- Hefur þú áhuga á menningu í öllu sínu fjölbreytta formi?
- Hentar þér vel að stunda fjarnám?
- Langar þig að kynnast fjölbreyttum störfum safna betur?
- Vilt þú fara í stutt en hagnýtt nám?
Í örnámi í safnafræði á meistarastigi er velja nemendur á milli kjörsviða í safnafræði, safnafræðslu eða faglegu starfi safna.
Safnafræði er þverfræðileg fræðigrein því að segja má að söfnum sé ekkert óviðkomandi.
Meðal viðfangsefna má nefna sýningargerð og sýningarstjórnun, markmið safna, skipulag þeirra og rekstur ásamt varðveislu, skráningu og miðlun þekkingar.
Uppbygging náms
Námið er 30 einingar og er skipulagt sem hlutanám til eins árs.
Val stendur á milli eftirfarandi kjörsviða:
- Safnafræði
Markmið námsins er að veita nemendum þekkingu og innsýn í fjölbreytt störf safna og fléttar saman hagnýt og fræðileg sjónarmið. Við lok námstímans er gert ráð fyrir að nemandinn þekki vel fræðilegra og faglegra áskorana í safnastarfi og geti þar að auki nýtt sér fræðilega þekkingu við lausn á hagnýtum viðfangsefnum.
- Safnfræðsla
Markmið námsins er að veita nemendum innsýn í og reynslu af safnfræðsluverkefnum safna og flétta þannig saman hagnýta og fræðilega hluta námsins. Við lok námstímans er gert ráð fyrir að nemandinn þekki vel starfsemi safna á sviði safnfræðslu og geti þar að auki nýtt sér fræðilega þekkingu við lausn á viðfangsefnum þar að lútandi. Námsleiðin hentar öllum sem hafa bakgrunn í hug-, félags-, náttúru- og menntavísindum.
- Faglegt starf safna
Markmið námsins er að veita nemendum innsýn í og reynslu af faglegum verkefnum safna og flétta þannig saman hagnýta og fræðilega hluta námsins. Við lok námstímans er gert ráð fyrir að nemandinn þekki vel faglega starfsemi safna og geti þar að auki nýtt sér fræðilega þekkingu við lausn á viðfangsefnum.
Fyrirkomulag kennslu
Námið er kennt á íslensku en flestar bækur eru á ensku.
Kennt er í fjarnámi.
Meginmarkmið
Miðað er að því að auka skilning nemenda á flestum þáttum hefðbundins safnastarfs og geti nýtt sér fræðilega þekkingu við lausn á viðfangsefnum.
Annað
Í framhaldi af náminu geta nemendur sótt um í MA-nám í safnafræði og fá þá einingarnar að fullu metnar.
BA, BS, B.Ed. gráða eða sambærileg gráða.
Ljúka þarf 30 ECTS einingum.
- Kjörsviðið Safnafræði: Nemendur taka 30e í skyldu.
- Kjörsviðið Faglegt starf safna: Nemendur taka 20e í skyldu og 10e í bundnu vali.
- Kjörsviðið Safnfræðsla: Nemendur 20e í skyldu og 10e í bundnu vali.
- Ferilskrá (CV)
- Prófskírteini/námsyfirlit
- Ef umsækjandi hefur erlent ríkisfang og erlent próf þarf að skila staðfestingu á enskukunnáttu
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og misserum.
- Fyrsta ár
- Haust
- Praktík og kenningar í safnafræði
- Gagnrýnin sýn á praktík og kenningar í safnafræði
- Lesnámskeið í MA- námi
- Vor
- Ekki kennt á misserinuInngangur að sýningarstjórnun
- Lesnámskeið í MA- námi
- Faglegt starf: Stjórnskipulag, söfnun og miðlun
- Hvað gerir safnafólk? Innsýn í dagleg störf á safni
- Samfélagslegar áskoranir og söfn
- Safn og samfélag: Sirkus dauðans?
- Faglegt starf: Varðveisla, skráning og rannsóknir
Praktík og kenningar í safnafræði (SAF104F)
Í námskeiðinu verður tekist á við spurningar sem tengjast víxlverkun á milli praktíkur (e. practice) og kenninga í safnastarfi. Fjölmörg dæmi úr safnastarfi listasafna, náttúruminjasafna og menningarminjasafna verða skoðuð í þessu samhengi og hentar námskeiðið því nemendum úr fleiri greinum en safnafræði, s.s. eins og fornleifafræði, listfræði, menningarfræði, fötlunarfræði, mannfræði, þjóðfræði, félagsfræði og fleiri. Hugað verður að því hvernig bæði praktík og kenningar hafa mótað safnastofnanir og starfsemi þeirra. Fjallað verður m.a. um praktík og kenningar um söfnun, varðveislu, flokkun og skráningar, sýningagerð, gesti, markaðsmál og félagsleg áhrif safna. Námskeiðið er kennt sem netnám og byggir námsmat á fjölbreyttum verkefnum sem unnin eru í námskeiðinu. Námskeiðið er kennt við upphaf haustannar og lýkur í lok september.
Gagnrýnin sýn á praktík og kenningar í safnafræði (SAF105F)
Í námskeiðinu verður tekist á við gagnrýnar spurningar sem tengjast víxlverkun á milli praktíkur (e. practice) og kenninga í safnastarfi. Fjölmörg dæmi úr praktísku safnastarfi listasafna, náttúruminjasafna og menningarminjasafna verða skoðuð í þessu samhengi og hentar námskeiðið því nemendum úr fleiri greinum en safnafræði, s.s. eins og fornleifafræði, listfræði, menningarfræði, fötlunarfræði, mannfræði, þjóðfræði, félagsfræði og fleiri greinum. Saga safna verður skoðuð með gagnrýnu hugarfari og hugað verður að straumum og stefnum í faginu við upphaf 21. aldar. Sérstaklega er litið til safna sem almannastofnanir, en sem slíkar hafa þær mörgum og vaxandi hlutverkum að gegna fyrir samfélög, lífsgæði fólks og hópa, menntun, rannsóknir og þverþjóðleg samskipti svo eitthvað sé nefnt. Fjallað verður m.a. um hagnýtingu kenninga í safnastarfi, siðferði, ritskoðun, hnattvæðingu, frumbyggja, áhrif stafrænnar menningar, trúarbrögð, innflytjendur og inngildingu, svo eitthvað sé nefnt. Námskeiðið er eingöngu kennt í fjarnámi og byggir námsmat á verkefnum sem unnin eru yfir önnina. Námskeiðið hefst í byrjun október og endar í lok nóvember.
Lesnámskeið í MA- námi (SAF006F)
Nemandi leitar til umsjónarkennara námskeiðsins og óskar eftir leiðsögn í sjálfstæðu verkefni.
Markmið lesnámskeiða er að nemendur hafi möguleika á að afla sérhæfðari þekkingar á ýmsum sviðum safnafræði. Kennari og nemendur ákveða lesefnið í sameiningu og nemendur gera skriflega grein fyrir þekkingu sinni í lok námskeiðsins.
Inngangur að sýningarstjórnun (SAF019F)
Fjallað verður um helstu atriði sýningargerðar og störf sýningarhöfundar, sýningarstjóra og sýningarhönnuðar. Mismunandi aðferðir við sýningastjórnun verða skoðaðar með gagnrýnum hætti og hugmyndafræðilegur grunnur sýninga kannaður. Áhersla verður lögð á frásagnarafbrigði sýninga, handritsgerð og miðlunarleiðir. Einnig verður lögð áhersla á að skoða og greina sýningar listasafna, menningarminjasafna og náttúruminjasafna og kanna með gagnrýnu hugarfari hvernig ólíkar leiðir miðla upplýsingum og upplifunum. Hugað verður að innlendum og erlendum dæmum.
Lesnámskeið í MA- námi (SAF010F)
Nemandi leitar til umsjónarkennara námskeiðsins og óskar eftir leiðsögn í sjálfstæðu verkefni.
Markmið lesnámskeiða er að nemendur hafi möguleika á að afla sérhæfðari þekkingar á ýmsum sviðum safnafræði. Kennari og nemendur ákveða lesefnið í sameiningu og nemendur gera skriflega grein fyrir þekkingu sinni í lok námskeiðsins.
Faglegt starf: Stjórnskipulag, söfnun og miðlun (SAF208F)
Í safnalögum 141/2011 kemur fjölbreytilegt hlutverk safna skýrt fram, þau eiga að varðveita menningar-og náttúruarf þjóðarinnar og tryggja að honum verði skilað óspilltum til komandi kynslóða. Söfn sinna eftirfarandi störfum:
- Söfnun – uppbygging safnkosts, meðferð og aðbúnaður safngripa
- Varðveisla og skráning safnakosts – forvörslumál, húsnæðismál, öryggismál og skráningarmál safngripa
- Miðlun á söfnum - þróun og möguleikar, og að endingu rannsóknir - rannsóknir á safnkosti, rannsóknir sem útskýra safnkost, faglegar rannsóknir
- Mat á starfsemi safna, bæði út frá safngestinum og einnig sjálfsmat (aðferðir og úrvinnsla), sem og stjórnunarlegum þáttum í safnastarfi
Skýr fagleg viðmið, reglur og eftirlit þurfa að vera til staðar til þess að tryggja að söfn sinni hlutverki sínu á faglegan hátt, í þágu samfélagsins. Í þessu námskeiði verða tilvik úr íslensku safnastarfi greind með tilliti til faglegs starfs (e. best practices), fræðilegs efnis, lagaumhverfis safna, siðareglna ICOM, og með aðkomu sérfræðinga helstu safnastofnana landsins, sem miðla af reynslu sinni með raunverulegum dæmum úr störfum sínum á söfnum innanlands og erlendis.
Námskeiðið ætti að henta öllum þeim sem hyggjast starfa á sviði menningarmála og eru í menningartengdu námi, svo sem fornleifafræði, listfræði, menningarfræði, fötlunarfræði, mannfræði, þjóðfræði, félagsfræði og fleira. Námskeiðið er kennt frá upphafi misseris í janúar og fram í febrúar. Nemendur kynnast stjórnskipulagi safna (þar með talið safnaráði, safnalögum og siðareglum ICOM), hverju er safnað á söfnum og hvernig því er miðlað.
Í námskeiðinu verða haldnir fyrirlestrar á netinu, byggðir á kennslubókinni Faglegt starf safna: Tilvik og álitamál (2018) og ein staðlota haldin í viku 6 (1 dagur), þar sem nemendur fara í vettvangsferðir á söfn og fá fyrirlestra frá sérfræðingum starfandi á söfnum. Skyldumæting er í staðlotu. Námsmat byggir á verkefnavinnu yfir misserið, mætingu í staðlotu og stuttu skriflegu verkefni þar sem viðfangsefni staðlotu er sett í samhengi við fræðilegt lesefni.
Hvað gerir safnafólk? Innsýn í dagleg störf á safni (SAF207F)
Í þessu námskeiði fá nemendur að kynnast þeim faglegu áskorunum sem felast í daglegum störfum á safni, nánar til tekið á Hönnunarsafni Íslands. Markmiðið er að kynna nemendur fyrir væntingum almennings, stjórnsýslu safna (safnaráði) og eigendum þeirra og með hvaða hætti söfn reyna að mæta þeim. Nemendur verða kynntir fyrir því hvað felst í faglegu starfi safna almennt, og stöðu og tilgangi hönnunarsafna í því ljósi. Markmiðið er að veita nemendum hagnýta innsýn inn í safnastarf, og greina það með hliðsjón fræðilegs lesefnis og faglegra reglugerða, starfshefða, og siðareglna ICOM. Fyrst eru haldnir fyrirlestrar á netinu, og svo í lok janúar mæta nemendur í hálfs dags staðlotu á Hönnunarsafni Íslands (mætingarskylda) og velja einn dag einu sinni yfir misserið (á tímabili ákveðið af kennara og starfsmönnum Hönnunarsafns Íslands) á starfsdag í safninu, þar sem tveir og tveir vinna saman með starfsmanni safnsins í heilan dag. Námsmat byggir á mætingu í staðlotu og í starfsdag og skriflegu verkefni þar sem reynsla þeirra af Hönnunarsafni Íslands er sett í samhengi við fræðilegt lesefni.
Samfélagslegar áskoranir og söfn (SAF202M)
Námskeiðið skoðar á gagnrýninn hátt áhrif samtímans á söfn og starfshætti þeirra. Leitast verður við að gefa góðan skilning á því hvernig söfn standa frammi fyrir og leitast oft við að takast á við ýmsar samfélagslegar áskoranir, þar á meðal fjölbreytni, jöfnuð, þátttöku, félagslegt réttlæti og sjálfbærni. Í námskeiðinu verður fræðilegur grunnur samfélagsmála safna skoðaður og dæmi þar að lútandi. Áherslur verða meðal annars á að skoða hlutverk safna sem talsmenn jaðarsettra hópa, mikilvægi samvinnu og samsköpunar og aðferðir til að takast á við loftslagsbreytingar innan safnastarfs, svo eitthvað sé nefnt. Umræður og verkefni skora á nemendur að hugsa gagnrýnið um hlutverk safna í samfélaginu. Í lok námskeiðsins verða nemendur búnir góðri færni og þekkingu til að takast á við félagsleg hlutverk safna í ört breytilegum heimi. Námskeiðið verður kennt frá lokum febrúar til loka mars.
Safn og samfélag: Sirkus dauðans? (SAF201M)
Í þessu námskeiði verða margþætt tengsl safna og þeirra samfélaga sem þau þjóna skoðuð. Kannað verður hvernig söfn eru ekki aðeins vörslumenn menningararfs heldur einnig virkir þátttakendur í mótun menningarlegra frásagna og samfélagslegra sjálfsmynda. Með því að skoða sögulegt samhengi, fræðilega umgjörð og hagnýtar dæmisögur fá nemendur innsýn í það mikilvæga hlutverk sem söfn gegna við að sýna og stundum ögra samfélagslegum gildum. Í námskeiðinu verður farið yfir efni eins og söfn sem hvati til samfélagsbreytinga, mikilvægi inngildingar og aðgengis, og áhrif stafrænnar tækni á samfélagsþátttöku. Með umræðum, dæmum og praktískum verkefnum munu nemendur kanna hvernig söfn geta á áhrifaríkan hátt virkjað fólk og stuðlað að réttlátara samfélagi. Í lok námskeiðsins munu nemendur hafa tileinkað sér góðan skilning á því hvernig söfn geta brugðist við þörfum og gildum fólks í þeim samfélögum sem þau þjóna.
Faglegt starf: Varðveisla, skráning og rannsóknir (SAF209F)
Í safnalögum 141/2011 kemur fjölbreytilegt hlutverk safna skýrt fram, þau eiga að varðveita menningar-og náttúruarf þjóðarinnar og tryggja að honum verði skilað óspilltum til komandi kynslóða. Söfn sinna eftirfarandi störfum:
- Söfnun – uppbygging safnkosts, meðferð og aðbúnaður safngripa
- Varðveisla og skráning safnakosts – forvörslumál, húsnæðismál, öryggismál og skráningarmál safngripa
- Miðlun á söfnum - þróun og möguleikar, og að endingu rannsóknir - rannsóknir á safnkosti, rannsóknir sem útskýra safnkost, faglegar rannsóknir
- Mat á starfsemi safna, bæði út frá safngestinum og einnig sjálfsmat (aðferðir og úrvinnsla), sem og stjórnunarlegum þáttum í safnastarfi.
Skýr fagleg viðmið, reglur og eftirlit þurfa að vera til staðar til þess að tryggja að söfn sinni hlutverki sínu á faglegan hátt, í þágu samfélagsins. Í þessu námskeiði verða tilvik úr íslensku safnastarfi greind með tilliti til faglegs starfs (e. best practices), fræðilegs efnis, lagaumhverfis safna, siðareglna ICOM, og með aðkomu sérfræðinga helstu safnastofnanna landsins, sem miðla af reynslu sinni með raunverulegum dæmum úr störfum sínum á söfnum innanlands og erlendis.
Námskeiðið ætti að henta öllum þeim sem hyggjast starfa á sviði menningarmála og eru í menningartengdu námi, svo sem fornleifafræði, listfræði, menningarfræði, fötlunarfræði, mannfræði, þjóðfræði, félagsfræði og fleira. Námskeiðið er kennt frá síðari hluta febrúar, fram til apríl þegar vormisseri lýkur. Nemendur kynnast hvaða faglegu áskoranir felast í varðveislu gripa (til dæmis vegna slakrar varðveisluaðstæðna í geymslum, samtímasöfnun og fleira), skráningu safnkosts og safnarannsóknum.
Í námskeiðinu verða haldnir fyrirlestrar á netinu, byggðir á kennslubókinni Faglegt starf safna: Tilvik og álitamál (2018) og ein staðlota haldin í viku 6 (1 dagur), þar sem nemendur fara í vettvangsferðir á söfn og fá fyrirlestra frá sérfræðingum starfandi á söfnum. Skyldumæting er í staðlotu. Námsmat byggir á verkefnavinnu yfir misserið, mætingu í staðlotu og stuttu skriflegu verkefni þar sem viðfangsefni staðlotu er sett í samhengi við fræðilegt lesefni.
- Haust
- SAF104FPraktík og kenningar í safnafræðiBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsing
Í námskeiðinu verður tekist á við spurningar sem tengjast víxlverkun á milli praktíkur (e. practice) og kenninga í safnastarfi. Fjölmörg dæmi úr safnastarfi listasafna, náttúruminjasafna og menningarminjasafna verða skoðuð í þessu samhengi og hentar námskeiðið því nemendum úr fleiri greinum en safnafræði, s.s. eins og fornleifafræði, listfræði, menningarfræði, fötlunarfræði, mannfræði, þjóðfræði, félagsfræði og fleiri. Hugað verður að því hvernig bæði praktík og kenningar hafa mótað safnastofnanir og starfsemi þeirra. Fjallað verður m.a. um praktík og kenningar um söfnun, varðveislu, flokkun og skráningar, sýningagerð, gesti, markaðsmál og félagsleg áhrif safna. Námskeiðið er kennt sem netnám og byggir námsmat á fjölbreyttum verkefnum sem unnin eru í námskeiðinu. Námskeiðið er kennt við upphaf haustannar og lýkur í lok september.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeið kennt fyrri hluta misserisSAF105FGagnrýnin sýn á praktík og kenningar í safnafræðiBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu verður tekist á við gagnrýnar spurningar sem tengjast víxlverkun á milli praktíkur (e. practice) og kenninga í safnastarfi. Fjölmörg dæmi úr praktísku safnastarfi listasafna, náttúruminjasafna og menningarminjasafna verða skoðuð í þessu samhengi og hentar námskeiðið því nemendum úr fleiri greinum en safnafræði, s.s. eins og fornleifafræði, listfræði, menningarfræði, fötlunarfræði, mannfræði, þjóðfræði, félagsfræði og fleiri greinum. Saga safna verður skoðuð með gagnrýnu hugarfari og hugað verður að straumum og stefnum í faginu við upphaf 21. aldar. Sérstaklega er litið til safna sem almannastofnanir, en sem slíkar hafa þær mörgum og vaxandi hlutverkum að gegna fyrir samfélög, lífsgæði fólks og hópa, menntun, rannsóknir og þverþjóðleg samskipti svo eitthvað sé nefnt. Fjallað verður m.a. um hagnýtingu kenninga í safnastarfi, siðferði, ritskoðun, hnattvæðingu, frumbyggja, áhrif stafrænnar menningar, trúarbrögð, innflytjendur og inngildingu, svo eitthvað sé nefnt. Námskeiðið er eingöngu kennt í fjarnámi og byggir námsmat á verkefnum sem unnin eru yfir önnina. Námskeiðið hefst í byrjun október og endar í lok nóvember.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeið kennt seinni hluta misserisNámskeiðslýsingNemandi leitar til umsjónarkennara námskeiðsins og óskar eftir leiðsögn í sjálfstæðu verkefni.
