""
Inntökupróf í íslensku

Hér að neðan má finna upplýsingar um inntökupróf í íslensku á stigi B2 í Evrópska tungumálarammanum (sjálfsmatsrammi CEFR). Prófin eru haldin á vegum Háskóla Íslands.

Reglur um inntökuskilyrði í grunnnám nr. 331-2022

  • Í prófinu er færni umsækjenda í íslensku metin á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR).
  • Prófað er í fjórum þáttum: lesskilningi, hlustun, ritun og munnlegri færni.
  • Niðurstöður prófsins verða sendar til umsækjanda með tölvupósti.

  • Umsækjendur með samþykkta umsókn sem lokið hafa prófi frá erlendum skóla fá sendar upplýsingar frá Háskóla Íslands um prófstað og -tíma.
  • Próftökugjald verður ekki innheimt árið 2026, en verður tekið upp 2027 (sem stendur 35.000 kr.)

  • Prófin eru staðpróf og fara fram í byggingum Háskóla Íslands 15.-16. júní.
  • Umsækjendur sem eiga þess ekki kost að taka prófið í júní geta sótt um prófdag 10. ágúst. Hafið samband við islenskuprof@hi.is.
  • Athugið að skólavist er ekki samþykkt fyrir en íslenskukunnátta er staðfest. Skráningargjald skal þá greitt eins fljótt og auðið er, fyrir fyrsta skóladag.
  • Gott aðgengi er að prófstöðum. Umsækjendur sem geta ekki tekið prófið í Háskóla Íslands verða að taka það á viðurkenndum prófstöðum á Íslandi. Hér má finna lista yfir viðurkennda prófstaði [vantar síðu!!!]. Umsækjendur verða sjálfir að hafa samband við viðurkenndan prófstað og skrá sig í próf þar. Nánari upplýsingar má finna hér undir yfirskriftinni Fjarpróf.
  • Umsækjandi þarf að mæta í prófið með gild skilríki (vegabréf eða ökuskírteini).
Upplýsingar og sýnispróf

Prófin í lesskilningi, hlustun og ritun fara fram í rafræna prófakerfinu Inspera og taka u.þ.b. 4 klst.

  • Háskóli Íslands útvegar próftökum tölvur og heyrnartól til að taka prófin. Próftakar fá rissblöð og penna. Engin önnur hjálpargögn eru leyfð í prófunum.
  • Í lesskilningsprófinu eru 4 verkefni og próftakar fá 60 mínútur til að leysa prófið.
  • Í hlustunarprófinu eru 4 verkefni og próftakar fá 40 mínútur til að leysa prófið.
  • Í ritunarprófinu eru 2 verkefni og próftakar fá 80 mínútur til að leysa prófið.
  • Stutt hlé eru gerð á milli prófanna.
  • Próftakar eru hvattir til að kynna sér uppbyggingu prófanna vel með því að skoða sýnisprófin hér fyrir neðan.

Sýnispróf í lesskilningi – íslenska á B2 stigi
Sýnispróf í hlustun – íslenska á B2 stigi
Sýnispróf í ritun – íslenska á B2 stigi

Próftaka er úthlutað próftíma í munnlegt próf. Prófið tekur alls 30 mínútur. 

  • Fyrstu 15 mínúturnar fær próftakinn að undirbúa hluta prófsins í biðstofu áður en prófið hefst. Prófið sjálft tekur 15 mínútur í prófstofu. 
  • Í prófinu eru 3 verkefni sem eru afhent á staðnum.
  • Próftaki tekur prófið einn og er metinn af tveimur prófdómurum. 
  • Próftakar eru hvattir til að kynna sér uppbyggingu prófsins vel með því að skoða sýnisprófið hér fyrir neðan.

Sýnispróf í munnlegri færni – íslenska á B2 stigi

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil