknmáls, umritun og úrvinnslu. Málfræðilegt hlutverk látbrigða verður rætt og nemendur fá þjálfun í að beita málfræðihugtökum á eigin gögn. Einnig verður fjallað um aðferðafræði í táknmálsrannsóknum.

    Vinnulag: Kennsla er í fyrirlestrarformi en einnig eru skoðuð dæmi úr íslenska táknmálinu á myndböndum. Nemendur vinna verkefni jafnt yfir misserið.
    Námsmat: Felst í skriflegum verkefnum sem dreifast jafnt yfir misserið.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • TÁK305G
    Döff gróði, menning og vald
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginmarkmið námskeiðsins er að dýpka skilning og þekkingu nemenda á þeim menningarheimi sem döff fólk býr í og sögu sem er samtvinnuð honum. Fjallað verður um döff gróða (e. Deaf Gain) frá ýmsum sjónarhornum, bæði út frá sjónarhóli fræðasamfélagsins og upplifun döff sjálfra sem og viðhorf frá hópum utan menningarsamfélagsins.

    Vinnulag: Kennslan er að mestum hluta í fyrirlestrarformi en nemendur taka virkan þátt í tímum, flytja fyrirlestra og kynna verkefni sín. 80% mætingaskylda er í námskeiðið.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • ÍSL320G
    Breytingar og tilbrigði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið þessa námskeiðs er að skýra þau tengsl sem eru á milli málbreytinga í sögu tungumáls og samtímalegra tilbrigða í máli. Meginhugmyndin er sú að málbreytingar leiði að jafnaði til samtímalegra tilbrigða á einhverju tímabili og að öll samtímaleg tilbrigði stafi af einhvers konar málbreytingu eða vísi að breytingu. Í námskeiðinu verða annars vegar kynntar helstu hugmyndir um eðli og tegundir málbreytinga, hvernig breytingar kvikna og hvernig þær breiðast út, og hins vegar hugmyndir um samtímaleg tilbrigði og eðli þeirra. Athyglinni verður fyrst og fremst beint að þróun íslensku, og því verða dæmi einkum tekin úr íslenskri málsögu og íslensku nútímamáli en jafnframt verður bent á hliðstæður í öðrum tungumálum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSR301G
    Ritfærni: Fræðileg skrif
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Ritfærni: Fræðileg skrif er grunnnámskeið í meðferð ritaðs máls. Nemendur hljóta þjálfun í ritun með reglulegum heimaverkefnum, fyrirlestrum, umræðum og smiðjuvinnu. Fjallað verður um vinnulag við ritun fræðilegra texta, svo sem val og afmörkun viðfangsefnis, byggingu, heimildanotkun og frágang. Einnig verður lögð áhersla á að þjálfa nemendur í málnotkun í fræðilegum textum og fjallað meðal annars um málsnið, stíl, stafsetningu, greinarmerkjasetningu og hjálpargögn málnotenda. Nemendur skrifa fræðilega ritgerð í leiðsagnarmati og fá reglulega endurgjöf kennara sem og samnemenda. Námsmat byggist á reglulegum heimaverkefnum, miðmisserisverkefni, jafningjamati, lokaverkefni og virkri þátttöku í ritsmiðjum. Vakin er athygli á því að aðeins er hægt að ljúka námskeiðinu sé öllum verkefnum skilað.

    Nemendur sem hyggjast taka námskeiðið sem netnám eru beðnir að skrá sig sem slíkir inni á Uglu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • TÁK241L
    BA-ritgerð í táknmálsfræði
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    BA-ritgerð er einkum ætlað að þjálfa nemendur í að rannsaka valið viðfangsefni innan sinnar fræðigreinar og gera grein fyrir rannsókn sinni í vönduðum fræðilegum texta. Nemendur skrifa BA-ritgerð um rannsóknarefni að eigin vali í samráði við leiðbeinanda sinn. Umsjónarmaður aðstoðar nemendur við val á leiðbeinanda ef þörf krefur. Nemendur eru hvattir til að funda með leiðbeinanda og leggja fyrstu drög að rannsóknarverkefni áður en BA-ritgerðarmisserið hefst. Lokaritgerð er ætlað að sýna hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt og fræðilega, setja fram efni rökrétt og skipulega, vinna úr heimildum, svo og til að nota fræðileg hjálpargögn (t.d. handbækur, orðabækur eða sambærilegar vefsíður).