Markmið lesnámskeiða er að nemendur hafi möguleika á að afla sérhæfðari þekkingar á ýmsum sviðum safnafræði. Kennari og nemendur ákveða lesefnið í sameiningu og nemendur gera skriflega grein fyrir þekkingu sinni í lok námskeiðsins.
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
Ekki kennt á misserinuSAF019FInngangur að sýningarstjórnunBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFjallað verður um helstu atriði sýningargerðar og störf sýningarhöfundar, sýningarstjóra og sýningarhönnuðar. Mismunandi aðferðir við sýningastjórnun verða skoðaðar með gagnrýnum hætti og hugmyndafræðilegur grunnur sýninga kannaður. Áhersla verður lögð á frásagnarafbrigði sýninga, handritsgerð og miðlunarleiðir. Einnig verður lögð áhersla á að skoða og greina sýningar listasafna, menningarminjasafna og náttúruminjasafna og kanna með gagnrýnu hugarfari hvernig ólíkar leiðir miðla upplýsingum og upplifunum. Hugað verður að innlendum og erlendum dæmum.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNemandi leitar til umsjónarkennara námskeiðsins og óskar eftir leiðsögn í sjálfstæðu verkefni.
Markmið lesnámskeiða er að nemendur hafi möguleika á að afla sérhæfðari þekkingar á ýmsum sviðum safnafræði. Kennari og nemendur ákveða lesefnið í sameiningu og nemendur gera skriflega grein fyrir þekkingu sinni í lok námskeiðsins.
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðSAF208FFaglegt starf: Stjórnskipulag, söfnun og miðlunSkyldunámskeið4Skyldunámskeið á námsleiðinni4 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ safnalögum 141/2011 kemur fjölbreytilegt hlutverk safna skýrt fram, þau eiga að varðveita menningar-og náttúruarf þjóðarinnar og tryggja að honum verði skilað óspilltum til komandi kynslóða. Söfn sinna eftirfarandi störfum:
- Söfnun – uppbygging safnkosts, meðferð og aðbúnaður safngripa
- Varðveisla og skráning safnakosts – forvörslumál, húsnæðismál, öryggismál og skráningarmál safngripa
- Miðlun á söfnum - þróun og möguleikar, og að endingu rannsóknir - rannsóknir á safnkosti, rannsóknir sem útskýra safnkost, faglegar rannsóknir
- Mat á starfsemi safna, bæði út frá safngestinum og einnig sjálfsmat (aðferðir og úrvinnsla), sem og stjórnunarlegum þáttum í safnastarfi
Skýr fagleg viðmið, reglur og eftirlit þurfa að vera til staðar til þess að tryggja að söfn sinni hlutverki sínu á faglegan hátt, í þágu samfélagsins. Í þessu námskeiði verða tilvik úr íslensku safnastarfi greind með tilliti til faglegs starfs (e. best practices), fræðilegs efnis, lagaumhverfis safna, siðareglna ICOM, og með aðkomu sérfræðinga helstu safnastofnana landsins, sem miðla af reynslu sinni með raunverulegum dæmum úr störfum sínum á söfnum innanlands og erlendis.
Námskeiðið ætti að henta öllum þeim sem hyggjast starfa á sviði menningarmála og eru í menningartengdu námi, svo sem fornleifafræði, listfræði, menningarfræði, fötlunarfræði, mannfræði, þjóðfræði, félagsfræði og fleira. Námskeiðið er kennt frá upphafi misseris í janúar og fram í febrúar. Nemendur kynnast stjórnskipulagi safna (þar með talið safnaráði, safnalögum og siðareglum ICOM), hverju er safnað á söfnum og hvernig því er miðlað.
Í námskeiðinu verða haldnir fyrirlestrar á netinu, byggðir á kennslubókinni Faglegt starf safna: Tilvik og álitamál (2018) og ein staðlota haldin í viku 6 (1 dagur), þar sem nemendur fara í vettvangsferðir á söfn og fá fyrirlestra frá sérfræðingum starfandi á söfnum. Skyldumæting er í staðlotu. Námsmat byggir á verkefnavinnu yfir misserið, mætingu í staðlotu og stuttu skriflegu verkefni þar sem viðfangsefni staðlotu er sett í samhengi við fræðilegt lesefni.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeið kennt fyrri hluta misserisSAF207FHvað gerir safnafólk? Innsýn í dagleg störf á safniSkyldunámskeið2Skyldunámskeið á námsleiðinni2 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ þessu námskeiði fá nemendur að kynnast þeim faglegu áskorunum sem felast í daglegum störfum á safni, nánar til tekið á Hönnunarsafni Íslands. Markmiðið er að kynna nemendur fyrir væntingum almennings, stjórnsýslu safna (safnaráði) og eigendum þeirra og með hvaða hætti söfn reyna að mæta þeim. Nemendur verða kynntir fyrir því hvað felst í faglegu starfi safna almennt, og stöðu og tilgangi hönnunarsafna í því ljósi. Markmiðið er að veita nemendum hagnýta innsýn inn í safnastarf, og greina það með hliðsjón fræðilegs lesefnis og faglegra reglugerða, starfshefða, og siðareglna ICOM. Fyrst eru haldnir fyrirlestrar á netinu, og svo í lok janúar mæta nemendur í hálfs dags staðlotu á Hönnunarsafni Íslands (mætingarskylda) og velja einn dag einu sinni yfir misserið (á tímabili ákveðið af kennara og starfsmönnum Hönnunarsafns Íslands) á starfsdag í safninu, þar sem tveir og tveir vinna saman með starfsmanni safnsins í heilan dag. Námsmat byggir á mætingu í staðlotu og í starfsdag og skriflegu verkefni þar sem reynsla þeirra af Hönnunarsafni Íslands er sett í samhengi við fræðilegt lesefni.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNámskeiðið skoðar á gagnrýninn hátt áhrif samtímans á söfn og starfshætti þeirra. Leitast verður við að gefa góðan skilning á því hvernig söfn standa frammi fyrir og leitast oft við að takast á við ýmsar samfélagslegar áskoranir, þar á meðal fjölbreytni, jöfnuð, þátttöku, félagslegt réttlæti og sjálfbærni. Í námskeiðinu verður fræðilegur grunnur samfélagsmála safna skoðaður og dæmi þar að lútandi. Áherslur verða meðal annars á að skoða hlutverk safna sem talsmenn jaðarsettra hópa, mikilvægi samvinnu og samsköpunar og aðferðir til að takast á við loftslagsbreytingar innan safnastarfs, svo eitthvað sé nefnt. Umræður og verkefni skora á nemendur að hugsa gagnrýnið um hlutverk safna í samfélaginu. Í lok námskeiðsins verða nemendur búnir góðri færni og þekkingu til að takast á við félagsleg hlutverk safna í ört breytilegum heimi. Námskeiðið verður kennt frá lokum febrúar til loka mars.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeið kennt seinni hluta misserisSAF201MSafn og samfélag: Sirkus dauðans?Skyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ þessu námskeiði verða margþætt tengsl safna og þeirra samfélaga sem þau þjóna skoðuð. Kannað verður hvernig söfn eru ekki aðeins vörslumenn menningararfs heldur einnig virkir þátttakendur í mótun menningarlegra frásagna og samfélagslegra sjálfsmynda. Með því að skoða sögulegt samhengi, fræðilega umgjörð og hagnýtar dæmisögur fá nemendur innsýn í það mikilvæga hlutverk sem söfn gegna við að sýna og stundum ögra samfélagslegum gildum. Í námskeiðinu verður farið yfir efni eins og söfn sem hvati til samfélagsbreytinga, mikilvægi inngildingar og aðgengis, og áhrif stafrænnar tækni á samfélagsþátttöku. Með umræðum, dæmum og praktískum verkefnum munu nemendur kanna hvernig söfn geta á áhrifaríkan hátt virkjað fólk og stuðlað að réttlátara samfélagi. Í lok námskeiðsins munu nemendur hafa tileinkað sér góðan skilning á því hvernig söfn geta brugðist við þörfum og gildum fólks í þeim samfélögum sem þau þjóna.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeið kennt fyrri hluta misserisSAF209FFaglegt starf: Varðveisla, skráning og rannsóknirSkyldunámskeið4Skyldunámskeið á námsleiðinni4 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ safnalögum 141/2011 kemur fjölbreytilegt hlutverk safna skýrt fram, þau eiga að varðveita menningar-og náttúruarf þjóðarinnar og tryggja að honum verði skilað óspilltum til komandi kynslóða. Söfn sinna eftirfarandi störfum:
- Söfnun – uppbygging safnkosts, meðferð og aðbúnaður safngripa
- Varðveisla og skráning safnakosts – forvörslumál, húsnæðismál, öryggismál og skráningarmál safngripa
- Miðlun á söfnum - þróun og möguleikar, og að endingu rannsóknir - rannsóknir á safnkosti, rannsóknir sem útskýra safnkost, faglegar rannsóknir
- Mat á starfsemi safna, bæði út frá safngestinum og einnig sjálfsmat (aðferðir og úrvinnsla), sem og stjórnunarlegum þáttum í safnastarfi.
Skýr fagleg viðmið, reglur og eftirlit þurfa að vera til staðar til þess að tryggja að söfn sinni hlutverki sínu á faglegan hátt, í þágu samfélagsins. Í þessu námskeiði verða tilvik úr íslensku safnastarfi greind með tilliti til faglegs starfs (e. best practices), fræðilegs efnis, lagaumhverfis safna, siðareglna ICOM, og með aðkomu sérfræðinga helstu safnastofnanna landsins, sem miðla af reynslu sinni með raunverulegum dæmum úr störfum sínum á söfnum innanlands og erlendis.
Námskeiðið ætti að henta öllum þeim sem hyggjast starfa á sviði menningarmála og eru í menningartengdu námi, svo sem fornleifafræði, listfræði, menningarfræði, fötlunarfræði, mannfræði, þjóðfræði, félagsfræði og fleira. Námskeiðið er kennt frá síðari hluta febrúar, fram til apríl þegar vormisseri lýkur. Nemendur kynnast hvaða faglegu áskoranir felast í varðveislu gripa (til dæmis vegna slakrar varðveisluaðstæðna í geymslum, samtímasöfnun og fleira), skráningu safnkosts og safnarannsóknum.
Í námskeiðinu verða haldnir fyrirlestrar á netinu, byggðir á kennslubókinni Faglegt starf safna: Tilvik og álitamál (2018) og ein staðlota haldin í viku 6 (1 dagur), þar sem nemendur fara í vettvangsferðir á söfn og fá fyrirlestra frá sérfræðingum starfandi á söfnum. Skyldumæting er í staðlotu. Námsmat byggir á verkefnavinnu yfir misserið, mætingu í staðlotu og stuttu skriflegu verkefni þar sem viðfangsefni staðlotu er sett í samhengi við fræðilegt lesefni.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeið kennt seinni hluta misseris