    Nemendur eru hvattir til að notfæra sér þjónustu Ritvers Háskóla Íslands [hlekkur: https://ritver.hi.is/is] sem býður aðstoð við fræðileg skrif. Í Ritveri geta nemendur pantað viðtalsfund og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefni sem tengjast fræðilegum ritgerðum, skýrslum og öðrum skriflegum verkefnum.

    Nemendum er bent á að kynna sér viðmið HÍ um notkun gervigreindar https://gervigreind.hi.is/

    Sjá nánar um reglur um BA-ritgerðir á Hugvísindasviði: https://ugla.hi.is/kerfi/view/page.php?sid=3544

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • TÁK403G
    Færninámskeið IV
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    VV-sögur eru bókmenntaform þar sem reynir á sköpun út frá menningu, listum og málfræði táknmála. VV-sögur eru listform sem tjá samtímis fagurfræði táknmála og menningarleg gildi döff samfélaga. Í námskeiðinu vinna nemendur sjálfstætt að því að skapa sína VV-sögu en læra samhliða um aðrar tegundir táknmálsbókmennta. Unnið verður með málfræðiatriði eins og lýsandi sagnir, látbrigði og hlutverkaskipti í ljósi hugrænna málvísinda og fléttað inn í söguvinnuna. Byggt er m.a. á þekkingu sem nemendur tileinkuðu sér í undanfarandi færninámskeiðum og málfræði táknmáls.

    Námsmat: Byggist á framvindu í skilum á VV verkefni auk framfara og þátttöku bæði í vinnustofum og á fyrirlestrum jafnt og þétt yfir önnina. Standast þarf alla þætti námsmats til að ljúka námskeiði. Mætingarskylda er 80% og er forsenda þess að ljúka námskeiði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • AMV205G
    Þróun málvísinda
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er saga málvísinda og málspeki rakin í megindráttum frá fornöld til nútímans. Áhersla er lögð á þær kenningar og uppgötvanir sem afdrifaríkastar hafa orðið fyrir hugmyndir og aðferðafræði málvísinda. Meðal annars er fjallað um málvísindi fornaldar, íslenska miðaldamálfræði og sögu málvísindanna á 19. og 20. öld. Að lokum verður rætt um strauma og stefnur í málvísindum nútímans.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSR401G
    Ritfærni: Skapandi fræðamiðlun

Annað ár

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Góður táknmálstúlkur eykur lífsgæði og er mikilvægur þeim sem á þarf að halda.

Fólk með þekkingu í táknmálstúlkun starfar við fjölbreyttar aðstæður má þar nefna:

  • Með almannavörnum
  • Með lögreglu
  • Við sjúkrastofnanir
  • Við greiningarstöðvar
  • Á eigin vegum sem táknmálstúlkur
  • Í leik- og grunnskólum

Listinn er ekki tæmandi.

Nemendafélag táknmálsfræðinema heitir Hending

Félagsmenn sjá um að kjósa nemendur í nefndir í tengslum við greinina sem þeir eiga rétt á að sitja í

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Evu Engilráð Thoroddsen
Upphaflega ætlaði ég að fara í táknmálsfræði og stefndi á að verða táknmálstúlkur. Eitt leiddi að öðru og í dag er ég talmeinafræðingur. Bakgrunnur minn í táknmálsfræðinni hefur reynst mér mjög vel í mínu starfi og hefur gefið mér ákveðna sérstöðu á því sviði sem ég starfa við. Táknmálsfræðin hefur reynst mér mjög vel og sé ég ekki eftir því að hafa farið þessa leið.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið. Fyrir sjálfsafgreiðslu er hægt að nýta Þjónustumiðju HÍ.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil